Vikan


Vikan - 21.02.1980, Síða 63

Vikan - 21.02.1980, Síða 63
Við hjónin kunnum lítið í kynlífi Kæri Póstur. Mig vantar dálitla aðstod. Þannig er málið va.xið að við hjónin kunnum lítið í kynlíftnu. Getur þú ekki geftð okkur upplýsingar um hvar hœgt er að fá bók sem sýndar eru i myndum og máli alls konar samfarastellingar og svoleiðis? Jæja. ég vona að þetta bréf lendi ekki í ruslakörfurmi. Ein ófróð. Bókaútgáfan Örn og Örlygur gaf á síðasta ári út bókina Sjafnar- yndi, sem fjallar einmitt um þetta efni. Líklega myndi þér nægja að hringja og biðja um bókina í póstkröfu. Á flestum bókasöfnum eru ýmsar bækur um kynferðismál og þú ættir að athuga hvort þú getur ekki fundið eitthvað um þetta í bóka- safninu í þinni heimabyggð. Hafðu ekki miklar áhyggjur af þessu, því í þessu efni sem öðrum þurfa menn að öðlast reynslu og hana öðlast menn með því að sýna hvor öðrum skilning og tillitssemi. Pcnnavinir Jóhanna Pálsdóttir, Gilsbakka 24, 710 Sevðisfirði, óskar eftir að skrifast á við stelpur og stráka á aldrinum 12-14 ára. Hún er sjálf 12 ára. Áhugamál hennar eru margvísleg. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægter. Alfa og Dadda, Hlíðartúni 17, 780 llófn Hornafirði, óska eftir pennavinum á aldrinum 14-16 ára, helst strákum. Áhugamál: skiði. diskótónlist. böll. sætir stráka og Ijótir lika. ef þeir eru skemmti legir. og svo auðvitað hestar. Carl Sheeler, 5107 Cross Field Court ap. 6, Rockville, Maryland 20852, USA óskar eftir að komast i bréfasamband við íslendinga. Hann er 19 ára, skrifar á ensku og fínnst gaman að tónlist. íþróttum og náttúruferðum. Hann svarar öllum bréfum. Björk Vilhelmsdóttir, Héraðsskólanum Reykholti, Borgarfirði, 511 Borgarnesi, óskar eftir að skrifast á við stráka á öllum aldri. Hún er sjálf 16 ára. Áhugamál hennar eru allt milli himins og jarðar. F.lva Sigurðardóttir, Aski, S-Múl., 765 Djúpavogi, óskar eftir pennavinum á aldrinum 16-20 ára. helst í Grundarfirði. Bolungarvik og Borgarnesi. Agnes Karen Sigurðar, Háeyrarvöllum 46, 820 F.yrarbakka, langar til að skrilar t á við stráka eða stelpur á aldrinum 14-16 ára. Sjálf er hún 15 ára. Mynd fvlgi með fyrsta bréfi. Sigríður Björnsdóttir, Háeyrarvöllum 34, 820 Eyrarbakka, hefur áhuga á að skrifast á við stráka eða stelpur á aldrinum 1415 ára. Hún er sjálf 14 ára. Mvnd fylgi fyrsta hréfi. Birna Sveinsdóttir, Hólabraut 27, 545 Skagaströnd, A-Hún„ og Vala Rós Ingvarsdóttir, Bogabraut 16, 545 Skagaströnd, A-Hún„ eru 12 og 13 ára stelpur sem langar til að eignast penna- vini á aldrinum 12-14 ára. Áhugamál þeirra eru iþróttir. diskótek. sætir strákar og margt fleira. Raymond .1. Swinger, 102 Springcrest Dr. Hightstown, N. J. 08520 USA er 24 ára og hefur áhuga á að skrifast á við íslenskar stúlkur. Áhugamál hans eru ferðalög og fleira. Leiðrétting vegna blánefjunnar hans Steingríms. Þá meinlegu villu er að finna í myndatexta i viðtalinu við Steingrím Hermannsson i 6. tölublaði að hann hafi veitt blánefju við Surtsey. Það sanna i málinu er hins vegar að hann veiddi blánefju þessa við Bahama- eyjar, og biðjum við afsökunar á þessum mistökum. . . . því þetta er 10. bréfið Kæri Póstur. Við erum hérna tvær óþolin- móðar sem viljum fá að vita af hverju við höfum ekki fengið svar við fyrri bréfum. því þetta er 10. bréfð. En við viljum vita hvort það þurfa alltaf að koma plaköt af vinsælustu hljómsveitunum. Af hverju er ekki hægt að koma með plakat af uppáhaldshljómsveit- inni okkar, The Cars. og einnigeitthvað um hvern meðlim fyrir sig? Vonum að Pósturinn geti gert eitthvað í því. 2 earsfan. P.S. Vonum að ruslakarfan sé ekki svöng í þetta sinn. Því miður, þessi 10 bréf ykkar hljóta að eiga þátt í óhóflegri aukningu líkamsþyngdar Helgu undanfarna mánuði og nú er svo komið að hún verður að taka sig á. Ef svo heldur fram sem horfir getur farið svo að botninn rifni frá hliðum og það er meiriháttar lífsháski fyrir ruslafötur. En þið njótið góðs af megruninni og sleppið í gegnum hreinsunar- eldinn í þetta sinnið. Beiðni ykkar um piakat og frásögn af hljómsveitinni Cars er hér með komið á framfæri við rétta aðila. Hvað finnst þér? Kæri Póstur. Mig langar til að skrifa pabba mínum sem ég hef aldrei séð. Ég veit heimilisfangið hans. En ég er á báðum áttum hvort ég á að skrifa honum. Hvað fnnst þér? Takk fyrir birtinguna. Ein ráðvillt. Til þess að geta ráðlagt þér eitthvað verður Pósturinn að vita meira um málavexti, hvernig á því stendur að þú hefur ekkert samband haft við föður þinn og ýmislegt annað því tengt. En þó getur Pósturinn ekki stillt sig um að spyrja eins: Getur þú ekki rætt þetta við móður þína? Hún hlýtur að geta hjálpað þér í þessu máli, sem er henni meira en lítið skylt. Hvaða leið sem þú velur er þér eftir sem áður opin sú leið að skrifa Póstinum aftur og biðja um aðstoð, en láttu fleiri upplýsingar fylgja í það sinnið. abriel höggdeyfar eru gæða- vörur á mjög hagstæðu verði G.S. varahlutir Ármúla 24 — Sími 36510 8. tbl. Vikan 63

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.