Vikan - 21.02.1980, Blaðsíða 63
Við hjónin
kunnum lítið
í kynlífi
Kæri Póstur.
Mig vantar dálitla aðstod.
Þannig er málið va.xið að við
hjónin kunnum lítið í
kynlíftnu. Getur þú ekki geftð
okkur upplýsingar um hvar
hœgt er að fá bók sem sýndar
eru i myndum og máli alls
konar samfarastellingar og
svoleiðis?
Jæja. ég vona að þetta bréf
lendi ekki í ruslakörfurmi.
Ein ófróð.
Bókaútgáfan Örn og Örlygur gaf
á síðasta ári út bókina Sjafnar-
yndi, sem fjallar einmitt um
þetta efni. Líklega myndi þér
nægja að hringja og biðja um
bókina í póstkröfu. Á flestum
bókasöfnum eru ýmsar bækur
um kynferðismál og þú ættir að
athuga hvort þú getur ekki
fundið eitthvað um þetta í bóka-
safninu í þinni heimabyggð.
Hafðu ekki miklar áhyggjur af
þessu, því í þessu efni sem
öðrum þurfa menn að öðlast
reynslu og hana öðlast menn
með því að sýna hvor öðrum
skilning og tillitssemi.
Pcnnavinir
Jóhanna Pálsdóttir, Gilsbakka 24, 710
Sevðisfirði, óskar eftir að skrifast á við
stelpur og stráka á aldrinum 12-14 ára.
Hún er sjálf 12 ára. Áhugamál hennar
eru margvísleg. Mynd fylgi fyrsta bréfi
ef hægter.
Alfa og Dadda, Hlíðartúni 17, 780
llófn Hornafirði, óska eftir pennavinum
á aldrinum 14-16 ára, helst strákum.
Áhugamál: skiði. diskótónlist. böll. sætir
stráka og Ijótir lika. ef þeir eru skemmti
legir. og svo auðvitað hestar.
Carl Sheeler, 5107 Cross Field Court
ap. 6, Rockville, Maryland 20852, USA
óskar eftir að komast i bréfasamband við
íslendinga. Hann er 19 ára, skrifar á
ensku og fínnst gaman að tónlist.
íþróttum og náttúruferðum. Hann
svarar öllum bréfum.
Björk Vilhelmsdóttir, Héraðsskólanum
Reykholti, Borgarfirði, 511 Borgarnesi,
óskar eftir að skrifast á við stráka á
öllum aldri. Hún er sjálf 16 ára.
Áhugamál hennar eru allt milli himins
og jarðar.
F.lva Sigurðardóttir, Aski, S-Múl., 765
Djúpavogi, óskar eftir pennavinum á
aldrinum 16-20 ára. helst í Grundarfirði.
Bolungarvik og Borgarnesi.
Agnes Karen Sigurðar, Háeyrarvöllum
46, 820 F.yrarbakka, langar til að
skrilar t á við stráka eða stelpur á
aldrinum 14-16 ára. Sjálf er hún 15 ára.
Mynd fvlgi með fyrsta bréfi.
Sigríður Björnsdóttir, Háeyrarvöllum
34, 820 Eyrarbakka, hefur áhuga á að
skrifast á við stráka eða stelpur á
aldrinum 1415 ára. Hún er sjálf 14 ára.
Mvnd fylgi fyrsta hréfi.
Birna Sveinsdóttir, Hólabraut 27, 545
Skagaströnd, A-Hún„ og Vala Rós
Ingvarsdóttir, Bogabraut 16, 545
Skagaströnd, A-Hún„ eru 12 og 13 ára
stelpur sem langar til að eignast penna-
vini á aldrinum 12-14 ára. Áhugamál
þeirra eru iþróttir. diskótek. sætir
strákar og margt fleira.
Raymond .1. Swinger, 102 Springcrest
Dr. Hightstown, N. J. 08520 USA er 24
ára og hefur áhuga á að skrifast á við
íslenskar stúlkur. Áhugamál hans eru
ferðalög og fleira.
Leiðrétting vegna
blánefjunnar hans
Steingríms.
Þá meinlegu villu er að finna í
myndatexta i viðtalinu við Steingrím
Hermannsson i 6. tölublaði að hann
hafi veitt blánefju við Surtsey. Það
sanna i málinu er hins vegar að hann
veiddi blánefju þessa við Bahama-
eyjar, og biðjum við afsökunar á
þessum mistökum.
. . . því þetta er
10. bréfið
Kæri Póstur.
Við erum hérna tvær óþolin-
móðar sem viljum fá að vita af
hverju við höfum ekki fengið
svar við fyrri bréfum. því þetta
er 10. bréfð. En við viljum
vita hvort það þurfa alltaf að
koma plaköt af vinsælustu
hljómsveitunum. Af hverju er
ekki hægt að koma með
plakat af uppáhaldshljómsveit-
inni okkar, The Cars. og
einnigeitthvað um hvern
meðlim fyrir sig?
Vonum að Pósturinn geti
gert eitthvað í því.
2 earsfan.
P.S. Vonum að ruslakarfan sé
ekki svöng í þetta sinn.
Því miður, þessi 10 bréf ykkar
hljóta að eiga þátt í óhóflegri
aukningu líkamsþyngdar Helgu
undanfarna mánuði og nú er svo
komið að hún verður að taka sig
á. Ef svo heldur fram sem horfir
getur farið svo að botninn rifni
frá hliðum og það er meiriháttar
lífsháski fyrir ruslafötur. En þið
njótið góðs af megruninni og
sleppið í gegnum hreinsunar-
eldinn í þetta sinnið. Beiðni
ykkar um piakat og frásögn af
hljómsveitinni Cars er hér með
komið á framfæri við rétta aðila.
Hvað finnst
þér?
Kæri Póstur.
Mig langar til að skrifa
pabba mínum sem ég hef aldrei
séð. Ég veit heimilisfangið
hans. En ég er á báðum áttum
hvort ég á að skrifa honum.
Hvað fnnst þér?
Takk fyrir birtinguna.
Ein ráðvillt.
Til þess að geta ráðlagt þér
eitthvað verður Pósturinn að
vita meira um málavexti,
hvernig á því stendur að þú
hefur ekkert samband haft við
föður þinn og ýmislegt annað
því tengt. En þó getur Pósturinn
ekki stillt sig um að spyrja eins:
Getur þú ekki rætt þetta við
móður þína? Hún hlýtur að geta
hjálpað þér í þessu máli, sem er
henni meira en lítið skylt.
Hvaða leið sem þú velur er þér
eftir sem áður opin sú leið að
skrifa Póstinum aftur og biðja
um aðstoð, en láttu fleiri
upplýsingar fylgja í það sinnið.
abriel
höggdeyfar
eru
gæða-
vörur
á mjög
hagstæðu
verði
G.S.
varahlutir
Ármúla 24 — Sími 36510
8. tbl. Vikan 63