Vikan - 17.04.1980, Page 4
Vikuspjall
ÞAÐ ER EKKI
ERFITT AÐ
STANDA MEÐ
GUNNARI
Um fáa menn hefur staðið jafnmikill
styrr að undanförnu í íslensku þjóðlífi
eins og dr. Gunnar Thoroddsen, sem
eftir langa og stranga stjórnarkreppu tók
loks af skarið og myndaði ríkisstjórn. Og
hvemig bitnar sá moldreykur, sem óhjá-
kvæmilega hlýtur að þyrlast upp er um
sllk stórmál er að ræða, á hinum
nánustu?
Við spurðum eiginkonu Gunnars, frú
Völu Ásgeirsdóttur, hver viðbrögð
hennar hefðu verið:
— Auðvitað hef ég tekið nærri mér
ýmislegt sem sagt hefur verið og skrifað
um Gunnar að undanförnu. Þar er oft
farið með rangt mál og honum gerðar
upp alls kyns sakir. Slíkt er alltaf
særandi. Annars er Gunnar þannig
maður að það er ekki erfitt fyrir
manneskju, sem þekkir hann jafnvel og
ég, að standa með honum. Hann tekur
öllu með ró og er ákaflega heilsteyptur í
þvi sem hann gerir.
— Nú var faðir þinn, Ásgeir
Ásgeirsson, líka stjórnmálamaður auk
þess sem hann varð síðar forseti Islands.
4 Vikan 16. tbl.