Vikan - 17.04.1980, Blaðsíða 15
Átta stúlkur á aldrlnum
15-19 ára keppa um
titílínn „Fulltrúi ungu
kynslóðarinnar 1980”.
Sigurvegarinn verður
krýndur i Reykfavik i lok
mai nk.
Vikan, HljómplötuútgáSan og ferda-
skrifstofan Úrval hafa tekið höndum
saman um val á fulltrúa ungu
kynslóöarinnar 1980. Glæsileg
verðlaun verða í boði, feröavínningar,
fataúttektir og margt fleira en hæst
hlýtur að sjálfsögðu að bera að sigur-
vegarinn mun halda til Manilla á
Filippseyjum og taka þar þátt í
alheimskeppninni um „Miss Young
International ’80”. Ekki verður
eingöngu dæmt eftir útliti, hvorki hér
né á Filippseyjum, heldur verður
einnig og ekki síður tekið tillit til
hæfileika keppenda sem þeir að sjálf-
sögðu verða að sýna og sanna í
keppninni sjálfri.
íslenskar stúlkur hafa áður tekið þátt
í „Miss Young International” og
stundum náð langt, meira að segja
sigrað einu sinni en það var þegar
Henný Hermannsdóttir fór til Japan
og krækti i fyrsta sætið 1968.
Nokkrum árum síðar varð Helga Eldon
i þriðja sæti i þessari sömu keppni. Við
íslendingar erum þvi ekki að halda á
brattann að þessu sinni heldur að verja
unna titla.
Vikan mun kynna og birta litmyndir
af öllum keppendum, tvær í hverju
blaði, og hefst sú kynning i 17. tbl. sem
út kemur 24- april nk. f næstu þrem
blöðum þar á eftir munu stúlkurnar
svo birtast ein af annarri.
Henný Hermanns tók þátt í keppninni 1968 og það endaði
með því að hún var kosin „Miss Young International” í
Japan sama ár.
16. tbl. Vikan 15