Vikan


Vikan - 17.04.1980, Qupperneq 17

Vikan - 17.04.1980, Qupperneq 17
Þýðandi: Jóhanna Þráinsdóttir honum. Hann vonaði að kaldhæðni ör- laganna hagaði því ekki þannig að barnið erfði útlit hans. Hann langaði til að sýna henni sam- heldni á meðgöngutímanum, færa henni kótelettur á ólíklegasta tíma sólarhrings eöa hlaupa hvenær sem væri út til að kaupa ís. En hún sýndi enga af þessum sigildu duttlungum vanfærrar konu. t stað þess færði hann henni oft blóm, en það hefði honum hér áður fyrr þótt óþarfa rómantík. Jóhanna átti óvenju auðvelt með svefn þó hún væri komin á sjöunda mánuð. Næturnar voru honum mun erfiðari. Hann bylti sér í rúminu milli svefns og vöku, haldinn einhverri Henry i Kramer gegn Kramer: Hvernig fer einstæður faðir að þvi að ala upp bam sitt? Meryl Streep: Móðirin sem þoldi ekki að vera innilokuð á heimilinu undirbúningi: Föt, sængurföt, vöggur, leiktæki, næturlýsingar, vagnar og heppilegt nafn á barnið. Jóhanna átti þó mun auðveldara með að sökkva sér niður í slík smáatriði sem kosti og galla barnastóla. Hvort heppi- legra væri að hafa þá með kúlum á snúru sem bamið gæti leikið sér að eða ekki. Þó að þetta væri fyrsta barn hennar talaði hún þegar um allt þessu viðkomandi af mikilli fagmennsku og Ted fannst að það hlyti að stafa af þvi að það er hverri konu svo eðlilegt að verða móðir. Allt hennar líf snerist um hugtök sem voru honum framandi, eins og burðarkörfur og hlífðargrindur með þroskamyndum. Á meðgöngutímanum keypti Jóhanna allan sinn fatnað í versluninni „Lady Madonna”. Honum fannst nafnið við- eigandi því sjálf var hún fegursta ímynd verðandi móður. Húð hennar glóði, augun ljómuðu og hinn vitri dr. Fisk hafði séð til þess að hún var hin hreinlífa mær í orðsins fyllstu merkingu. Jóhanna Kramer var áberandi falleg kona. Hún var að vísu of lágvaxin, 161 cm, til að vera sýningarstúlka en hún hefði auð- veldlega getað verið leikkona. Hún var grannvaxin, hárið sítt og svart, fíngert nef, stór og brún augu, dálítið barmmikil miðað við önnur hlutföll. Ted kallaði hana „laglegustu stelpuna í öllu ná- grenninu”. Hann var ekki eins öruggur hvað eigið útlit snerti. Sæmilega aðlað- andi maður, 175 cm á hæð, brún augu, hárið ljósbrúnt. En hann var ekki ánægður með nefið á sér. Það var of stórt og hárið var þar að auki farið að þynnast. Hann var það óöruggur með sjálfan sig að honum fannst mest til sin koma þegar Jóhanna var í fylgd með óljóárt; *flögrandi tilfinningu sem hann 'lSíeííkf ajýeg'gert sér grein fyrir. Samkomustaðurinn var brúnt múr- steinshús í Greenwich Village. Kennar- inn hafði fögur orð um að konurnat næðu fullri stjórn á líkama sinum. Það féll í góðan jarðveg. Enginn virtist taka eftir þeirri þversögn sem lá í fullri líkamsstjórn og tiu, úttútnuðum konum, sem sumar hverjar áttu jafnvel erfitt um gang. Hins vegar var hinum verðandi feðrum lofað virkri þátttöku i fæðingu barna sinna. Kennarinn var áhugasöm ung kona i leikfimibúningi, eini kven- maðurinn í hópnum með flatan maga. Mitt í fjörugum samræðum um fylgju var Ted allt í einu farinn að hafa kynóra um hana og þennan flata maga. Hann tók það sem merki þess að draumar hans um afbrigðilega feitar konur væru á enda. Draumamaginn hans tók nú til við að kynna ýmislegt sem olli Ted töluverðri geðshræringu. Hún varpaði skugga- myndum á tjald, þær sýndu þróun fóst- ursins í minnstu smáatriðum. 1 kjölfarið fylgdu svo myndir af nýfæddum börn- um, glaðvakandi mæðrum og feðrum sem Ijómuðu af hamingju. Þetta voru raunveruleg börn, ekki falin í bókum eða kviði mæðra sinna. Ný, sprelllifandi per- sóna i lífi hans. Næsta dag sat hann í matarhléi sínu á tröppum bókasafnsins við 42. götu og hámaði í sig is. Hann var búinn að at- huga hvað það kostaði að auglýsa fæð- ingu bamsins hjá Lord & Taylor en átti eftir að athuga betur verðið á vöggum hjá Saks. Og þá rann allt í einu upp fyrir honum hver þessi óvissa, flögrandi til- finning var. Þetta var hræðsla. Hann var hræddur. Hann óttaðist að Jóhanna mundi deyja. Hann óttaðist að barnið mundi deyja. Hann óttaðist að bæði Jó- hanna og barnið mundu deyja. Hann óttaðist að allt væri í lagi með þau en að hann mundi sjálfur deyja. Hann óttaðist að hann hefði ekki ráð á að sjá fyrir barninu. Hann var hræddur við að taka barnið í fang sér, hann óttaðist að hann mundi missa það. Hann óttaðist að barnið fæddist blint, þroskaheft, lamað, bara með annan handlegginn eða annan fótinn, með of fáa fingur eða valbrá. Hann óttaðist að honum væri ofaukið, að hann yrði ekki góður faðir. Hann sagði Jóhönnu aldrei frá þessum hugs- unum sínum. Hann kaus að vinna bug á þessum ótta sínum með því að afmá hann úr huga sér. Hann ætlaði að feta í fótspor Guðs og hafa stjórn á öllu, ekkert skyldi tilviljun eða vanþekkingu háð. Hann ætlaði að verða best-æfði og best-upp- lýsti faðirinn sem nokkru sinni hafði verið viðstaddur eðlilega fæðingu. Hann einbeitti sér mjög i hinum vikulegu tím- um. Honum fannst sem hann gæti raun- verulega séð inn í iður Jóhönnu með röntgenaugum eins og hvert annað ofur- menni og virt fyrir sér legu barnsins. Þegar Jóhanna tók að finna fyrir aukn- um óþægindum á níunda mánuði reyndist hann henni ótrúlega hjálplegur. Samkvæmt tillögu hans æfðu þau önd- unaræfingarnar saman á hverjum degi. Hann var hinn fyrirmyndar verðandi faðir. Við lok námskeiðsins í eðlilegum fæðingum var sýnd kvikmynd í skóla nokkrum sem sýndi raunverulega fæð' ingu samkvæmt þessum kenningum^ 16. tbl. Vikan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.