Vikan - 17.04.1980, Blaðsíða 21
mér gengur vel í vinnunni. En lífið var
farið að verða nokkuð einhæft. Nú stóð
hún í ástarsambandi við Bill sem var
kvæntur og kom í staðinn fyrir hinn
kvænta Walt frá árinu áður. Hvað
einhleypa menn snerti kom Stan á eftir
Walt. Þar áður var það Jeff sem kom í
staðinn fyrir Michael sem var arftaki
Dons. Ef hún héldi svona áfram til
þrítugs næði elskhugatala hennar
tveimur tylftum. Og það var hærri tala
en hún kærði sig um að þurfa að viður-
kenna. Henni var farið að finnast hún
dálitið auvirðileg og notuð. Hún
tilkynnti Bill, núverandi ástmanni
sínum, að helgarnar væru leiðinlegar án
hans og ögraði honum með þvi að
heimta að hann byði henni heim til
Stamford. Auðvitað var það ekki hægt
svo að þau gerðu það næstbesta úr
málinu — hættu að vera saman.
Ted var ekki næstur. Hún hélt honum
volgum. Þegar hér var komið sögu var
Ted orðinn rúmlega þrítugur. Hann
hafði kynnst mörgum konum en engri til
frambúðar. Hann hafði lokið prófi i
viðskiptafræði frá háskólanum í New
York og það skar honum raunverulega
víðan stakk hvað starfsmöguleika snerti.
Hann fékk sér vinnu sem sölumaður hjá
litlu raftækjafyrirtæki, gegndi sex
mánaða herþjónustu sem varaliðsmaður
og vann í eitt ár sem sölumaður fyrir
heildsala. Hann hafði engan hug á að
ganga inn í fjölskyldufyrirtækið. Faðir
hans rak veitingastofu í stóru verslunar-
hverfi og var síkvartandi: — Ég veð upp
fyrir haus í kjúklingasalati og drasli. Ted
óskaði ekki eftir því hlutskipti fyrir
sjálfan sig. Roskin, lífsréynd kona gaf
Ted það mikilvægasta ráð sem hann
hafði nokkru sinni fengið hvað atvinnu-
val snerti:
— Það eru mistök hjá þér að reyna að
selja vöru. Þú ert ekki nógu frekur.
— Hvað áttu við? spurði hann
auðmjúkur.
— Þú ert greindur. Þú getur selt, en
allt annað en vörur. Það sem þú gætir
selteru hugmyndir.
Nokkrum vikum siðar hafði hún
útvegað honum vinnu við að selja
hugmyndir. Hann seldi auglýsingapláss
fyrir keðju af tímaritum ætluðum
karlmönnum. Slíkur sölumaður þurfti
að vera vel að sér í markaðsöflun og
markaðskönnunum, starfið krafðist
góðrar greindar og Ted, sem bjó yfir
meiri greind en ágengni, naut sín i þessu
starfi.
Loks kom að því að Ted og Jóhanna
fóru á fyrsta stefnumótið eftir sumarið.
Þau neyttu kvöldverðar á veitingakrá í
austurhluta borgarinnar og kvöldið
reyndist það sem kalla mátti á fagmáli
einhleypra: Ósköp skemmtilegt. Þau
voru í biðstöðu. Þau höfðu farið út
saman i borginni en það voru ýmsir sem
höfðu forgangsrétt á undan Ted. Þetta
var eins og biðröð í banka þar sem hver
fær sitt númer: Verðbréfasali, rithöf-
undurogarkitekt. Verðbréfasalinn hafði
allt of miklar áhyggjur af verðbréfunum
sínum, rithöfundurinn var of mikið í
fíkniefnum og arkitektinn talaði allt of
mikið um fyrrverandi vinkonur sinar.
Ted og Jóhanna fóru á stefnumót númer
tvö. Á þessum stríðsvelli einhleypra, þar
sem hvert smáatriði var kannað niður í
kjölinn, var Ted svo heppinn að koma
með tiltölulega gáfulegt bragð. Hann
bauð henni aftur á sömu krána með
þeim orðum að þau hefðu átt þar svo
góða stund saman. Hann gerði mátulegt
grin að þeim heimi einhleypra sem bæði
þekktu svo vel, var ekki jafnópersónu-
legur og kærulaus og Vince, en hann var
listfræðingur sem hafði verið að gera
hosur sinar grænar fyrir henni og hafði
jafnframt tjáð henni að honum væri
svosem alveg sama um hjá hvoru
kyninu hann svæfi. Hann var heldur
ekki jafnvonlaus og Bob frá fjölmiðla
deildinni sem gerði sér lika títt um hana
og var „að þvi kominn að skilja”, stað-
hæfing sem hún þekkti vel eftir samband
sitt viðWalt og Bill.
— Það sem ég sting venjulega upp á
við þær sem ég held að mér liki við . . .,
sagði Ted.
— Sem þú heldur að þér liki við?
— Við höfum nú ekki þekkst svo
lengi. Jæja, ég sting venjulega upp á
helgarferð til Montauk.
— Heldurðu að við þekkjumst nógu
vel til þess?
Það er fallegt þar á haustin og við
gætum kannski komist að því að við
eigum ekkert sameiginlegt.
— Eða þá að við komumst ekki að
öðru en því að hann rignir alla helgina.
— En hugsaðu um allan þann tíma
sem við mundum spara. Og alla þá
peninga sem ég mundi spara.
— Ég skal athuga veðurspána.
Eftir að þau höfðu farið út saman
nokkur kvöld í viðbót spurði hann
aftur og hún samþykkti. Hann leigði bíl
og þau fengu sér herbergi á hóteli í
Montauk. Veðrið var yndislegt og þau
áttu heilmikið sameiginlegt. Þau lágu á
ströndinni vafin teppum og trúðu hvort
öðru fyrir þvi að þau væru orðin þreytt á
lífinu á hinum frjálsa markaði. Að
þessum trúnaðarmálum loknum fóru
þau í rúmið.
Það var ekki svo að skilja að
Jóhanna Stern hefði valið Ted Kramer
alveg sérstaklega fram yfir aðra menn
sem þann eina sem hún vildi giftast. Það
sem var þyngst á metunum var sú
staðreynd að hún hitti hann á þeim tíma
sem hún var þreytt á öllum öðrum
mönnum í lífi sínu og kaus að hitta hann
öðrum mönnum oftar. Á hinum frjálsa
markaði þýddi það að hún mundi gerast
ástmey hans og ekki sofa hjá öðrum á
meðan. Svo að Ted var bara einfaldlega
tímabundin aðalpersóna í lífi hennar
eins og allir forverar hans. Og það sem
olli þvi að enginn kom á eftir honum var
vaxandi óánægja Jóhönnu með lífið á
hinum frjálsa markaði.
Þau eyddu sífellt meiri tíma hvort i
annars íbúð. Þau bjuggu að vísu ekki
saman — en þetta var þó meira en
venjulegt viðhald. Ted fannst hann hafa
unnið hæsta vinninginn i
happdrættinu: Hún starfaði við svipuð
mál og hann og þekkti þau vel, hún var
enginn fávís heimalningur á hinum
frjálsa markaði. hún var óvenju lagleg,
stjarna i hverju strandpartiiog hanastéls-
boði — og þessi kona var vinkona hans.
Það voraði, en sá árstími er ávallt
hættulegastur. Jóhanna fann hvernig
ástarþráin fór á stjá í lendum hinna giftu
framkvæmdastjóra sem vildu gjarnan
eiga aðgang að einhverri skrifstofu
stúlkunni þrátt fyrir dyggilegar helgar-
ferðir sínar með konu og krakka. Ted
var beðinn um að velja sér sumar
leyfisdaga.
— Við þurfum að taka alvarlega
ákvörðun varðandi samband okkar.
sagði hann og andartak óttaðist Jóhanna
að hann ætti við enn fastari skorður á
sambandi þeirra. Hún var enn ekki
tilbúin til þess.
— Ég er að fara i tveggja vikna
sumarleyfi. Viltu eyða því með mér?
— Já, þvi ekki það?
— Larrý er að smala saman hópi i
hús. Við gætum fengið herbergi og verið
þannig saman i tvær vikur í viðbót við
helgarnar.
Þau höfðu hvorugt verið á Fire Island
né nokkrum sambærilegum sumarleyfis-
stað áður i fylgd með föstum förunaut.
— Það gæti verið gaman.
Framhald í næsta blaöi.
16. tbl. Vlkan 21