Vikan - 17.04.1980, Side 25
/Haselbach sam bandaríska skipið
Absencon fann á lifi í
björgunarbátnum Pamir 2.
anna verða sjóveikir. Og þeir vita líka aö
þeir munu ekki halda þetta út mjög
lengi, í hæsta lagi 2-3 daga.
En strax í birtingu næsta morgun
verða þeir varir við leitarljós.
— Skip, hrópar Dummer. — Skip!
Mennirnir stökkva allir á fætur og
veifa. — Hingað. Hjálp, hjálp!
Þegar næsta alda hefur þá upp á arma
sér sjá þeir skipið. Þeir sjá meira að segja
nafnið á hliðinni: Taylor forseti. Þeir
hrópa eins hátt og kraftar leyfa. En
brimið kæfir raddir þeirra. Sér til
skelfingar sjá þeir að skipið fjarlægist
aftur.
Tveir menn missa stjórn á sér og
stökkva fyrir borð. Þeir ætla að synda á
eftir skipinu.
— Snúið við, æpir Dummer. — Eruð
þiðgengniraf vitinu?
Þeir hlýða ekki kallinu og Dummer
stekkur í sjóinn á eftir þeim ásamt
hásetanum Hans Georg Wirth. Þeim
tekst að draga þá aftur um borð.
En það ber engan árangur. Næsta
morgun eru mennirnir báðir látnir.
Báturinn lekur, hefur safnað i sig um 50
cm af vatni og hinir örmagna menn
drukkna í því um nóttina.
Um hádegisbil heyra þeir til flugvéla.
En flugmennirnir sjá þá ekki. Skip-
brotsmennirnir eru að farast úr þorsta,
varir þeirra sprungnar og tungan
bólgnarí munninum.
Tveir mannanna standast ekki mátið
og drekka sjó. Hann brennir bæði munn
þeirra og maga og þeir æpa af kvölum.
Síðan fá þeir ofskynjanir. Þeir sjá fyrir
sér land með trjám og uppsprettuvatni.
Þeir steypa sér æpandi í hafið án þess að
félagar þeirra fái rönd við reist.
Þriðja daginn stekkur hásetinn Klaus
Diebold fyrir borð. Hann hefur misst
vitið og ætlar að synda til Englands —
sem er i 4000 km fjarlægð.
Tveimur tímum seinna, að morgni
hins 23. september, finnur bandaríska
skipið Saxon björgunarbát númer fimm
frá Pamir. Eiginlega er ekkert eftir af
rogeR.Gallet
PARI S
Lúxus badvðrur
hksim
á klandi
IHfTRV/y
cJémeriókci "
Síml82700
honum nema flotholtin þar sem
mennirnir sitja í vatni upp að mitti.
Björgun þessar fimm manna er talin
kraftaverk. Og þennan sama dag skeður
enn eitt kraftaverkið. Bandaríska
varðskipið Absencon finnur björgunar-
bát númer 2 frá Pamir. Hann er hálf-
fullur af vatni en við borðstokkinn húkir
hásetinn Giinther Haselbach. Hann er
enn á lífi en við hliðina á honum liggur
messadrengurinn látinn.
Aðeins sex menn hafa lifað þetta slys
af. Blöð í Þýskalandi birta dánartilkynn-
ingar hinna og í einni þeirra getur að
lesa: Við beygjum okkur undir vilja æðri
máttarvalda...
En sjóréttinum i Lubeck finnst þetta
ekki nægileg skýring. Hann álítur að
Pamir hefði ekki þurft að farast. 80
manns hefðu ekki látið þarna lifið ef
reyndari skipstjóri hefði haldið um
stjórnvölinn . . . ef byggið hefði verið
lestað í pokum en ekki í lausamáli. . . ef
sjórinn hefði ekki getað brotið sér leið
inn um svo mörg op sem hefði mátt loka
Pamir fórst vegna mannlegra niistaka
en ekki af völdum æðri máttarvalda.
Nú stendur björgunarbáturinn Pamir
2, sem barg lífi hásetans Giinthers
Haselbachs, í Jakobskirkjunni í Lubeck.
Og á hverjum jólum hengja ættingjar
kransa á hann til minningar um hina
látnu sjómenn. Og i kringum hann
brenna hundruð kerta.
tvöföld vemd
í24tíma!
T
* ^
>1NTll
PERSPIR4NT
DRY
Admiral svitavárinn
veitir þér tvöfalda vernd.
Hann hefur bæói hemil
á svita og evóir Ivkt
i 24 tima samfleytt.
ADMIRAL. SVITAVARI
fæst bæöi á
spraybrúsum: -
ADMIRAL DRY
og á kúluflöskum:
ADMIRAL ROL.L-ON.
liBAUCAL
i