Vikan - 17.04.1980, Page 36
SVEFN-
POKAR
Svefnpokar eru mesta þarfaþing og góður poki
getur fylgt eiganda sínurn alla ævi. Það ber því að
vanda valið vel þegar kaupa á poka. Hægt mun
að fá dúnpoka, ullarkembupoka og fiber-,
polyester- og dralonpoka. Fleiri gerviefni sem
notuð eru kunna að vera til. Við skulum aðeins
huga að því helsta sem hafa skal í huga þegar
farið or á stúfana til að kaupa góðan svefnpoka.
Það getur verið jafnbagalegt að
liggja og svitna i allt of hlýjum
svefnpoka eins og að skjálfa í allt
of þunnum og lélegum poka.
Svefnpokinn þarf að vera
hæfilega þykkur og hlýr til að
henta við sem flest tækifæri.
Segjum nú að við kaupum
okkur dúnpoka. Hann er
dásamlega hlýr og þægilegur,
þegar hitinn er viðfrostmark, en
óþolandi heitur þegar hitinn fer
upp fyrir 15 stig. En ekki þurfum
við Frónbúar að búast við slíkum
hlýindum til jafnaðar. En þeim
sem ætla sér t.d. að ferðast til
útlanda að sumri og eyða þar
sinu leyfi í tjaldi skal eindregið
ráðiðfrá því aðdragast með
dúnpoka. Það er best að taka
meðsér poka úr gerviefni,
léttan og ekki of þykkan. Þeir
eru lika margfalt ódýrari og
síður freisting fyrir þjófa.
öræfin eða Grikkland
Flestir munu nú átta sig á því
að það er ekki sama hvort maður
ætlar að sofa i pokanum sínum
uppi á reginfjöllum á norður-
hjara veraldar eða í tjaldi suður í
Grikklandi. Það eru reyndar
varla margir sem héðan fara til
útlanda með það í huga að
ferðast ódýrt og liggja í tjaldi, en
þeir fáu sem slíkt gera mega vita
að best mun að skilja fjalla-
pokann eftir heima.
Þeir svefnpokar sem fást hér i
islandi eru bæði fluttir inn og
saumaöir hér á landi. islensk
framleiðsla gefur erlendri ekkert
eftir og sjálfsagt að hugsa um
það þegar poki er keyptur hvort
ekki megi styðja íslenskan iðnað
um leið. Ullarkembupokar, dún-
pokar og dralonpokar eru helstu
gerðir sem um er að ræða. Svo
kemur til mismunandi lag
pokans, lengd, ytra byrði og
þykkt.
Skátabúðin hefur mikið og gott
úrval upp á að bjóða og þar er
reynsla verslunarfólksins mjög
góð. Má óhikað treysta ráðlegg-
36 Vikatt 16. tbl.