Vikan - 17.04.1980, Qupperneq 39
m
7?/
var ég á þessum tíma ansi
myndarlegur maður og hug-
myndaríkur í sama mæli. Því hófst
ósjálfrátt ráðabrugg í ástföngnum
kolli mínum — ég byrjaði að
skipuleggja flótta. Ég var
ákveðinn í að nema mína heitt-
elskuðu á brott, fara með hana
alla leið til Ástralíu og giftast
henni þar. En foreldrar hennar
voru á varðbergi. Þau settu
aukalás á herbergið hennar og
bönnuðu henni í þokkabót að
fara ein út á kvöldin. Því var
ekki um neitt annað að ræða en
að ná henni með einhverjum
ráðum út um herbergis-
gluggann, bera hana á sterkum
örmum mínum niður stigann og
hverfa á braut til fyrirheitna
landsins — Ástralíu. Ég gerði
lokatilráun tíl að.tala um fyrir
móðursjúkum föður hennar, en
hann...
— Já en frændi, ég var bara
að spyrja um hvar þú hefðir hitt
frænlcu í fyrsta skipti?
— Ég er alveg að koma að
því, Viggó minn. Vertu bara
rólegur og láttu mig um söguna!
Hvert vorum við komnir? Jú,
pabbi hennar henti mér niður
stigann, alla leið ofan af þriðju
hæð, með þeim afleiðingum að ég
braut í mér þrjú rifbein þegar ég
lenti á eldavél sem verið var að
bera inn í húsið. En ég lét ekki
deigan síga, varð mér úti um
koffort, pakkaði jiiður og fékk
lánaðan stiga. Allt eins og það
átti að vera. Það var kyrrt
ágústkvöld, stjörnuheiður
himinn. Ég læddist með stigann
í átt að gráa húsinu þar sem
elskan mín sat og beið við
gluggann á þriðju hæð með
öndina í hálsinum og beið...
— Eftir riddaranum sinum,
skaut María inn i.
— Ég reisti stigann upp að
veggnum og byrjaði að klifra
upp. Þá uppgötvaði ég mér til
mikillar skelfingar að stiga-
fjandinn var allt of stuttur —
hann náði ekki nema upp á aðra
hæð. Þarna stóð ég í stiganum
með rándýra farseðlana í
vasanum og það var ekki nema
rúmur hálftími þangað til skipið
léti úr höfn. Þetta voru þær
ömurlegustu kringumstæður
sem ég nokkru sinni hafði ient
í.
— Hvernig fórstu að því að
bjarga þessu við, frændi?
Klifraðir þú það sem eftir var
upp á þriðju hæð?
— Onei, nei, litli vinur, það
var ómögulegt! En í gegnum
gluggann á annarri hæð sá ég
frænku þína í fyrsta skipti!
Þýð.: ej
/ ...........
FÉLAG
ÍSLENZKRA
HLJÓMLISTAR
MANNA
útvegar yður
hljóðfœraleikara
og hljómsveitir
við hverskonar
tækifœri
Vinsamlegast
hringið í
20255
milli kl. 1 og 5
® Bulis
16. tbl. Vikan 39