Vikan - 17.04.1980, Side 40
Myndlist
Hann ákvað strax i æsku að gerast
myndlistarmaður. Fór í Handíða-
skólann strax og aldur leyfði og 17 ára
var hann kominn til Kaupmannahafnar
til að læra meira. 1 dag hanga verk hans
á hundruðum íslenskra heimila enda
hefur Pétur Friðrik algerlega getað
helgað sig myndlistinni undanfarin 15
ár. Hann býr í stóru einbýlishúsi úti á
Arnarnesi og virðist vera alger andstæða
þeirra listamanna sem stöðugt lepja
dauðann úr skel. Pétur vill ekki taka
undir það að fólkið á Arnarnesinu sé
eitthvað fínna en fólk sem býr annars
staðar: — Ætli fólkið sem býr hérna sé
nokkuð fínna en fólkið sem býr á
Flötunum hér fyrir ofan, segir Pétur. Ég
var svo heppinn, eða óheppinn, að fá
þessa lóð hérna fyrir mörgum árum og
byggði þetta hús á löngum tíma. Aftur á
móti er allrar athygli vert að svo virðist
sem sumt fólk sé öfundsjúkt út 1 mig
vegna þess eins að ég skuli búa hérna.
Ýmsir menn, sem ég taldi vera
kunningja mína, eru hættir að tala við
mig eftir að ég flutti hingað. Það er rikt í
mannskepnunni að öfunda náungann og
í fámenni eins og hérna kemur þessi
eiginleiki skýrar i ljós.
,JÞaö er einhver
ímynduð speki úr
kollegum mínum,,
Nú virðist það skoðun sumra að Pétur •
Friðrik sé aðallega í því að fjölda-
framleiða landslagsmálverk fyrir list-
elska góðborgara — og það ekki af litlu
kappi. Hvað segir Pétur við því?
— Það er einhver ímynduð speki frá
kollegum mínum hér I bænum ef þeir
halda að ég sé að mála málverk
eingöngu til að selja. Ég hef verið
duglegur að vinna, hef verið heilsu-
hraustur og hef þvi getað unnið mikið,
það gerir gæfumuninn. En að ég sé að
hugsa um peninga þegar ég mála, það er
af og frá. Ég hef aldrei hugsað um
peninga á meðan ég vinn að mynd og
hef aldrei unnið mynd með því hugarfari
að síðar skuli hún seld hæstbjóðanda.
Hitt er aftur á móti allt annað mál ef
einhver vill kaupa af mér mynd. Ég
mála eitthvað á hverjum degi og hef af
því mikla gleði. Þetta er mér ástríða og
ef ég ekki gæti málað þá liði mér illa.
— Hvers konar fólk kaupir myndirnar
þínar?
— Það veit ég ekkert um, það er alls
konar fólk. Hvorki ríkt né fátækt. Ungt
fólk sem er að koma sér fyrir kaupir af
mér myndir með afborgunum líkt og
aðrir kaupa sér isskáp og svo eru það
safnararnir. Ég held að allir málarar hafi
40 Vikan 16. tbl.