Vikan - 17.04.1980, Qupperneq 44
Framhaldssaga
Erlent:
og í gegnum hugarrótið hjá Peter gat
hann ekki annað en vorkennt Chris.
Maðurinn var auðsjáanlega ástfanginn
af Janet.
Þegar Chris var farinn fylgdi Peter
Janet að dyrum íbúðar hennar.
Hún sneri sér að honum. Hún hafði
einnig verið að hugsa um það sem hún
hafði sagt. Það gat hann séð á roðanum
í kinnum hennar.
Áður en hann gat stöðvað sig tók
hann utan um hana og kyssti hana. Hún
þrýsti sér að honum augnablik, síðan
losaði hún sig úr faðmlögum hans og
brosti.
„Góð nótt, Janet,” sagði Peter
blíðlega.
„Það er gestur til þín, frú Collins.
'X-
Fyrirgefðu hvað ég var vond við
þig i morgun!
I leitað
lífsiafa
Hann spurði hvort þú gætir hitt sig
niðri í ganginum” Unga hjúkrunar-
konan virtist vera móð.
„Gestur? Núna?” Janet leit á úrið sitt.
Klukkuna vantaði aðeins fimmtán
mínútur í níu. Hún var inni á stofunni
hjá Karen sem var einmitt nýbúin að
borða morgunverð.
Janet gretti sig. „Hver það?”
„Hr. Jennings,” sagði hjúkrunar-
konan. „Ég sagði honum að hann gæti
ekki komið upp núna en hann hélt á-
fram að biðja um að hitta þig svo að
lokum...”
„Það er allt í lagi. Ég fer niður og hitti
hann.”
thris stóð fyrir utan glerhrðina við
stigauppganginn. Hann stófð þarna
stífur og sneri bakinu i hana þar sem
hann starði út í umferðina.
Janet opnaði einar dyrnar. „Chris?”
Hún fann fyrir ákveðnum ugg.
Hann sneri sér við. Augnablik starði
hann þegjandi á hana og hún tók eftir
(því að hann var reiður.
C,,Mér þykir fyrir að þurfa að tefja þig
frá Ka'ren,” sagði'hánrt'stuttlega og
augnaráð hans var hart.
„Það er allt í lagi í smátíma. Chris,
mér þykir fyrir því sem ég sagði i gær-
kvöldi... hvernig ég sagði... ”
Hann starði þegjandi á hana.
„Chris Hvaðerað?"
Hann talaði hægt, „Ég hef mikið að
gera í dag. Ég get þvi ekki varið þessum
degi í það sem ég sjálfur vildi. En ég verð
að segja þér það núna að þú munt aldrei
giftast þiessum Ástralíumanni!”
Reiði hennar varð undruninni yfir-
sterkari. „Þú komst hingað til að segja
mér það? Ég held að þú hljótir að vera
búinn að missa glóruna! Ég hef ekki
hugmynd um hvort við munum giftast
eða ekki en það síðasta sem ég get
hugsað mér í bili er að eyða tíma mínum
í að rífast við þig um það.”
Hann hristi höfuðið. Það var eitthvað
óeðlilegt við að hann skyldi ekki missa
stjórn á sér, eins og hún hafði gert.
„Þú munt ekki giftast honum,”
endurtók hann.
Hún setti hökuna fram. „Og hvað á
aðstöðva mig?”
„Ég!” Hann teygði fram handlegginn
og hönd hans hvíldi á hurðarhúninum.
Hann beygi sig yfir hana. „Ég ætla mér
að koma i veg fyrir það, hvernig svo
sem ég get farið að því!”
Framhald í næsta blaði.
Örlítið
af sápuog...
Við rákumst á þessa mynd i ensku
timariti og fylgdi hún grein sem fjallaði
um ferðamöguleika útlendinga á
landinu bjarta. Myndin á víst að sýna
Geysi í miklum ham en ekki sjáum við
betur en myndin sé tekin í Eyjagosinu. 1
myndartexta segir að þetta sé hinn ógur-
legi Geysir sem allir aðrir hverir í veröld-
inni séu nefndir eftir. Bara að setja
smávegis sápu í holuna . . . og þá leggst
heilt byggðarlag i eyði.
Geysir i miklum ham.
Labbakútarnir
by Bud Blake
44 Vlkan X*. tbl.