Vikan - 17.04.1980, Síða 45
VEL
LAUNAÐ
STARF
Megan Marshack er ekki algengt
nafn og það voru líka nokkuð undar-
legar kringumstæður sem ollu þvi að
nafn hennar komst á allra varir. Það
var hún sem var hjá Nelson
Rockefeller nóttina sem hann fékk
hjartaáfalliðsem leiddi hann til dauða.
Enn hefur ekkert sannast með það
hvort Megan, sem þá var 25 ára, var
ástmær hins aldna milljónamærings
eða hvort vera hennar þarna var bara
tilviljun. Hins vegar er sannað mál að
Rockefeller greiddi henni rúma milljón
i kaup — hæstu laun sem um getur
fyrir einkaritara, jafnvel í Bandarikj-
unum. Þar að auki lánaði hann henni
25 milljónir til að kaupa sér íbúð.
Megan Marshack hvarf frá New York
eftir dauða Rockefellers og lét ekki
sjá sig þar i heilt ár. En nú er hún
komin þangað aftur og vinnur nú sem
blaðafulltrúi fyrir Alexander Cohen
sem stendur fyrir leiksýningum á
Broadway. Og hann borgar henni bara
venjuleg einkaritaralaun: um 700.000
kr. á mánuði.
^
Sjá hér hve illan
endi fær
Það eru oft langar biðraðir' fyrir
framan tryggingastofnunina í New
York af fólki sem er að biða eftir
atvinnuleysisbótum. Og nýlega sást
þar kona sem fyrir fáeinum árum gat
sér vafasama frægð fyrir leik sinn i
einni mestu klámmynd allra tíma,
Djúpt i hálsi. Nú er frægðin fyrir bi og
leikkonan, Linda Lovelace. svo fjár-
vana að hún verður að leita til hins
opinbera sér til framfæris.
Linda Lovelace: Komin á hæinn.
Annars hyggst hún höfða mál á
hendur framleiðendum kvikmyndar-
innar fyrir að hafa dáleitt sig til að
taka þátt i djörfustu senunum. Og
þykir mörgum þar heldur seint i
rassinn gripið...
Rockefeller: Há laun...
fvrir einkaritarann, Megan
Marshack.
albert SKEPPSHULT-hjólin frá
L
ERU SÆNSK GÆÐAHJÓL
Kvenmannshjól og karlmannshjól, 2 stærðir.
Vönduð hjól f yrir vandláta kaupendur.
HAGVÍS
P.O.box 85, Garðabæ, sími 410 68
SENDUM í PÓSTKRÖFU
HVERT Á LAND SEM ER
Glæsi/egt úrval
af GÓLFDÚKUM
SÍMI
33070
16. tbl. Vlkan 4*