Vikan


Vikan - 17.04.1980, Qupperneq 62

Vikan - 17.04.1980, Qupperneq 62
Pósturinn Allt um Bjögga Hæ Póstur! Við erum hérna þrjár algjörir aðdáendur Bjögga (Björgvins Halldórssonar). Er ekki hægt að Já Vikuna með plakati af Bjögga senda í póstkröfu? Ef það er hægt þá megið þið alveg senda okkur þrjár Vikur, eina á mann. Hvaða mánaðardag er hann fæddur og hvar á hann heima? Bæ, bæ. Þrjár sveitó. Einmitt núna, í þessu blaði, birtum við ítarlegt viðtal við popparann Björgvin Halldórs- son. Þar finnið þið flest um kappann, ásamt myndum að sjálfsögðu. Ef þið hafið áhuga á að fá gamlar Vikur með myndum og plakati af poppgoðinu skuluð þið hafa samband við okkur hér á Vikunni og biðja um blöðin í póstkröfu. Grátt hár á höfði Kæri Póstur! Ég á við himinhátt vandamál að stríða sem er alveg að fara með taugarnar í mér. Ég er dökkhærð með frekar þykkt hár og hef aldrei þurft að hafa neinar áhyggjur af því. (Ég er 18 ára.) En nú ber svo til að ég er farin að finna eitt og eitt GRA TT hár í hausnum á mér! Finnst þér þetta ekki alveg ferlegt? Er ekki grátt hár merki um elli? Er ég að eldast um aldur fram? Ég er alveg í rusli yfir þessu og sé mig í anda í Vikunni á 20 ára afmælis- deginum mínum: Viðtal við unga en gráhærða stúlku! Og finnst þér að ég ætti að fara til læknis út af þessu? Með von um gott svar, fljótt, áður en ég fer alveg yfir um úr áhyggjum! Ein gráhærð! Grátt hár þarf ekki að vera merki um elli og þú skalt hafa það í huga að grá hár eru í höfði flestra en eru einungis mikið meira áberandi hjá þeim sem eru með dökkt hár og grófgert. Háraliturinn hefur sáralítil tengsl við annað líkam- legt ástand og þótt þú yrðir alveg gráhærð fyrir þrítugt (en þess finnast dæmi) þyrfti það ekki að merkja að líkamlega værir þú farin að bera einhver ellimörk. Það er nokkuð misjafnt hversu lengi menn halda hárlitnum, sumir verða fljótt gráhærðir en aðrir jafnvel aldrei. Þótt þú hafir fundið örfá hár í höfðinu með þessum gráa blæ er ekki þar með sagt að þú sért að grána að ráði og því getur þú andað léttara um sinn. Tíminn leiðir þetta í ljós og ef gráu hárunum fjölgar um of er ekki nokkur vandi að hylja það með hinum ýmsu hárlitunarefnum. Það er því miður hætt við að læknir geti lítið gert til hjálpar. Fræðsla um Ghana Kœri Póstúr. Þökkum gott efni í Vikunni. Þannig er mál með Hænurnar gagga í takt.. Halló Póstur. Mig langar til að koma með fyrirspurn og ég vona að þú hlæir ekki að mér. Það er alltaf verið að tala um að blóm spretti betur ef það er talað og.sungið fyrir þau. Ég trúi því alveg. En ég ætlaði nú ekki að skrifa út af blómum heldur hænsnum. Við rekum hænsnabú sem gekk ekkert allt of vel í byrjun. Þá tók ég upp á þi.n'h'ð syngja fyrir hænurnar. Þeim virtist líka það vel og meira- að segja gagga þær oft í takt við lagið sem ég syng! Og eftir að ég byrjaði á þessu flnnst mér þær verpa helmingi meira en þær gerðu. Þegar ég sagði manninum mínum frá þessu þá hló hann sig alveg máttlaus- an og sagði svo að ég væri rugluskjóða. Þess vegna lartgár mig til að spyrja þig, Póstur góður, heldur þú líka að þetta sé bara rugl? Hafa verið gerðar einhverjar tilraunir með hvaða áhrif söngur hefur á dýr? Mér þætti gaman að heyra álit þitt og ef til vill annarra á þessu máli. Með fyrirfram þökk fyrir svarið og þökk fyrir gott blað. Kveðja frá syngjandi sveitakonu. Það er ekki allt með sama laginu i sveitum landsins ef dæma má af bréfi þínu. Póstinum hafði þó reyndar ekki hugkvæmst að hænur byggju einhvers staðar við dagleg tónleikahöld og skemmtilegheit. Það er kannski eftir allt saman alls ekki svo slæmt að vera hæna! En svona án gamans, það getur varla nokkur maður sagt um það með vissu hvort hænurnar verpa betur af þvi að þú syngur fyrir þær eða bara af því að þú hefur sjálf gaman af því og gefur þér því meiri tíma til að sinna þeim — samhliða söngnum. Sömu rök má leika sér með hvað blómin snertir og menn geta rökrætt endalaust um efnið án þess að komast nokkurn tíma að hinu sanna. Hins vegar þykir sannað að ákveðin hljóð, t.d. mjög hávær og skerandi, geti haft slæm áhrif á ákveðnar dýrategundir og ef til vill myndu öll slík óhljóð taka varpið úr hænunum. Hvort hænurnar hafa nokkra möguleika á að gagga í takt skal ósagt látið en heldur virðist Póstinum venjulegar hænur lítið músíkalskar á að líta. Láttu hlátur eiginmannsins sem vind um eyru þjóta því það er þó alténd þót bæði fyrir þig og hænurnar ef þú gengur til verks með glöðu geði og ætti ekki að vera nema til góðs að hleypa örlítilli menningu lausri í hænsnahúsinu. Ef fleiri vilja leggja orð í belg hvað þetta varðar er orðið laust. 62 Vikan 16. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.