Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Vikan


Vikan - 04.12.1980, Side 11

Vikan - 04.12.1980, Side 11
Jólaljóð Ársól hver, sem öllu fögru hét, ætíð hvarf á meðan rósin grét; vorið hvert, sem bauð mér betri hag, brást mér löngu fyrir vetrardag. Lukkan sagði: ,,Vind upp mína voð: veröld alla gyllir sólarroð; fyrir stafni leiftra sérðu ljós, lukku þinnar frægð og sigurhrós!“ Hvað varð úr því öllu? Last og hrós. óró, blekking, trufl og villuljós! Hafi nokkur hreinan sálarfrið, hjartafeginn skipti ég hann við. Þessi fáu, fölu lukkublóm fælast lífsins kalda skapadóm; allt vort hrós í hreggi veraldar hrekst á milli drambs og öfundar. Loks er eitt það „evangelíum“, er oss býðst hjá tímans vitringum: „Trú er hjátrú, heimur töfraspil, himinn, Guð og sál er ekki til!“ — Ljá mér, fá mér litlafingur þinn, ljúfa smábarn; hvar er frelsarinn? Fyrir hálmstrá herrans jötu frá hendi ég öllu: lofti, jörðu, sjá! Lát mig horfa’ á litlu kertin þín: Ljósin gömlu sé ég þarna min! Ég er aftur jólaborðin við, ég á enn minn gamla sálarfrið! 49. tbl. Vikan II

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.