Vikan - 04.12.1980, Blaðsíða 67
Kirkjulist
Kirkjur fjúka
Gömul kirkja var á Reykhólum.
Akveðið var að byggja nýja og það var
gert, en þegar að því kom að rifa gömlu
kirkjuna var hún talin of merkileg til að
vera eyðilögð. Hún var því rifin niður
spýtu fyrir spýtu, hver spýta merkt o/
flutt til geymslu að Bessastöðum. Síðar
voru viðirnir fluttir vestur að Saurbæ á
Rauðasandi. Kirkjan þar fauk 1966 og
þar er nú verið að endurreisa kirkjuna.
Gamla kirkjan á Svalbarðsströndinni
var flutt til Akureyrar og er nú kölluð
Minjasafnskirkja. Svo mætti lengi telja.
í Heydölum standa nú tvær kirkjur.
önnur gömul og hin ný. Til stóð að rifa
göntlu kirkjuna en þegar sú nýja var
risin gerðu menn sér grein fyrir að gamla
kirkjan mátti ekki missa sig.
Það er annars merkilegt hvað mikið
hefur verið um að kirkjur hafi fokið.
Þegar kirkja var reist á Auðkúlu i
Húnavatnssýslu var hún byggð með
veðurfarið i huga. Presturinn fór fram á
að hafa hana allsérkennilega i laginu af
því þar mun vera veðrasamt mjög (sjá
mynd).
1908 fuku kirkjurnar að Reykjunt í
Ölfusi, Stóra Núpi og Hrepphólum. Kór
Hrepphólakirkju rifnaði frá kirkjunni.
hún fauk upp i brekku og snerist í hálf-
hring. Meðan kirkjan stóð þarna ntun
hafa farið fram i henni jarðarför. Stóð
Presturinn í opinu en kistan fyrir utan.
Að Saurbæ á Rauðasandi fauk kirkja í
ofsaroki í janúar 1966. Þá fauk líka
Melgraseyrarkirkja.
Og enn eru kirkjur byggðar. Vel hefur
oft tekist til við byggingu nýrra kirkna,
endurbyggingu gamalla og skreytingu.
’Sumir hafa þar lagt verulega vel hönd á
Plóginn og varla óréttmætt að nefna þar
sérstaklega ein hjón, Jón og Grétu
Björnsson, sem hafa skreytt margar
kirkjur. Mildir litir og falleg mynstur eru
Vist mörgum kunnugleg, þó sjaldnar sé
þeirra getið sem verkið unnu.
Þó ekki sé hægt að tala um islenska
hefð í kirkjuskreytingum er margt að
finna í islensku kirkjunum sem gleður
augað. Og það er gott til þess að vita að
viða hefur gömlum fallegum munum
verið bjargað frá skemmdum og lögð
faekt við það sem áður þótti litilsvert.
Altaristöflur hafa verið hreinsaðar upp
°g ýmislegt komið í Ijós sem menn höfðu
ekki hugmynd um áður.
Og nýjar kirkjur eru byggðar, margar
hverjar mjög fallegar og vel búnar. Vera
má að um þessi jól veiti menn einhverju
athygli sem þeir ekki hafa áður séð í
kirkjunni sinni, þó vonandi láti enginn
ytra prjál verða aðalatriðið í huga
sinum. Því auðvitað er ytra byrðið
aðeins mikilvægt í beinu samhengi við
innri verðmæti.
Auðkúlukirkja i Húnavatnssýslu.
Hún er sérkennilega löguð og mun
það vera vegna þess að prestur bað
um að tekið yrði tillit til vindasamrar
veðráttu við smfði hússins. Ljósm.
Jðhanna Björnsdðttir.
/s/enskt /andslag á
altaristöflum:
í Grunnavík er altaris-
tafia eftir þýskan
listamann. Hann
dva/dist þar um hríð
og máiaði Grunna-
víkurfjöllin, fórsvo
heim ti/ sín með
myndina og máiaði
Kristsmynd inn á.
Kristur var þar
sýndur í fjárhóp en
auðséð að það er
ekki Grunnavíkurféð.
í Bakkagerði (í
Borgarfirði eystra) er
a/taristafia eftir
Kjarvai er sýnir Krist
að fiytja fjaiiræðuna
— með Dyrfjöiiin í
baksýn. Sagt er að
Jóni Heigasyni
biskupi hafi orðið að
orði er hann sá
altaristöfluna: „AHs
staðar þarf hann að
klessa Dyrfjöllunum."
í Garðakirkju á Áifta-
nesi er a/taristafia
eftir Haiidór Péturs-
son. Þar má sjá Kei/i
i baksýn.
Þetta er kirkjan að Skeggjastöðum í Norður-Múlasýslu.
Eins og sjá má er af henni hin mesta prýði. Sterklega
kom til tals að rífa hana og byggja nýja. Þess í stað var
brugðið á það ráð að gera kirkjuna upp og byggja við
hana. Það var gert í samráði við Kristján Eldjárn og varla
verður annað sagt en vel hafi tekist til. Presturinn, séra
Sigmar Torfason, mun ekki eiga hvað minnstan þátt í að
svo giftusamlega tókst til að þessu sinni. En myndin
talar sínu máli, eitt dæmi, sem betur fer, af mörgum um
að hægt er að gera gamlar kirkjur fallega upp og
viðbyggingar geta verið mjög smekklegar.
49. tbl. Vikan 67