Vikan - 04.12.1980, Blaðsíða 30
Texti: Jónas Kristjánsson
Chateauneuf
er vín
ársins
Gömlu stigin em úreit
Léttu vinin í Áfengis- og tóbaks
verslun rikisins breytast í sífellu, þótt
nöfnin á verðskránni haldist í stórum
dráttum óbreytt. Víngæðaskrá Vikunn-
ar fyrir síðustu jól er því orðin úrelt fyrir
þessi jól.
Algengasta breytingin er, að nýir
árgangar koma í stað eldri. Þessir
árgangar geta bæði verið betri og siðri.
allt eftir staðháttum og veðurfari.
Einnig eldast árgangarnir, í fyrstu oft til
góðs, en síðar ævinlega til ills.
Rauðvínið Chateauneuf-du-Pape, Les
Cédres 1978 er frábært dæmi um,
hversu mjög ungt vín getur batnað á
einu viðbótarári i flösku. í fyrra var það
gróft og hart, en átti greinilega framtíð
fyrir sér, svo ég mælti með því til
geymslu.
Nú er þetta vln orðið vel
drykkjarhæft, að vísu dimmt og öflugt,
en um leið búið að ná góðum, aðlaðandi
ilmi. Það er hætt að vera gróft og hart og
er nú á leiðinni að verða mjúkt. Það er
þegar orðið hið magnaðasta jólasteikur-
vín, næstbesta rauðvín Ríkisins.
Árgangurinn 1978 er með hinum
bestu á þessu svæði, nokkru betri en
1979. Vinmenn, scm eiga fé, er þeir vilja
vernda gegn verðbólgunni, mega því
gjarna geyma sér kassa til næstu ára.
Einkunnin hefur hækkað úr 6,5 í 7,5 og
á vafalítiðeftir að hækka enn um sinn.
Meiri nákvœmni
Tvö hvitvin eru dæmi um hrörnun.
Það eru Griincr Veltliner 1976, sem
hefur hrapað úr 7 stigum í 5,5 og
Kreuznacher Hinkelstein 1974, sem
hefur sigið úr 6 stigum í 5. Þetta eru
viðkvæm vín, sem eru hreinlega orðin of
gömul, að verða vínsúr.
Aðrar breytingar á einkunnum á
sama árgangi stafa aðallega af meiri
nákvæmni í einkunnagjöf, þegar nú er
gefið í fjórðungum úr stigum, en áður
bara í heilum og hálfum stigum. Sumar
breytingar stafa þó af fyrra of- eða van-
mati.
Fleira kemur til. Auxerrois 1977
hefur lækkað úr 6 stigum i 5,5, en það
gæti stafað af, að vínið kom áður frá
Ehnen Bromelt, en kemur nú frá
Machtum Ongkat. Það er sem sagt ekki
sama vínið, þótt nafnið og árgangurinn
séu bæði óbreytt. Nýja vínið er minna
grænt og minna þurrt.
1 rauðvínum hafa árgangaskipti haft
mest áhrif til bóta á Chateau de Saint-
Laurent, þar sem 1978 hefur komið i
stað 1976 og einkunnin hækkað úr 6 I 7.
Vínið er mildara, enda í samræmi við
almennan mun þessara tveggja árganga
á Corbieres-svæðinu.
Á hinn bóginn hafa árgangaskipti úr
1969 í 1967 haft slæm áhrif á Gran
Sangre de Toro, sem lækkar úr 6 stigum
í 4. Vínið frá 1969 var orðið fjörgamalt.
Nýir árgangar:
RAUÐ:
Chateau de Saint Laurent, Chiantl Clasaíco Antinori, Chatsau Paveil de Luze, Saint Emilion, Chateau de Saint Jacques, Gran Sangre de Toro, úr 76 i 78, úr 6 stigum i 7 úr 78 i 79, úr 6 stigum i 6,5 úr 76 í 78, úr 7 stigum i 6,25 úr 77 i 78, úr 6 stigum í 6,5 úr 77 1 78, úr 5 stigum i 5,75 úr 69 f 67, úr 6 stigum i 4
HVÍT: Wormser Liebfrauenstift, Kallstadter Kobnert, Bernkasteler Badstube, Riidesheimer Burgweg, Hochheimer Daubhaus, Sauternes, Tokaji Szamorodni, Chablis, úr 77 í 79, úr 8 stigum i 7,75 úr 76 i 79, úr 8 stigum i 7,5 úr 77 i 79, úr 7 stigum i 6,75 úr 77 í 79, úr 6 stigum i 6,5 úr 75 í 78, úr 8 stigum i 6 úr 76 í 78, úr 6 stigum i 6 úr 75 í 76, úr 6 stigum i 6 úr 78 í 79, úr 7 stigum i 5,5
svo erfitt er að sjá, hvaða erindi vínsúrt
1967 á hingaðeinu ári siðar.
Þegar árgangar eru allt
Hochheimer Daubhaus er nú frá 1978 i
stað 1975, enda hefur einkunnin lækkað
úr 8 stigum í 6. Árið 1975 var með allra
bestu árum, en 1978 með hinum lélegri.
Yfirleitt má segja um þýsk hvítvín frá
1977 og 1978, að jtau beri ekki aðkaupa.
1 fyrra og hittifyrra voru þýsku hvít-
vinin í Rikinu aðallega frá góðárunum
1975 og 1976. Nú eru þau flest frá 1979,
sem er töluvert síðra ár, þótt þaðsé mikil
framför frá 1977 og 1978. Þess vegna
hafa mörg þýsku hvítvínin sigið í
einkunn.
Rauðvinið Chianti Classico Antinori
hækkar úr 6 stigum í 6,5 enda er 1979 nú
komið í stað 1978. 1979 er besta
Chianti-árið síðan 1971, mun betra en
árið 1978. Fulltrúinn hér er ekki lengur
skarpur á bragðið, aðeins hressandi.
Saint-Emilion fer úr 1977 I 1978 og
hækkar úr 6 stigum í 6,5 enda er
árgangamunurinn verulegur. 1977 var
með lélegri árum, en 1978 með bestu
árum. Ilmurinn er nú betri og bragðið
framlengist betur.
Chateau Paveil de Luze brýtur hin
almennu lögmál árganganna. Á
Bordeaux-svæðinu á 1978 að vera mjög
gott ár, sem fyrr segir, mun betra en
1976, en þetta vín hrapar þó milli
áranna tveggja úr 7 stigum i 6,25, Núna
er það ilmdaufara og þynnra.
Chablis er hrunið
Gleðifréttin af uppgangi
Chateauneuf-du-Pape á sína þverstæðu i
sorgarfréttinni af hruni Chablis. Árið
1979, rúmlega miðlungs ár, er tekið við
af 1978, einu besta Chablis-ári allra
tíma. Enda er nýja vínið aðeins vofa
hinsgamla.
Chablis lækkar i stigum úr 7 í 5,5.
Raunar er munurinn alvarlegri, því að
hið nýja Chablis hefur engin Chablis-
einkenni og vantar einkum og sér i lagi
stálkantinn. Freistandi væri að halda því
fram, að brögð væru hér i tafli.
Með Chablis 1978 hvarf besta
skelfiskréttavín Áfengis- og tóbaksversl-
unar ríkisins. Og með nýja árganginum
var jiað tvöfaldað I verði, svona til að
strá salti í sárin.
Svo eru aðrar breytingar, sem erfitt er
að henda reiður á. Kallstadter Kobnert
er nú allt I einu úr sylvaner berjum I stað
morio muskat. Enn meiri ruglingur er á
hingaðflutningi ágæts víns, sem kallað
er Bernkasteler Schlossberg hjá Rikinu.
1 fyrra var þetta réttnefni. I vor var
hins vegar vinið orðið að Bernkasteler
Rosenberg og nú er jtað
orðið Bernkasteler Badstube. 1 gæðum
hafa þessar breytingar lítið haft að segja,
en Badstube ætti þó að vera besta hlíðin
við Bernkastel af þessum þremur.
Badstube er hlíðin upp frá bænum að
austanverðu, Schlossberg að vestan-
verðu og Rosenberg hlíðin handan
árinnar.
Jónas Kristjánsson
30 Vikan 4«. tbi.