Vikan - 04.12.1980, Blaðsíða 95
Maria Gunnbjðriisdóttir, Túngötu 33,
460 Tálknafirði, óskar eftir að skrifast á
við krakka á aldrinum 12-15 ára.
Áhugamál margvísleg. Mynd fylgi
fyrsta bréfi ef hægt er. Svarar öllum
bréfum.
Sven Skjett, Engvej 22, DK-6094, Hejls,
Danmark, óskar eftir pennavinum.
Hann er 19 ára, skrifar ensku og þýsku
auk dönsku. Áhugamál eru mörg.
Sissel Gulliksen, Hovlandvn. 6A, 3140
Borgheim, Norge, skrifar fyrir sína hönd
og vinkonu sinnar. Þær eru 15 og 16 ára
og óska eftir pennavinum á sama aldri.
Áhugamál eru hestar, hundar, dans og
ýmislegt annað.
Ása Valsdóttir, Túngötu 42, 101
Reykjavik, óskar eftir pennavinum,
strákum og stelpum 15-20 ára. Svarar
öllum bréfum. Áhugamál íþróttir.
Anthony Sackey, P.O. Box 177, Cape
Coast, Ghana, West Africa, er 16 ára og
óskar eftir pennavinum á öllum aldri.
Áhugamál íþróttir, söngur, fótbolti og
frímerkjasöfnun.
Þori ekki að fara
til kvensjúk-
dómalæknis
Kæri Póstur.
Ég kaupi alltaf Vikuna af
gömlum vana og hún er líka
fínt blað.
Ég hef líkast til tvisvar
skrifað Póstinum áður og ég
þakka fyrir svörin. En nú er ég
með vandamál og spurningar
handa þér og bið þig að leysa
þau ef þú mögulega getur. Mig
langar að fara til kvenlæknis
en ég þori ekki fyrir mitt litla
líf. Ég er stundum með pirring
eða kláða í leggöngunum. Er
það eðlilegt? Éger 15 ára og
skammast mín hálfgert fyrir
að vita þetta ekki. Samt finnst
mér einhvern veginn að þetta
eigi ekki að vera svona. Þetta
er mjög óþœgilegt. Það var
þetta sem ég ætlaði að tala um
við lækninn. Ég sé mig i anda
Hggja uppi á bekk og einhvern
kall vera að káfa í klofinu á
mér. Eg pantaði einu sinni tíma
en afpantaði hann. ég bara
þorði ekki. Svo hef égfrekar
mikla útferð (stundum). Eg bið
þig að svara mér fljótt.
Svo langar mig að vita af
hverju koma slit í brjóstin. Ég
var nefnilega að taka eftir sliti í
brjóstunum á mér. Og ej maður
yrði nú óvart óléttur og vill fá
fóstureyðingu þurfa þáfor-
eldrar að vita af því? En
strákurinn sem á krakkann?
Jæja. elsku Póstur, ég vona
að ég fái svar fljótt.
AM
Ljóst er að þú mátt til að hrista
af þér feimnina og drífa þig til
kvensjúkdómalæknis. Það er
þeirra starf að rannsaka konur
og fyrir þeim er sjúklingur
aðeins sjúklingur. Þegar á
hólminn er komið mun þér
finnast að læknirinn sé aðeins
læknir en ekki einhver „kall”.
Konur komast vart í gegnum
lífið án þess að þurfa einhvern
tíma að leita kvensjúkdóma- eða
fæðingarlæknis. Það er mikil-
vægt að temja sér sem fyrst já-
kvætt og eðlilegt viðhorf til þess-
ara mála.
Lýsingin bendir til þess að það
hrjái þig kvilli í leggöngunum.
Hann þarf alls ekki að vera
alvarlegur kynsjúkdómur.
Algengt er að kláði og útferð úr
leggöngum stafi af óæskilegum
sveppagróðri. Þetta getur smit-
ast, ekki aðeins við samfarir
heldur og á klósettum. Kvillinn
læknast alls ekki af sjálfu sér.
Læknismeðferðar og lyfjagjafar
er þörf. Sjúkdómurinn er hins
vegar ekki erfiður viðfangs og
ekki ástæða til að óttast.
Slit í brjóstum stafar í þínu
tilviki af því að vöxtur brjóst-
anna er mjög hraður. Húðin
nær ekki að teygjast sem skyldi.
Með tímanum dofna slit af
þessu tagi og verða lítt áberandi.
Fóstureyðing er ekkert
gamanmál og reynir bæði á
líkama og sál. Hún er aðeins
framkvæmd á sjúkrahúsum og
krefst nokkurra daga legu.
Samfarir án þess að getnaðar-
varnir séu notaðar, sé getnaðar
ekki æskt, eru fáránlegt
ábyrgðarleysi. Fóstureyðing er
ekki getnaðarvörn heldur
neyðarúrræði. Barnshafandi
stúlka hefur sjálf ákvörðunar-
vald í málinu ásamt læknum. Sé
samþykkis foreldra eða barns-
föður ekki óskað er þess ekki
þörf. Búi stúlka heima hjá for-
eldrum er á hinn bóginn sjálf-
sagt mjög erfitt að halda fóstur-
eyðingu leyndri fyrir þeim.
Það gerir ekkert til þótt Flugleiðir séu hættar að fljúga
annað en til Tókió. Við förum þaðan með flugvél til
Moskvu, og viku seinna komumst við svo til Kaupmanna-
hafnar. Fariö kostar ekkert meir en áður, flugferðin er
niðurgreidd af rikinu!
Þetta táknar ekki annað en að hætt
hefur verið við næstu kauphækkun.
ekki fullþung fyrir pabba?
Skop
49. tbl. Vikan 95