Vikan - 04.12.1980, Blaðsíða 24
alveg sérstaklega skemmtilegur
karakter, ekki síður sem persóna en
söngkennari. Hann sagði við mig, þegar
ég hafði lært hjá honum i 2 ár:
„Haukur, nú verður þú að hætta
þessum dægurlagasöng, þú átt að verða
óperusöngvari.” En ég sagði honum, að
þá yrði ég frekar að hætta hjá honum,
því ég vildi bara syngja dægurlög.
Aldrei á ævinni jafn-
nervös og á Stjörnu-
messu.
— Það hefur verið sagt, að nýja
platan hafi átt upphaf sitt á Stjörnu-
messu Vikunnar og Dagblaðsins, þar
sem þú komst fram sem gestur.
— Já, það er rétt. Það var geysilega
gaman að vera gestur Stjörnu-
messunnar. En mikið óskaplega var ég
nervös, ég hef aldrei á ævinni veriðjafn-
nervös. Ég var bara alveg ómögulegur
og búinn að steingleyma textunum,
þegar ég átti að fara að koma fram. Ég
fylltist skelfingu og fór að reyna að
skrifa upp textann við Mónu Lísu á
servéttuna mína. En um leið og ég var
farinn að syngja, kom þetta allt saman.
Við svona viðtökur verður maður
altekinn — af ánægju.
— Nú, það var svo bara fjórum
dögum síðar, sem Jóhann kom til mín
með þessi 11 lög, sem eru á plötunni, og
spurði, hvort ég vildi flytja þau á plötu
með aðstoð þessara ágætu pilta I
Mezzoforte. Venjulega hefur maður lagt
upp með 20-30 lög að velja úr, en þegar
ég var búinn að hlusta á þessi lög
nokkrum sinnum, sagði ég við Jóhann:
Þetta er gott, við tökum þau öll. Mér
leist líka vel á að vinna með strákunum,
ég hafði fylgst með því, sem þeir höfðu
gert, og líkað það vel.
Það kemur ekkert
meira en þú hefur að
segja.____________________________
— Varstu ekkert hræddur við
kynslóðabilið?
— Ég viðurkenni ekkert kynslóðabil,
og mín reynsla er, að unga fólkið
stendur við hlið þeirra eldri og vill ekki
annað. Þegar ég kom á fyrstu æfinguna,
sagði ég við strákana: „Strákar mínir.
þið vitið, hvað ég er gamall, og ég veit,
hvað þið eruð gamlir. Þið eigið að vinna
IF/siÍ
: f *
JÓN MÚLI ÁRNASON
útvarpsþulur
„Mér finnst skemmtilegt, að elsti
alvöru dægurlagasöngvarinn og yngstu
alvöru poppararnir skuli vera farnir að
vinna saman, því mér finnst það benda
til þess, að allur bægslagangurinn og
spekin um kynslóðabilið sé eins og hvert
annaðpíp."
RAGNHILDUR GÍSLADÓTT-
IR söngvari og kennari:
„Ég vil bara lýsa yfir aðdáun minni á
því, að hann skuli hafa staðið svona
framarlega í svona mörg ár. Hann er
alltaf með þennan sama stil, sem virðist
verka endalaust.”
þetta á ykkar hátt. ég vinn aldrei öðru
visi en ég hef gert. En ef við náum
saman. ætti þetta að geta orðið ágætis
útkoma." Kynni mín af þessum ungu
mönnum voru góðog skemmtileg.
— Réð þinn stíll ekkert frekar en
þeirra?
— Nei, við vorum alveg sammála.
Það urðu aldrei neinir árekstrar.
— Er ekki mikill munur á því að taka
upp nú til dags eða þegar þú söngst inn á
þínar fyrstu plötur?
— Jú. tæknin er að sjálfsögðu
fullkomnari. það er hægt að affektera
ýmislegt, sem ekki var hægt áður, en það
er alveg sama, hvað græjurnar eru
góðar, það kemur ekkert meira en þú
hefur að segja. Og nú er reyndar orðið
móðins að hafa upptökurnar eins hráar
og hægt er. Það er eins og með svo
marga aðra hluti, menn vilja hverfa frá
fullkomnun tækninnar til þess náttúr-
lega.
Sá sem getur ekki
rekið hús með lifandi
músík, hann getur
bara ekkert rekið hús.
— En það er fleira, sem hefur breyst
þessi 36 ár. sem ég hef starfað sem
dægurlagasöngvari. Um 16 ára skeið
gerði ég ekkert annað. vann eingöngu
við að syngja. Það var enginn vandi,
þegar húsin voru opin 6 kvöld í viku.
Það er ekki hægt lengur. Nú er keppst
við að hafa húsin bara nógu stór og hafa
þau opin 2 kvöld í viku, í hæsta lagi 3
eða 4 kvöld. Ég veit reyndar ekki, hvort
ég á að vera að deila á mennina, sem
reka húsin. eða öllu heldur láta aðra reka
þau fyrir sig. Þeir eru öruggir með
aðsókn á föstudags og laugardags-
kvöldum. svo leigja þeir húsin hinum og
þessum. ég tala nú ekki um þá. sem eru
svo heppnir að hafa náð til sin ferða-
skrifstofum. En ég verð að segja eins og
er, ég veit ekki um neitt hús, sem rekur
sig sjálft, og þá er ég ekki að tala um
diskótek, heldur veitingahús með eldhús
og vinveitingaleyfi og lifandi músík.
— Er það ekki kostnaðurinn, sem
stendur i veginum?
— Þetta hefur glumið í eyrunum á
mér alla tið, en það er bara ekki rétt. Það
er feluleikur við eitthvað allt annað.
Þeir, sem ætla sér að reka almennilegt
veitingahús, verða að hafa lifandi músik.
Sá. sem getur ekki rekið hús með lifandi
músík. hann getur bara ekkert rekið hús.
Hann getur ekkert frekar haft eldhús
24 Vikan 49. tbl.