Vikan - 04.12.1980, Blaðsíða 28
Texti: Jónas Kristjánsson
Sum þeirra
má drekka
20% eru frambærileg
Sjö rauðvin, sjö hvitvín og ekkert
rósavin af samtals 123 léttum vinum
Áfengis- og tóbaksverslunar rikisins
komust gegnum nálaraugað i þriðju
samanburðarprófun Vikunnar. Fimm
rauðvin og fimm hvitvin til viðbótar
sluppu næstum i gegn.
Þannig má segja, að 24 létt vín
Ríkisins teljist sæmileg eða betri. Það er
um 20% af heildarframboði einkasölunn-
ar. Hið lélega ástand endurspeglar
hugarfar þeirra, sem telja, að létt vln séu
fvrir morgundrykkju daginn eftir.
Fvrir tveimur árum, þegar Vikan bar
fyrst saman léttu vinin, var reiknað í
heilum stigum. í fyrra var reiknað i
hálfum stigum. Nú er reiknað i fjórðung-
um stiga, enda er samanburðurinn
traustari en áöur, vinnubrögð þjálfaðri
og nákvæmari.
Markmiðið er auðvitað að vernda
lesendur Vikunnar fyrir óþægindum
vondra vina og fyrirhafnar við að grafa
upp sæmileg vín með happa- og glappa-
aðferð. Af meðmælaskrá Vikunnar ætti
sérhver að geta fundið sér borðvjn við
hæfi.
Prófað í blindni
Samanburðarprófunin var þeirrar
ættar, sem kölluð er blind. Greinar-
höfundur og ráðgjafar hans prófuðu
vínin nafnlaus i glösum, án þess að sjá
flöskur eða flöskumiða. Með slíku á að
hindra hugsanlegt snobb fyrir miðum og
merkingum.
Aö þessu sinni er framsetning efnisins
með nýjum hætti. Sérstök grein lýsir
hinum nýju, léttu vinum, sem komin eru
á söluskrá Rikisins. Önnur grein rekur
árgangaskipti og aðrar breytingar, sem
færa vín til virðingarstiga Vikunnar.
Þriðja greinin og ef til vill hin mikil-
vægasta fjallar um mat og vin, hvernig
hugsanlega megi tengja saman veislumat
á borð við jólamat og eitthvert eða ein-
hver hinna bestu vina Rikisins svo úr
verði konungleg máltið.
í þeirri grein er revnt að losa fólk úr
viójum fordóma um rétt hjónabönd
inatar og vins og reynt að sýna fram á,
aö möguleikarnir eru meiri en hinar
heföbundnu kenningar segja. Það er til
dæmis úrelt að negla rauðvin á kjöt og
hvítvin á flsk.
Þar eru þó ábendingar um, hvaða vín
gæti farið vel með rjúpum, kalkún, lax
og hamborgarhrygg, svo að dæmi séu
nefnd. En það eru aðeins ábendingar og
engar forskriftir og fara að ýmsu leyti á
skjön við fornar kennslubækur.
Framhjáhald í ræktun
Svonefnt framhjáhald í raektun eða
„coltora promiscua" er stundað i
Umbriu. héraðinu milli Toskaníu og
Latium á ítaliu. Það þýðir, að vinviður
er rasktaður innan um eplatré og
olífutré, en ekki sér á parti eins og viðast
annarsstaðar.
Ein þekktasta borg héraðsins er
Orvieto, nærri miðja vega niilli Flórens
og Rómar. Við borgina er kennt hið
þekkta vin, Orvieto, sem nú hefur
smogið gegnum nálarauga Áfengis- og
tóbaksverslunar ríkisins.
Þetta Orvieto er án árgangs frá fyrir-
tækinu Ruffino. sem einnig selur hingað
Chianti rauðvin. Það er á góðu verði,
miðað við önnur vín. kostar 3.300
krónur, og er að gæðum í rúmu meðal-
lagi, fær hér 6,25 í einkunn.
Eitt helsta sérkenni Orvieto er. að rétt
fyrir átöppun er hálfþurrkuðum berjum
bætt úl i og vinið siðan siað og geril-
sneytt. Það gefur víninu ferskan freyði-
vinskeim og gerir það vel hæft lil drykkj-
armeð flestum mat.
í prófun Vikunnar reyndist þetta vín
ekki vera eins sætt og búast hefði mátt
við af Orvieto. Það ilmaði dauft en vel
og hafði skarpan stálkant í freyðivíns-
bragðinu. Það er góð viðbót við framboð
Rikisins á léttum vínum.
Batnandi... er best að lifa
Óvenjulegt frjálslyndi hefur rikt í
þeim herbúðum á árinu. Hvorki meira
né minna en níu létt vín hafa bæst á
söluskrána, síðan Vikan prófaði léttu
vínin fyrir réttu ári. Nokkur hafa fallið
út i staðinn, en að þeim var ekki eftirsjá.
Ef við höldum okkur fyrst við hvít-
vínin, þá verður næst á vegi okkar
Monterey 1978 frá Kaliforníu.
framþærilegt matarvín með skemmti-
legu stálbragði. nokkuð dýrt á 5.100
krónur, og fær hér heila 6 i einkunn.
Monterey er úr blöndu vinberja-
tegunda. 38% eru Pinot Blanc, sem gefa
stálið. 28% eru Chenin Blanc, sem gefa
mildina. 26% eru Colombard, sem gefa
snerpuna og 8% eru Grey Riesling, sem
gefa þungann og eftirkeiminn.
Hin þrjú nýju hvitvínin eru öll frá
Portúgal, sem ekki launar okkur vel salt-
fiskinn frekar en fyrri daginn. Síst af
þeim er B.S.E. 1974 á 3.300 krónur og 4
i einkunn, kallað þurrt, en reyndist hálf-
sætt og oxyderað úr jafnvægi.
Grænvínin voru litlaus
„Vinho verde" er tegundarheiti þeirra
tveggja, sem eftir eru. Þessi portúgalska
mundi helst þýða grænvin á íslensku og
eru þó slik vín ýmist rauð eða litlaus.
Þau tvö, sem hingað eru komin, eru
bæði litlauseða þvi sem næst.
Nafnið stafar fremur af þvi, að vínin
eru svo fersk, tæpast þroskuð, þegar þau
eru sett á flöskur. Berin eru tínd
snemma úr háum stigum og látin gerjasl
skamma hríð. Áfengismagnið er litið. en
skerpan góð. enda örlítil endurgerjun í
flösku.
Notalegt er sagt að þamba vinho
verde eins og bjór á litlu kránum í
Norður-Portúgal, helst beint úr tunnu.
En vínið er viðkvæmt og ferðast illa til
útlanda. Þess vegna er það sykrað til
útflutnings og ferskleikanum þar með
spillt.
Bæði vínin hér kosta 3.300 krónur.
Gatao er heldur betra og fær 5 í
einkunn. Avaleda er siðra og fær 4. Þau
eru hlutlaus og minna helst á sódavatn.
Þau væru betur drukkin heima fyrir,
heldur en hér norður i höfum.
Loks tókst það, Portúgal!
Portúgalska brúnin lyftist svo, þegar
sögunni víkur að rauðvínunum. 1 þeim
flokki er nú loksins komið á skrá
frambærilegt vin, Periquita 1975, frá
fyrirtækinu Fonseca, ódýrt vín á 3.300
krónur og fær góða 6,5 í einkunn.
Periquita reyndist höfugt vín með
góðum, kryddlegum ilmi, þurrt og gott
steikarvín. Þar á ofan entist það óvenju
vel í átekinni flösku. Það er eini
nýliðinn, sem kemst i hóp þeirra vína.
sem Vikan mælirsérstaklega með.
Colcombet er óstaðfært, franskt vin
frá Geisweiler, tilraun fyrirtækisins til
að hafa á boðstólum ódýrara vín en
Búrgundarvin. Það hefur næstum tekist,
því að verðið er 3.700 krónur og ein-
kunnin 5,5. Sem sagt ekki alveg.
Colcombet reyndist fremur skarpt.
dálítiðsúrt, en með þægilegum ilmi, sem
þó var dálitið efnarannsóknastofulegur.
En það kostar lika 5.200 krónur að fara
upp i venjulegan Geisweiler og 6.500
krónur i hinndýrari.
Tveir tugir nothæfir
Monterey 1977 rauðvínið stendur
hvítvínsnafnanum langt að baki. Þetta
er 4,5 stiga vín á of margar 5.100
króiiur. Bordeaux-ættin leyndi sér ekki.
en vínið var of skapt, næstum súrt. og
ilmurinn var ekki alveg i jafnvægi.
Monterey er Kaliforníuvín úr blöndu
vinberjategunda. Meirihlutinn eða 60%
eru Cabernet Sauvignon, sem gefa
hinn þunga, dimma bordeaux-keim.
30% eru Zinfandel, sem gefa krydd-
bragðið og 10% eru Pinot Noir, sem
gefa milt Búrgundarbragðið.
Lestina rekur siðan Navalle Ruby
Cabernet. án árgangs frá Inglenook i
Kaliforniu. 4,5 stiga vín á 6,500 krónur
tvöföld flaskan. Það jafngildir 3.250
krónum á venjulega flösku. Það var
gróft og sætt, ekki merkilegt vín.
Þannig má segja, að nýliðunin hjá
Rikinu sé svona upp og ofan og þó
heldur til bóta. Engin bylting hefur
orðið með nýju vinunum niu. Enn eru
það aðeins tæpir tveir tugir af hinum
nokkuð á annað hundrað léttvínum,
sem óhætt er að mæla með.
Jónas Kristjánsson
Nýju vínin
RAUÐ:
Periquita 1975, Portúgal,
Coicombet, Frakkland,
Monterey 1977, Bandaríkin,
Nevalle fíuby Cabernet, Bandaríkin,
HVÍT
Orvieto, italia,
Monterey 1978, Bandaríkin,
Gatao, Portúgal,
Avaleda, Portúgal,
B.S.E. 1974, Portúgal
(Fyrirvari er é verðhækkunum).
3.300 krónur, 6,5 stig
3.700 krónur, 5,5 stig
5.100 krónur, 4,5 stig
6.500 krónur 4,5 stig
(3.250 pr 75 sl)
3.300 krónur, 6,25 stig
5.100 krónur, 6 stig
3.300 krónur 5 stig
3.300 krónur, 4 stig
3.300 krónur, 4 stig
28 Vikan 49. tbl,
\