Vikan - 04.12.1980, Page 52
Texti: Anna
A þessu ári voru 100 ár liðin frá
fæðingu þýska málarans Ernst
Ludwig Kirchner. Hann var einn
þeirra listamanna sem mynduðu
hópinn „Briicke” (brúna). Þeir
voru jafnan kenndir við
expressionisma og hleyptu nýju
blóði í þýska mvndlist upp
úr aldamótum. Einkenni
expressionismans eru fyrst og
fremst að í stað þess að reyna að
líkja eftir myndefninu var reynt
að tjá það. Tilfinningar lista-
mannsins endurspegluðust mjög
í myndunum og kemur það
glöggt fram í list Kirchners.
Kirchner var fæddur í
Aschaffenburg í Þýskalandi 6.
maí, 1880. Hann varðekki lang-
lífur og flest bendir til þess að líf
hans hafi að mörgu leyti verið
jafnórólegt og átakamikið og
myndirnar sem hann málaði.
Litirnir í myndum hans eru
sterkir og djarfir og verka
fremur órólega á augað. Mynd-
efni hans er bæði borgarlífið og
svo fjallamyndir úr Ölpunum,
en þangað sótti hann mjög til að
mála og lei.ta að innri friði.
Á uppgangstímum nasismans
átti list hans litt upp á pallborðið
hjá nýju herrunum. Þeir litu
á expressionismann sem
úrkynjaða list. Mörg góð lista-
verk hafa glatast vegna þessa
dóms. Kirchner hélt þó ótrauður
áfram að mála en lagðist í æ
dýpra þunglyndi, sem á
hann hafði herjað allt frá þvi
hann gegndi herþjónustu í fyrri
heimsstyrjöldinni. Hann gekk
heldur ekki heill til skógar á
þessum árum og 15. júní 1938
batt hann enda á líf sitt með því
að skjóta sig í hjartastað. Verk
Kirchners voru aftur dregin
fram úr skugganum eftir stríð og
hengd upp á söfnum í Þýska-
landi á nýjan leik. Nú þykja
verk hans hin mesta safnaprýði,
jafnt í Þýskalandi sem út um
allan hin vestræna heim. Þegar
Kirchner málaði myndir sínar var
hann brautryðjandi og verk
expressionistanna eru hluti af
bernsku nútímalistarinnar. En
varla er hægt að segja að þau
hafi misst gildi sitt og ferskleika
þó þau séu ekki lengur nýjasta
nýtt, en auðvitað verður hver að
dæma fyrir sig.
HANN HEFÐI ORÐIÐ
100 ARA I MAl
52 Vikan 49. tbl.