Vikan


Vikan - 16.07.1981, Síða 14

Vikan - 16.07.1981, Síða 14
„Ég man eftir þessu. Ég sá þegar þú komst inn. Það voru tveir aðrir að vinna en ég sat uppi með eldgamlan karl sem vildi komast til Japan. Ég hélt að ég slyppi aldrei frá honum!” Cathy hló ánægjulega. „Svo sá ég þig líta á bækl- ing. Þú beiðst þangað til gamli karl- inn var farinn og komst til mín. Ó, Karl,” sagði hún og hallaði höfðinu að brjósti hans, „elsku Karl, ég elska þig.” Hann dró hana blíðlega að sér. „Ef þú lest i blöðunum, Cathy, að ein- hver hafi gerst landflótta er engu líkara en mennirnir hafi gengið að fyrsta manni sem þeir mættu og sagt: Ég er kominn. Þannig er það bara ekki. Bandaríkjamenn vita allt um mig. Við verðum að fara gætilega á leiðinni til Kanada. Kannski verðum við svo heppin að sleppa. Kannski ekki.” Hann sló öskuna af sígarettuni á gólfið. „Rúss- arnir treysta mér enn. K G B hefur trú á mér. Ég verð i þeim verkefnum sem ég var æfður í í París. En þeir eru ekki hugsanalesarar. Þeir hafa enga hug- mynd um að ég fylgi þeim ekki lengur að málum og hef ákveðið að láta þá lönd og leið.” Cathy virti hann vandlega fyrir sér. „Þeir vita það ekki en kannski fylgjast þeir vel með mér svo að það verður ekki svo auðvelt, Cathy,” bætti hann við. „Ég skil allt nema það sem þú sagðir um Bandaríkjamennina, Karl. Ætlarðu ekki að hjálpa þeim?” Von Haaz fann ungan líkama hennar þrýstast að sínum. „Það er rétt að ég segi þér sannleik- ann,” sagði hann hörkulega. „Ég skaut einn besta sendimann C I A i Berlin fyrir tveim árum. Þeir geta ekki fyrir- gefið mér það,” sagði von Haaz hrað- Ijúgandi. „Ég get ekki farið til þeirra. Ég verð fyrst að tala við F B I eða ein- hverja aðra stofnun. Ég get ekki talað viðCI A strax.” Karl beiðeftir viðbrögðum hennar. Hún settist upp á sófanum. Hún tyllti sér á brúnina, hvíldi olnbogana á hnjám sér og studdi lófum undir hökuna. Augnaráðið var flöktandi. „Svo að þú heldur að þeir reyni að drepa þig og stela þér frá mér?” Rómur hennar var þrunginn af niðurbældum tilfinningum. Hún var mjög hraðmælt þegar hún hélt áfram að tala: „Þú gerðir aðeins það sem þeir höfðu gert þér og nú ætti ég að missa þig vegna þess. Nei, Karl,” næstum veinaði hún, „getum við ekki komið okkur héðan þegar þessu er lokið? Farið eitthvað þangað sem enginn þekkir þig?” Hún greip um jakkaboðung Karls eins og hún væri að skipa honum aðhlýða sér. Von Haaz létti. Hann brosti von- góður. Hann hélt andliti hennar milli lófa sér og kyssti hana. „Brostu, brostu bara,” hvíslaði hann. Hann leit á úrið. Klukkan var sjö. Hann dró hana á fætur. „Komdu,” sagði hann bliðlega og fór með hana að glugganum. Hann hag- ræddi rúllugardínunum. „Nú fara þeir að koma,” sagði hann og leit niður göt- una til hægri. Cathy Davidson gretti sig. „Við hverju eigum við að búast?” spurði hún. Falsarinn „Þessu!” sagði Karl von Haaz. Himinninn breytti um lit um leið og Cathy leit til Falls Street i áttina að Nia- gara Road. Rauðir, purpurabláir og ljós- bláir glampar féllu á fallandi snjóinn fyrir utan og öll veröldin virtist skreytt dýrðarljóma. „Ó, þetta er undrasjón!” hvíslaði Cathy og leit yfir himininn. „Já,”svaraði hann. „Furðusjón.” Þau stóðu kyrr og héldust í hendur. Loks spurði Cathy: „Gera þeir þetta á hverju kvöldi?” „Já, á þessum árstíma frá klukkan sjö til rúmlega hálfníu. Og,” bætti hann við og leit á hana, „við verðum komin yfir brúna klukkan hálfníu, Cathy.” Hann strauk yfir hár hennar. „Heldurðu að þetta fari allt vel?” spurði hún í von um að hann hughreysti hana. „Auðvitað, Cathy. Svo' giftum við okkur á eftir og eignumst börn." „Börn?” spurði hún. „Já, börn.” Hún leit á hann og vonarglampinn var áberandi í augum hennar. „Hefurðu gleymt loforðinu?” spurði Karl. Cathy brosti og daufur litur kom í vanga hennar. „Höfum við tíma?” hvíslaði' hún og von Haaz kinkaði kolli. Það snjóaði fyrir utan. Hvert snjó- kornið af öðru féll ofan á flygsurnar á þaki Fordsins. Allt virtist hafa stöðvast i smábænum Niagara nema snjórinn og vatnið í fossinum. Ljós skinu að baki glugganna en engin umferð var um veg ina. Fossdynurinn einn heyrðist. Það var þumlungsþykkt snjólag á þaki bílsins þegar Cathy og Karl komu fram I eldhús. Stúlkan var rólegri og úr augum hennar Ijómaði hamingja. Karl borðaði beikon og egg, mörg egg. „Borðaðu eins mörg og þú getur,” sagði Cathy hlæjandi og spældi fleiri fyrir hann. „Það er ófært að skilja þau eftir. Ég býst ekki við að við eigum leið hérna framhjá í bráð. Annars væri gott að eignast svona lítið hús þegar við erum gift, Karl,” sagði hún og tók um hálsinn á honum. Hann klappaði á handlegginn á henni en sagði ekki orð. Hann mælti ekki neitt fyrr en hann var búinn að borða en þá reis hann upp og gekk fram i forstofuna. Hann tók töskuna og fór með hana inn í setustofu. Cathy elti Úrva/s dekk — Einstakt verð GERIÐ VERÐSAMANBURÐ Vörubíladekk 1100x20 14 pl. Roadstone 1100X20 14 pl. Gcncral tramdckk 1000X20 14 pl. Roadstonc 825X20 12pl. Roadstonc 1100X20 Búkkadckk, góð Jeppadekk I R 78x15 Lada Sport I R 78x15 Lada Sport á fcigum IIR 78X 15 Bronco, Scout, VVilbs I.R 78X 15 Bronco, Scout, VVilhs .1 78x15 (700) Bronco 10X15 750 X 16 Sendibíladekk LR 78X 15 8 pl. 875X16,5 950 X 16,5 750X 16 Samyang — sumardekk 600 x 12 j Daihatsu, Corolla 560 x 13 Cortina, Lada 590x13 Cortina, Lada kr. 3.280. kr. 4.109. kr. 3.140. kr. 2.240. kr. 1.300. kr. 375,- kr. 395. kr. 670. kr. 1050,- kr. 730,- kr. 750,- kr. 810,- kr. 1050,- kr. 1 520.- kr. 850,- kr. 1030,- kr. 1080.- kr. 1520,- kr. 350.- VAN8PL Frábær ending við íslenzkar aðstæður Meðmæli fyrir hendi 615X13 645 X 13 600 X 15 Mazda, Datsun Cortina, Ma/da Saah, Vobo kr. 350,- kr. 435,- kr. 600. Sumardekk A78 X 13 gróf Suharu kr. 560. A78 X 13 kr. 580.- AR60 X 13 hreió kr. 560,- BR78 X 13 Ma/da. BMVV kr. 670,- C 78 X 14(695) kr. 640,- K 78 X 14(735,700) kr. 670,- F78 X 14 kr. 650. G 78 X 14 kr. 660,- H 78 X 14 kr. 690. 195/75 R 14(FR 78 X 14) Kairmont kr. 600. 205/70 R 14 Kairmont kr. 600,- 205/75 R 14 (KR 78 X 14)Malibu kr. 610.- 225/75 R 14 (HR 78 X 14) kr. 750,- 245/60 R 14 breið kr. 720,- 165 R X 15 Vobo, Saab kr. 550,- 195/75 R 15 (Volvo, Saab) kr. 610. 205/75 R 15 (FR 78X 15) Oldsmobile kr. 640,- 225/75 R 15(HR78X 15 H 78x15) kr. 710,- 235/75 X 15(LR 78 X I5L78 X 15) kr. 690,- 235/60 X 15 brcið kr. 545. 255/60 X 15 brcið kr. 545,- 265/60 X 15 breið kr. 555,- J 78 X 15(700 X 15) kr. 840.- Sólaðir vörubíla- og fóRtsbílahjóRiarðar í flestum stærðum Sendum gegn póstkröfu um land allt GÚMMÍV/NNUSTOFAN Skipholti 35. Sími 31055. 14 Vikan 29. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.