Vikan


Vikan - 16.07.1981, Síða 15

Vikan - 16.07.1981, Síða 15
Framhaldssaga hann með augunum og elskaði hann sí- fellt meira. „Hlustaðu nú á mig, Cathy,” sagði hann og herpti saman varirnar. „Svona verður það að vera ...” Snjór hafði fallið í för Fordsins. Enginn annar hafði ekið að húsinu. Það var jafnóhugnanlegt inni og úti. Lítið logaði á olíulampanum og birtan var dauf. Mönnunum tveim stóð á sama um allt og birtuna líka því að þeir ætluðu ekki að fara eins og Karl og stúlkan. Sergei Nogronsky sat I gömluip arm- stól. Hann var of stór og þungur fyrir stólinn svo að það brakaði og brast í öllu þegar hann hreyfði sig. „Ertu ánægður?” spurði Nogronsky og svínsaugun virtu hinn manninn vandlega fyrir sér. „Ég veit að það kemur mér ekkert við hvort þú ert ánægður eða ekki. Það er deildin þin sem hefur áhyggjur af því, ekki ég. Nú finnst mér tíminn helst til naumur svo að mér fannst tími til að spyrja.” Maðurinn sem kallaðist Zurotov leit á Nogronsky. Hann gerði sitt besta til að leyna vanþóknun sinni. Hann vissi að hann var ósanngjarn. Hann var í K G B og hvernig gat hann mótmælt þessu flikki sem sat frammi fyrir honum? Var hann kannski tómur að innan . . . líkt og risastór ormur? Var það þetta föla hör- und, lítil grísaaugun, sem minntu á kúlu- legur, stutt hárið eða kraftarnir og orðið, sem af manninum fór? Allir i K.G.B. könnuðust við Sergei Nogronsky. Zuro- tov hafði aldrei séð hann fyrr og honum leist heldur illa á. „Já, ég er ánægður,” sagði hann og var á varðbergi. Það var líka rétt. Hann hafði unnið gott verk á Karli von Haaz þó að hann yrði að viðurkenna að það hafði verið auðvelt að þjálfa manninn. „Ég er ánægður,” endurtók hann, þó að endurtekningin drægi úr áliti hans á sinni deild. „Hefurðu engar áhyggjur af stelp- unni?” Zurotov hristi höfuðið. Nogronsky dró krypplaðan sigarettu- pakka upp úr vasa sinum, stakk einni milli varanna og kveikti í henni. Hann bauð Zurotov ekki vindling. „Heldurðu að svona sé raunhæft?” spurði Nogronsky. Þessi efasemdar- hljómur fór i taugarnar á Zurotov. Annar eins maður og sat andspænis honum gat ekki skilið svo viðkvæmar aðgerðir. „Þetta verður áhrifaríkt,” sagði hann og lagði áherslu á orð sin. „Undirbún- ingurinn hefur líka verið langur. Allt okkar lið í Bandaríkjunum er blandað i málið á einn eða annan hátt. Allt er gjör- reynt og...” Hann þagnaði. Hann sagði of mikið. Hann leit á svipbrigðalaust andlit Nogronskys. Það var engin furða þó að fólk væri hrætt við þennan mann. Hann bærði ekki á sér en Zurotov fann að maðurinn var í viðbragðsstöðu. Hann braut um það heilann hvort hann svæfi eða slakaði nokkru sinni á. Zurotov reisáfætur. „Þetta kremur Bandaríkin,” sagði hann. „Það tröllríður Ameríku i eitt skipti fyrir öll. Nægir það, Nogronsky?” Tröllslegi maðurinn gaf enga vísbend- ingu um hugsanir sínar. Hann henti aðeins sígarettustubbnum í eldstóna. Hann reis á fætur og opnaði buxna- klaufina um leið og hann gekk út. Zurotov yppti öxlum. Hann yrði laus allra mála eftir tvær klukkustundir eða svo. Þá kæmi Nogronsky honum ekki lengur við. 2. HLUTI Helen Sweeney, hávaxin og glæsileg, leit á yfirmann sinn. Charles Mason of- ursti fór hjá sér og henni fannst það skemmtilegt. Mason yggldi sig um leið og honum varðlitiðá hana. „Ég gripi simann og talaði við hann, Helen, ef ég væri maður en ekki mús. Ég segði að hann hefði skipað mér að bíða á skrifstofu sinni og einkaritari minn biði þar eftir mér. Hún þorir ekki að hreyfa sig nema ég láti frá mér heyra svo að...” ..ALVEG ÆDI! Maturinn tilbúinn strax LITTON örbylgjuofn Litton örbylgjuofninn er bandarísk völundarsmíð með tölvuminni og snerti- rofum. Þú getur alfryst, hitað, steikt og haldið matnum heitum. Auðvelt að hreinsa og íljótlegt að elda, auk þess eyðir ofninn 60-70% minna rafmagni en eldavél. Það er ekki spurning um hvort þú kaupir örbylgjuofn - heldur hvenær. Bræðraborgarstíg 1 -Sími 20080 (Gengiö inn frá Vesturgötu) 29. tbl. Vikan 15

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.