Vikan


Vikan - 16.07.1981, Side 25

Vikan - 16.07.1981, Side 25
Ljósmyndaskóli Vikunnar V Hvaða filmu? Ljósmyndafilman er í raun dásamlegt fyrirbæri og stórkostlegt til þess að hugsa hvers hún er megnug. Til þess að forðast mikla efnafræði fer þó best á þvf að láta gott heita að vita að hún er búin þeim eiginleika að sé ljósi hleypt að henni í réttum skömmtum nær hún að nema útlit „ljósgjafans” en „ljósgjafi” i þessum skilningi er hvaðeina sem endur- varpar ljósi undir því sjónarhorni sem filman „sér”. Filman, rétt eins og mannsaugað, sér aðeins ljós, misjafnlega bjart og litt eftir endurkastseiginleikum hvers hlutar (svart drekkur ljósið í sig en hvítt endurkastar því næstum öllu). Það sem gerir filmunni kleift að nema ljós eru örfín silfurkorn í sérstakri upplausn og sú er skýringin á þvi hvers vegna verð á silfri og filmum fylgist svo náið að. Sé filmunni skammtað of mikið ljós (myndin tekin á of stóru ljósopi eða á of litlum lokhraða) yfirlýsist hún en sé ljós- skammturinn of lítill verður filman undirlýst. Rétt lýsing gefur sem sagt eðlilega mynd en ekki er þó sopið kálið þó í ausuna sé komið. Meðan filman hefur ekki verið framkölluð er þessi mynd engan veginn búin undir það að vera skoðuð og mundi yfirlýsast og eyðileggj- ast væri það reynt. Best er að fara með filmur í framköllun sem allra fyrst eftir að byrjað var að taka á þær því mynd- gæðin minnka mikið við langa geymslu i vélinni eða í filmuhylkinu uppi á hillu. í framköllun er „verkun” Ijóssins á filmuna kölluð fram í mynd og hún gerð varanleg (hversu varanleg ræðum við á eftir). Óáteknar filmur og raunar ekki um aðra leifl afl raeða en afl taka á hrafla filmu, i þessu tilviki Fuji 400 ISO. Þessi mynd er gott dœmi um mynd- efni sem öll utanaðkomandi lýsing mundi að mestu eyðileggja og því er Hrafler flbnur em nauflsynlegar til afl „frysta" mikla hreyfingu, ekki síst ef birtuskilyrði eru ekki hin bestu. Þessi mynd var tekin á Ektachrome 200 ISO og hefði ekki veitt af 400 ISO. áteknar einnig, séu þær ekki framkall aðar strax, er best að geyma i kæliskáp. Negativ og pósitív Það eru til margar gerðir af filmum með ýmsum sérstökum eiginleikum. Bæði svarthvítum filmum og litfilmum má fyrst skipta í tvo meginflokka, það er að segja negatívar filmur og pósitívar. Negatívu filmurnar eru „öfugar” í einu og öllu þar sem svart er hvítt og hvítt er svart og rautt er grænt og grænt er rautt (þetta eru andhverfir litir i litrófinu). Pósitívu filmurnar, skyggnurnar (slides), eru hins vegar þann veg gerðar að séu þær bornar upp að Ijósi sjáum við myndina eins og hún á að vera enda eru skyggnur venjulega notaðar til að sýna myndir uppi á vegg eða tjaldi. Pósitíva filman hefur þann kost að hana er hægt að nota jöfnum höndum til mynd- sýninga á tjaldi og til stækkunar á pappir en hins vegar fást ódýrari stækkanir af negatívri filmu. Þá þolir negatív filma meiri hliðrun frá réttri lýsingu og hún er mýkri og á því mun auðveldara með að skila mislýstu myndefni svo viðunandi sé. Aftur á móti nær pósitiva filman yfir miklu stærra birtusvið þegar hún er sýnd á tjaldi en strax og reynt er að stækka hana á pappír undirlýsast skuggarnir og háljósin yfirlýsast þar sem pappírinn ræður ekki við birtusviðið. Þegar litur er 29. tbl. Vikan 25

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.