Vikan


Vikan - 16.07.1981, Side 34

Vikan - 16.07.1981, Side 34
Rólegir dagar í Riddle Rock Munið þið eftir Jessie James? Dáðasta bófa villta vestursins, lögleysingjanum sem fjöl- margar kvikmyndir hafa verið gerðar um og sýndar í kvik- myndahúsum um allan heim. Myndir sem lýsa taumlausu villimannslífi hans. Það er því skiljanlegt að ég hafi stansað og litið með athygli á skilti sem varð á vegi mínum í litla sléttu- bænum Riddle Rock i Arizona, i glugga kráarinnar „MIKE’S BAR & SALLON ROOM i ryk- ugri aðalgötunni í bænum. Á því stóð: „Hér skaut Jessie James Wild Bill Hickock í byssueinvígi. Munið þið eftir Wild Bill Hickock? Hann er annar af þekktustu bófum villta vestursins og hefur verið gerður ódauðlegur í ýmsum Hollywoodmyndum. Ég ákvað að lita inn fyrir og sjá staðinn þar sem Jessie James gekk frá Wild Billy Hickock. Maður fær ekki tæki- færi á borð við þetta á hverjum degi þó maður komist nú í eitt og annað þegar maður er ferða- langur með Greyhound-rútum um þver og endilöng Bandaríkin. Þetta var um miðjan daginn og ekki mikið skjól undan brennheitri sólinni að hafa á aðalgötunni í Riddle Rock. Mike’s Bar & Sallon Room var einmitt það sem mig vantaði. Ég vatt mér inn um grænmálaðar dyrnar á barnum og gekk þungum hröðum skrefum beint að barborðinu. — Hæ, Mike, sagði ég, láttu mig fá einn Seven up kaldan! Ég var einn með barþjóninum á barnum og mér gekk vel að beina samræðunum að Jessie James. — Er það tilfellið að hann hafi kálað Wild Bill Hickock einmitt hér? sagði ég í yfirheyrslutón. — Yes sir, einmitt hérna í þessari barstúku. Jessie stóð nákvæmlega þarna sem þú stendur núna og einmitt þarna við borðið stóð Billy. Hann hitti hann mitt milli augnanna. Billy átti enga möguleika á að jafna. Jessie var snöggasti byssubófinn sem sögur fara af í öllu villta vestrinu. Hérna er kúlan, einmitt kúlan sem Jessie sendi í hausinn á Wild Bill Hickock. Barþjónninn skellti kúlu á barborðið fyrir framan mig, ég tók hana upp fullur áhuga til að sjá hana betur. — Yes sir! sagði barþjónninn með áherslu, það voru sko tímar sem sögðu sex. Nú er Riddle Rock eymdarhola, ömurlega sorglegur staður, rykfallinn og hér gerist aldrei neitt. Billy the Kid, Miff Shot- gun, Kansas-Kid, Cartwright bræðurnir, Kaktus-Jim og allir þessir gæjar komu' hingað til Riddle Rock, einmitt hingað á barinn þar sem við stöndum núna, herra minn. Einmitt hérna lifðu þeir lífinu lifandi með stúlkunum sínum og merktu pókerspilunum og Stjörnuspá llruluriitn 2l.m;ir\ 20.;i;»ril Lifið brosir við þðr þcssa dagana. hað verður eitthvað lengur þó ekki skulir þú búast við endalausri velgengni. Reyndu að sinna vinum og vanda- mönnum betur en undanfarið. Yiulirt 21.tipráI 2l.m;ii Þessi vika verður hálf- leiðinleg, að minnsta kosti seinni hluti hennar. Ástamálin, sent annars hafa verið í lagi, taka óvænta stefnu. Vinur sem ekki hefur sést lengi kemur færandi hendi. 1\ihurarnir 22.mai 2l.júni Nu eru miklar annir að baki og þú þarft að gera upp hug þinn. Tilfinn- ingarnar eru i miklu uppnámi en stjörnurnar eru þér hagstæðar til að ráða frani úr vand- anuni. hað grillir I ástarævintýri. kr.'.hhínn 22. jum 2.1. juli Haltu þig heima við þessa viku, þú hefur ekkert að sækja til annarra staða. Reyndu að skilja sjálfan þig í stað þess að ana út i hverja vitleysuna á fætur annarri. Nú er að duga eða drepast. I.jnni'l 24. júli 24. iiíú*l hú átt ferðalag i vændum og betra væri að undirbúa það vel. Það verður stórskemmti- legt en aðeins ef þú ferð með góðu hugarfari af stað og ætlar þér að njóta lifsins og gleðinnar. Þú skalt fara á skemmti- stað um helgina og slá frá þér öllu amstri liðinna daga. Einhver verður á vegi þinum sem á eftir að hafa mikið að segja i lífi þinu. Rautt er heillalitur þinn. \niiin 24.\c|)i. 2.Vul»l. Miklir breytingatimar fara i hönd. Leitaðu ráða hjá þér reyndara fólki um hvernigrétterað bregðast við. Það er alltaf sniðugt að fara út að borða en heimilis- ástand gefur varla tilefni til þess núna. Spnrúdrckinn 24.okl. 'M.iun. Vertu hress þessa vikuna. ekki veitir af. Fólk hefur liaft áhyggjur af þér undanfarið vegna þess hvernig þú hefur haft allt á hornum þér. Hlutirnir eru ekki eins slæmir og þú virðist halda. Hngmiirturinn 2l.nó\. 2l.clc\ Sambandið við hitt kynið er heldur brösótt um þessar mundir. Það er sama hvað þú reynir til að kippa því i lag, ekkert gengur. Ekki örvænta samt, innan skamms fer að bregða til hins betra. Slcinijcilin 22.dc\. 20. j;in. Eyðslusemin undanfarið kemur þér illilega í koll i vikunni. Endur- skoðaðu afstöðu þina til peninga, fjárhagurinn lagast ekki öðruvisi. Þú lendir í útistöðum við vinnuveitandann og skalt gæta tungunnar. \aln\hcrinn 21. jan. I*>.f«?hc. Þetta eru góðu dagarnir þinir og láttu þá ekki ganga þér úr greipum. Vertu vinur vina þinna. það kemur þér vel seinna. Ungir og ógiftir vatnsberar mega eiga von á að úr rætist. Fi\karnir 20.fcbr. 20.mar\ Þú hefur verið langl niðri siðustu dagana en nú rætist úr og vanda- málin fá varanlega lausn. Þú kynnist nýju fólki sem kemur til með að verða varanlegir vinir. Óvæntur hlutur kemst i hendur þínar. 34 Vikan 29. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.