Vikan


Vikan - 16.07.1981, Síða 39

Vikan - 16.07.1981, Síða 39
Framhaldssaga „Ertu alveg ... alveg viss um að þú meinir það og munir aldrei ... aldrei seinna skipta um skoðun? Svar Steinars var ákveðið og sannfær- andi: „Það er mér algjörlega óskiljanlegt að nokkur skuli geta haft slíka skoðun. Það hefur aldrei hvarflað að mér og mun aldrei gera.” „Ó, Steinar!” sagði hún og þrýsti sér fastar að honum. „Þú ert sá eini sem ég á. Þú ert sá eini sem viðurkennir mig eins og ég er. Þú hefur hjálpað mér við þennan erfiða fund míns eigin lands. Kannski er það þetta sem hefur alltaf verið ætlunin? Nú fer ég loksins að skilja það. Ó, Steinar, ég er svo glöð yfir því að hafa gert mér það Ijóst.” Hún þrýsti sér ákaft að honum og var svo einlæg og ástúðleg að Steinar varð gagntekinn af hamingju og gleymdi stað og stund. Hann kyssti hana ákaft og nú var hún ekki köld og fráhrindandi eins og síðast heldur endurgalt atlot hans fús- lega. Það voru nokkrir forvitnir og undr- andi heimamenn sem urðu til að minna þau á hvar þau voru. Þeir höfðu numið staðar rétt fyrir framan þau og gláptu forvitnislega til þeirra. Vanja og Steinar stóðu fljótt upp og lögðu af stað áleiðis til bæjarins. Þau leiddust, töluðu um líð- andi stund og framtiðina. Vanja hafði þegar ákveðið að þurrka fortíðina úr vit- und sinni. Hún ætlaði að þvinga sjálfa sig til að gleyma öllu því sem gerst hafði I lífi hennar, öllu sem hún hafði bundið vonir við og síðast en ekki síst gleyma Þorbirni. Það yrði erfitt, hræðilega erfitt þvi að jafnvel nú hraus henni hugur við að fá aldrei að hitta hann framar. En nú hafði hún gefið Steinari loforð sitt. Henni mundi líða vel hjá honum. Það var dökk, heiðrík hitabeltisnótt yfir Madagaskar þegar Katarina sigldi hægt og hljóðlega inn til Nossí Be og varpaði þungum akkerum sínum í svart, lognvært djúpið utarlega á höfninni. Vanja hlustaði eins og í leiðslu á þetta kunna hljóð þegar skipið lagðist við fest- ar og undraðist hve hún var farin að una því vel. Hugljúf friðarkennd fyllti sál hennar. Lifið hafði ekki reynst henni eins og hún hefði óskað en hún hafði samt unnið, jafnvel þótt hún hefði tapað. Allt til þessa hafði hún barist gegn vilja örlag- anna þangað til hún gerði sér að lokum grein fyrir því að hann var sterkari en hennar eigin vilji. Það hafði verið hörð ogerfiðbarátta. Henni var ljóst að nú var hún orðin fullþroskuð kona. Hún hafði komist í gegnum fyrstu og stóru þrautina sem lífið hafði lagt á herðar hennar. Raunar hafði ást hennar á Þorbirni alls ekki slokknað skyndilega. Nei, hún bjó enn i brjósti hennar, var enn lifandi og hlý og mundi alltaf vera það — ef til vill aðeins dvína lítið eitt þegar gleymskan breiddi blæju sína yfir hana. En ást hennar á Þorbirni skyldi ekki fá að gera hana beiska. Hún skyldi ekki fá að raska hlýrri og rólegri hamingju hennar og Steinars. Hún mundi alltaf verða innilega þakk- lát fyrir það að hún fékk að kynnast og njóta hinnar einu, miklu og fórnfúsu ást- ar. Hún mundi alltaf verða Þorbirni þakklát fyrir allt það sem hann hafði gefið henni, fyrir allar hamingjusömu bernskuminningarnar, fyrir löngunina sem hann gaf henni til að sjá Madagask- ar. Hún sá daufan bjarma af ljósum þarna inn frá og dökkar útlínur hárra ása og hjalla bar við bláheiðan, stjörnu- bjartan himininn. Hún ætlaði ekki að fara inn til að sofa. Steinar hafði ekki einu sinni hugmynd um að hún stóð hér ein uppi á þiljum um hánótt. Hún gat ekki veitt honum hlutdeild i þessu með sér, hún varð að njóta þess alein, teyga þetta hreina og tæra loft, þessa óraun- verulegu, glæsilegu mynd — njóta hennar með öllum sínum skynfærum og alein. Nossí Be — æsku- og draumabærinn minn — það er sem þú veifir óljóst en vinsamlega til mín og bjóðir mig vel- komna. En vertu ekki hræddur. Ég er ekki lengur með hugann bundinn við ákveðnar kröfur um að fá að vita sann- leikann um eitt sérstakt leyndarmál. Það skiptir ekki lengur öllu máli fyrir mig hvað þú faldir eitt sinn þarna inn frá fyrir langa, langa löngu. Það er svo skrýtið að þó að ég hafi aðeins verið fárra daga gömul þegar ég fór héðan er alveg eins og ég muni glöggt aðég hafi verið hér áður. Auðvit- að er það bara vegna þess að ég hef séð myndirnar héðan hjá pabba og mömmu og heyrt svo margt frá Nossí Be — en engu að síður... Fyrr en varði var þessi hljóða, frið- sæla og áhrifaríka nótt liðin. Það var ekki fyrr en fyrstu geislar morgunsólar- innar gylltu himinhvolfið að Vanja vaknaði til sjálfrar sín og gekk niður. En hún fór ekki að sofa. Hún settist niður við litla skrifborðið og tók að rita langt bréf til foreldra sinna. Þar lýsti hún hug- hrifum þeim sem hún hafði orðið fyrir um nóttina og tilfinningum sínum og þakklæti yfir þvi sem lífið hafði gefið henni og kennt henni. „Án þess að hugsa um það sem fram- tíðin kann að bera i skauti sínu gleðst ég mjög yfir því að hafa farið í þessa ferð. Hún hefur leitt mig þangað sem líf mitt hófst en fyrst og fremst hefur hún orðið Höfum nú fengið þessa frábæru myndavél. Sameinar alla kosti hinnar fullkomnu myndavélar: létt — lítil — hand- stilltur eða sjálfvirkur hraði. 50 mm linsa með Ijósopi 1,7. PENTAX ME er vél fyrir byrjendur jafnt og atvinnumenn. Mikið úrval af linsum og fylgihlutum. Verð: Kr. 3.966.- Framköllum allar litfilmur á mettíma Ef þú leggur filmuna inn til okkar fyrir kl. 6, er hún tilbúin kl. 3 næsta dag. Filmur fyrir allar vélar Landsins mesta úrval: Litfilmur, svarthvítar og slides, — Vilt þú Kodak, Agfa, Fuji, Sakura, llford eða Polaroid? Við höfum allar tegundir. Sérverslun með Ijósmyndavörur, Austurstræti 7, sími 10966. 29. tbl. Vikan 39

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.