Vikan - 16.07.1981, Blaðsíða 43
I
Langferð
frá íslenska ríkinu. Þar með var látið til
skarar skríða."
Loks sagði Sigurður:
„Rétt er að fram komi, að frá Wies-
baden komu óskir um eitt íslenskt verk á
efnisskránni og píanókonsertinn eftir
Edvard Grieg. Varð að ráði að fenginn
var norskur einleikari með hljóm-
sveitinni við flutning hins norska tón-
verks. Sú ákvörðun hefur sætt gagnrýni,
en ástæður liggja til alls, án þess nánara
sé út í það farið."
Upphaf ferðar
Fimmtudagurinn 14. maí i byrjun
fjórðu viku sumars var tekinn snemma
hjá hljómsveitarfólki og förunautum
þess. Munu fáir hafa brugðið blundi
síðar en hálffimm, enda ekki umtalsverð
I tónleikasalnum i Kurhaus 15. mai.
Fremst til vinstri er Grosser leikhús-
stjóri, sem flutti ávarp. Til hægri er
Kjell Bækkelund pianóleikari i
tveimur útgáfum.
töf á fyrirhugaðri brottför frá bækistöð
hljómsveitarinnar í Háskólabíói, þar
sem safnast var saman fyrir klukkan
hálfsex.
1 almanakinu er 14. maí auðkenndur
með orðinu vinnuhjúaskildagi, sem nú
heyrir sögunni til. Þá skiptu vinnuhjú
um verustaði, og var því óvenjumikið
um fólk á ferð þann dag. Nú var líka
margt fólk að búast til ferðar, ekki
vinnuhjú nema þá í næsta óeiginlegri
merkingu, heldur samstæður hópur
listafólks að yfirgnæfandi meirihluta.
Hljómsveitina skipuðu 66 manns í
þessari för, en samfylgdarmenn voru
hátt á fjórða tug að meðtöldum
hljómsveitarstjóra, fararstjórum og
aðstoðarmönnum.
Morgunninn var mildur og lygn en
ekki bjartur — og þegar við ókum suður
Reykjanesbraut grúfði dökkgrátt skýja-
farg yfir, en Ijóst var undir, ekki þó blátt.
Keilir teygði toppinn upp í bakkann.
Biðin á Keflavíkurflugvelli tók
nokkuð á aðra klukkustund, en við
vorum komin til lofts klukkan rúmlega
8. í stjórnklefa fór Viktor Aðalsteinsson
með völdin, en aftur í sáu fjórar flug-
freyjur um þjónustu alla, einstaklega
þekkilegar allar saman, en þó skemmti-
legaólíkarásýndum.
Ekki hafði lengi verið flogið, þegar
haldnar voru tvær tölur í hljóðnema
vélarinnar, svo að allir máttu heyra.
Sigurður Björnsson framkvæmda- og
fararstjóri ávarpaði hljómsveitarfólkió
og talaði um draum, sem nú væri að
rætast, þegar farið væri til hljómleika-
halds suður á meginland álfunnar. Þetta
yrði hljómsveitinni áreiðanlega
lærdómsrík ferð — og kvaðst hann vona
að allt færi vel. Sigurður bar einnig fram
velfarnaðaróskir til handa okkur hinum
í fylgdarliðinu. — Hinn ræðumaður
flugsins var Guðný Guðmundsdóttir
konsertmeistari. Hún kvað forseta
íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, hafa
beðið sig að færa leiðangursfólki bestu
kveðju og óskir. Þetta þökkuðu
áheyrendur auðvitað með hressilegu
lófataki.
Lent var á flugvellinum í Frankfurt
29- tbl. Vikan 43
I