Vikan


Vikan - 16.07.1981, Side 45

Vikan - 16.07.1981, Side 45
Langferð hlutverki allsendis óskyldu. í hliðarálmu er Spielbank. sem er virðulegra heiti hjá Þjóðverjum heldur en spilavíti á okkar tungu. Ekki fór ég þangað inn, held reyndar að þar hafi ekki verið opið á tónleikatíma. Ekki fór hljómsveitin okkar illa af stað. Þjóðverjar tóku henni með lang- varandi lófataki. Fyrst var leikinn íslandsforleikur Jóns Leifs, byggður á íslenskum þjóðlögum, fyrst og fremst á tvisöngslaginu „tsland farsælda frón”. Veitingahúsið i útjáðri Miinchenar, þar sem ferðalangarnir reyndu gestrisni Abendrothhjónanna. Þá kom að píanókonsert Edvards Griegs, hinum eina frá hans hendi og margfrægu verki. Við flygilinn sat landi tónskáldsins, Kjell Bækkelund, sem er okkur að góðu kunnur eftir nokkrar reisur til lslands á liðnum árum. Loks var leikin Sinfónia i d moll eftir César Franck, hinn belgisk-franska meistara. Þessu stýrði farsællega Fransmaðurinn Jean-Pierre Jacquillat, sem nú er aðal- stjórnandi hljómsveitarinnar um þriggja ára skeið. Blaðadómar birtust eftir á í Wiesbaden. og fréttum við fyrst af þeim eftir heimkomuna. Þeir voru hinir hall- kvæmustu hljómsveit og stjórnanda en síður i garð einleikarans, sem var vist talinn leika heldur harðneskjulega. En mikið var þó klappað á eftir leik hans, svo mjög að hann varð að stilla til friðar meðaukalagi. Þarna á tónleikunum í Kurhaus hitti ég tvo landa, sem dveljast ytra: Sr. Kristján Val lngólfsson fyrrv. prest á Raufarhöfn, sem numið hefur helgisiða- fræði við háskólann í Heidelberg nokkur undanfarandi ár og mun eiga stutt í doktorsnafnbót, — og Vilborgu ísleits- dóttur, sem er búsett I Wiesbaden, líklega til frambúðar, gift Christian Bickel lögfræðingi í rikisþjónustu. Hún er mætur fulltrúi okkar í höfuðborg Hessen. Z9. tbl. Vikan 45

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.