Vikan - 16.07.1981, Page 48
Frumherjar
Fyrsta konan sem ekki
notaði lífstykki
Isadora Duncan
— hin tilbeðna
Hún var kölluð ,,1’Isodarable”
(dregið er saman nafn hennar
og orð sem merkir ,,sú sem er
verð tilbeiðslu”), konan sem á
fyrri helmingi þessarar aldar
olli sannkallaðri byltingu í
danslistinni. Hún umbylti hefð-
bundnum aðferðum listdansins
sem voru óeðlilegar, ófrjóar og
úreltar.
Isadora kom fyrst fram i
Evrópu 24 ára gömul. Þangað
fór hún með móður sinni, þrif-
legri, rólegri konu sem var í leit
að mannsefnum fyrir dætur
sínar tvær.
Það var töfrum líkast hve
fljótt Isadora varð aðalstjarnan
í dansheiminum. „Hverfum
aftur til náttúrunnar,” var
Fyrsta konan sem tók þátt í
kappakstri — dýravernd-
unarfélagið mótmælti
Muriel Thompson
I júli 1908 gerðist sá atburður i
Englandi sent kom jafnvel
Englendingum á óvart, en þeir voru þó
ýmsu vanir á sviði íþrótta og
æsifregna. í Brookland var skipulagður
kappakstur sem í iþróttaannálum átti
ekki sinn líka. Hann vakti ntikla
athygli og hafði sérstakt aðdráttarafl.
Nú muna líklega fáir eftir nafninu
Muriel Thompson. En i þá daga hafði
nafnið sérstaka merkingu og óhætt
mun að segja að Muriel Thompson
opnaði konum leið inn i tæknilegar
iþróttir. Þar með stigu konur enn eitt
skref í átt að því jafnrétti kynja sem
þær bórðust fyrir. Þetta mót; Ladies
Bracelel Handicap, i Brookland varð
áfangi i íþróttasögunni. Það var i sjált'u
sér viðburður að sjá konu undir stýri.
hvað þá að haldinn væri kappakstur
. „aðeins fyrir dömur". Muriel
Thompson vann keppnina á 10
hestafla Austin og hún hafði lika veg
og vanda af öllunt undirbúningi
mótsins.
Yfirvöld höfðu gert henni erfitt fyrir
á allan hátt og fjöldi alls kyns félaga
samtaka mótmæltu kröftuglega. þar á
meðal dýraverndunarfélag nokkurt.
Muriel fékk sitt fram, mikill fjöldi
áhorfenda var viðstaddur keppnina og
fagnaðarlætin voru gífurleg. Þar nteð
var einni hindrun rutt úr vegi i sjálf
stæðisbaráttu kvenna. Áhorfendunt
hefur þó varla verið Ijóst að konan við
stýrið yrði brátt mikilvægur þáttur i
mannkynssögunni. t ■
slagorð hennar. „Hreyfing-
arnar eiga að senda bylgjur í átt
til himins og sameinast eilífum
takti alheimsins,” er ein þeirra
setninga sem oftast eru hafðar
eftir henni. Hún dansaði aldrei
við karlmenn heldur alltaf ein
og í dansinum tjáði hún
afneitun en ekki fullnægju.
Andstæðingar hennar héldu
því fram að dans hennar væri
vanhelgun því hún notaði ekki
sígilda tónlist.
Fyrirmynd hennar var dans-
list Grikkja sem hún skoðaði á
gömlum myndskreytingum og
höggmyndum. Með því hreif
hún hálfa Evrópu en
hneykslaði hinn helminginn því
hin fagra Isadora hafði losað
sig við allar siðvenjur
samkvæmislífs og tísku í einka-
lífi sínu, líkt og hún hafði gert i
dansinum. Hún hrelldi fjölda
kvenna og karla með þvi að
nota ekki lífstykki. Hún var
fyrsta konan sem neitaði að
nota þessa flík, sem áður var
talin ómissandi, og lýsti því yfir
að lífstykkið væri algjörlega
ómögulegt og búið að vera.
Erfitt er að dæma um hvort
vakti meiri athygli, dans-
skólarnir frægu sem hún
stofnaði í Moskvu og Berlín
eða fyrirlitning hennar á líf-
stykkinu.
Árið 1922 giftist hún
rússneska ljóðskáldinu Esenin.
Dauði hennar var átakanlegur.
Þann 15. september 1927 dó
hún í ökuferð um París í
opnum bil, þegar langa slæðan
hennar — sem alltaf var hennar
kærasta flík — festist í einu
hjólanna og kyrkti hana.
Hún er nú sögufræg
persóna. Hún var frumkvöðull
að nútímadansi og hún barðist
gegn „lífstykkjaáþján”
kvenna.
48 Vikan 29. tbl.