Vikan


Vikan - 16.07.1981, Síða 51

Vikan - 16.07.1981, Síða 51
Draumar Tveir draumar Kæri draumráðandi! Mig langar að biðja þig að ráða þennan draum fyrir mig, það er segja mér hvað hann táknar. Þennan draum hefur mig dreymt á hverri nóttu síðan í september. Draumurinn er svona: Mér fannst ég vera á leið í kirkju að jarðarför. Ég kom gangandi að kirkjunni og var hún svo hvít að égfékk ofbirtu i augun en hélt áfram þó það væri erfitt út af birtunni. Síðan gekk ég inn I kirkjuna og hún var hvít að innan ogfólkið sem var þar inni var allt hvítklætt ásamt meðhjálparanum og meðlimum kórsins. Presturinn var í svartri hempu með hettu á og hann hafði hettuna á höfðinu. Fyrir framan hann var svört kista og í henni lá pabbi minn (hann er eða telst ennþá I tölu lifandi manna), hann er á lífi. Ég átti að ganga að kistunni og gera krossmark yfir hana en éggat það ekki því það var eins og eitthvað eða einhver héldi I mig. Lengri er draumurinn ekki. En núna fyrir áramót dó amma mín (mamma hans pabba), svo eftir áramót dó afi minn (pabbi hans pabba). Og núna ekki alls fyrir löngu dó amma vinkonu minnar. En ég held að af, pabbi og þessi kona séu öll ættuð úr sama frði og að hún (amma vinkonu minnar) sé skyld afa og pabba langt aftur í ættir. Þess vegna bið ég þig, draumráðandi góður, að segja mér hvað þessi draumur táknar. Hér kemur annar draumur, sem tengdamóður mína dreymdi, og hann er svona: Þessari konu, Z.,fannst hún vera I íbúð vinar síns sem er giftur maður, köllum hann X. Henni fannst hún vera sof- andi uppi I rúmi og hafði hún sæng yfir sér með hvítu veri á. Sængina hafði hún upp að höndum en var annars nakin. Henni fannst hún vakna við mikinn umgang og mannamál sem síðan fjaraði út. Þá fannst henni X. koma I dyrnar (í Ijós- bláum náttfötum með litlu rauðu munstri) og halda á systurdóttur sinn, Y. Y. fór til Z. og lagðist Y. yfir brjóst Z. og Z. tók utan um Y. X. stóð kyrr og horfði á. Við það vaknaði tengdamóðir mín. Hvað táknar þessi draumur? Með fyrirfram þökk. „Rósin” Draumráðandi þvertekur ekki fyrir að þig geti hafa verið að dreyma fyrir þeim mannslátum sem þú getur í draumi þeim sem. á þig hefur sótt. Hins vegar eru flest draumtáknin á annan veg en það er svo sem ekki í fyrsta sinn, ef draumurinn reyndist hafa tvíþætta merkingu, annars vegar skýra og ljósa, eins og þín eigin túlkun á honum er, og hins vegar táknræna. Þess vegna ætlar draumráðandi að freista þess að ráða báða draumana. Draumur þinn bendir eindregið til nokkurra sviptinga í lífi þínu og að þú hafir átt við nokkurt þunglyndi að stríða. Þar gæti gripið inn í ósætti þitt við aðra manneskju en í draumnum kemur skýrt fram að það mun jafnast fljótlega. Þú verður svo gæfusöm að njóta bættar lífsstöðu og mjög líklegt er að ný atvinna (þín eða annarra) sé þáttur í því. Óvæntar tekjur fylgja því og þú átt að eiga möguleika á öllu því besta, löngum lífdögum, hamingju í hjónabandi og einnig bata eftir veikindi sem að steðja (og ef til vill standa í sambandi við þunglyndi þitt, orsök þess eða afleiðing). Þú þarft sjálfsagt eitthvað á þig að leggja til að falla ekki í þunglyndi á ný og ættir að reyna að gera þitt til að svo verði ekki. Draumur tengdamóður þinnar er henni einfaldlega fyrir deilum við þann mann sem kemur fram í draumnum og sáttum sem hafa frið og gæfu í för með sér. Þar eru einnig tákn sem túlka má sem fyrirboða brúðkaups en óvarlegt er að spá um hver fer að gifta sig. Ekkert hold og blóð Kæri draumráðandi Mig dreymdi einkennilegan draum fyrir þó nokkru, en hann var svona: Mér fannsí eins og ég væri inni í líkama en þar var ekkert hold og blóð, einungis bein. Ég byrjaði að rúlla mér upp beinin (mér fannst nefnilega I draumnum að ég væri innan I kökudeigi). Þegar ég var komin í brjósthæð hægra megin sé ég unga konu sitjandi við brúnt skrifborð. Það sem mér fannst einkenn- andi fyrir konuna var að hún hafði ekkert andlit, hún var gjörsamlega slétt í framan. Ég leit á konuna og sá að hún var dökkhærð og í rauðri peysu. Mér fannst hún vera mjög falleg í draumnum. Síðan lít ég á skrifborðið. Þar sé ég rautt snyrtiveski (eða peningaveski). Skyndilega rúlla ég mér yfir skrifborðið, hremmi veskið og flýti mér svo eins hratt niður beinin og ég kemst. Þá missi ég skyndilega jafnvægið og hrapa niður I hyldýpi, kolsvart. Við það vakna ég í svitabaði. Ég tek það fram að mig drevmdi þennan draum 6 sinnum I röð fyrir svona 2-3 árum. Með fyrirfram þökk J'yrir birtinguna. Ein dreymin Þessi draumur lýsir konu sem hættir til þess að iifa lífinu fyrir aðra og hræðist í rauninni sjálfa sig. Undirokunin er henni ómeðvitað vandamál og brýst aðeins fram í draumum og ef til vill einstaka athöfnum. Bæði líkaminn holdlausi og andlits- lausa konan eru persónu- gervingar þessarar sömu konu og er ýmislegt sem bendir til þess að núverandi ástandi sé hægt að breyta með sterkum vilja. Ef ekkert verður að gert er hætt við að framtíðin verði lítt ákjósan- leg. Þjófnaðurinn á veskinu gefur i skyn að viljinn og kjarkurinn leynist einhvers staðar vel falinn. Ef þú þekkir sjálfa þig í þessari mannlýsingu skaltu venda þínu kvæði í kross sem fyrst, því þá er draumurinn aðeins tilraun undirmeðvitundar til þess að vekja þig af löngum dvala. Hættu þessum hclvítis auminíyaskap, maður! Rektu henni bara einn á snúðinn! Skop Z9. tbl. Vikan 51

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.