Vikan


Vikan - 10.12.1981, Síða 14

Vikan - 10.12.1981, Síða 14
 Texti: Þórey Einu sinni var hún fyrst og fremst þekkt sem náin vinkona Mick Jagger og fyrir að hafa verið meira og minna með öðrum meðlimum Rolling Stones. Fyrsta lagið sem Marianne söng til vinsælda var eftir Jagger og Richard, As Tears Go By, árið 1964, þá 18 ára gömul. Fleiri lög fylgdu i kjölfarið en eftir 1966 heyrðist ekki mikið af tónlist hennar en þieim mun oftar var hún á forsíðum og í slúðurfréttum blaða. Flún flæktist til og frá með Rollingunum og var meðal annars handtekin fyrir eit- urlyfjaneyslu oftar en einu sinni. Mari- anne lék í kvikmyndinni Mótorhjóla- skvísunni með Alan Delon. Eftir dauða Brian Jones, gítarleikara Rolling Stones, 1969 slitnaði endanlega upp úr ótryggu sambandi Marianne og Mick Jagger. Eftir það var hún djúpt sokkin í eiturlyfjaneyslu og reyndi oftar en einu sinni að fremja sjálfsmorð. En þrátt fyrir allt var Marianne Faithful ekki búin að vera. Henni tókst að rifa sig upp úr eymdinni. Fyrir um það bil tveimur árum sendi hún frá sér plötuna Broken English. Með henni öðlaðist hún virðingarsess í tónlistarheiminum fyrir eigin verðleika. Rödd hennar er eilítið hás en blæbrigðamikil og tilfinningarík. Platan ber sársaukafullri og storma- samri fortíð Marianne glögg vitni en henni var vel tekið og allt i einu virðist það engu máli skipta að Marianne Faithful er fyrrverandi lagskona Rolling Stones. 1 haust kom svo á markaðinn ný plata frá henni, Dangerous Aquaintances nefnist hún. Það er léttara yfir þessari plötu en þeirri fyrri og með henni tryggir Marianne sig í sessi sem nútíma söng- kona og sýnir og sannar að hún hefur margt fram að færa. BAD MANIMERS Fyrir eigi alllöngu kom út ný plata frá fjörkálfunum og „ska” hljómsveitinni Bad Manners, Platan nefnist „Gosh it's. . ." og er þriðja stóra platan þeirra. Auk þess hafa þeir sent frá sér sjö litlar plötur. Af „Gosh it’s . ." hefur lagið Walking in the Sunshine komist ofarlega á vinsældalista og sömuleiðis hefur hin stórskemmtilega útgáfa þeirra af Can Can eftir Offenbach notið feikivinsælda. Níu Bretar skipa Bad Manners. Fyrir- ferðarmestur er söngvarinn Buster Bloodvessel, 21 árs, heljarmenni að burðum og nauðasköllóttur. Aðrir eru Winston Bazoomies sem leikur á munn- hörpu, Louis A1 á gítar, Andrew Marson á altó-saxófón, Gus Herman á trompet, Chris Kane á tenórsaxófón og flautu. David Farren á bassa, Brian Chew-it á trommur og Martin Stewart á hljóm- borð. Sagan segir að þegar Bad Manners komu í fyrsta sinn fram á tónleikum hafi þeir ekkert kunnað að spila en það hafi hins vegar ekki skipt neinu máli og vegurinn til frægðarinnar lá fyrir fótum þeim beinn og breiður. Það var hljóm- sveit sem kallaði sig Back Stage Boogies sem bauð þeim að koma fram með sér á tónleikum eftir að hafa heyrt fögur hljóð úr sendiferðabíl núverandi Bad Manners. Nokkrir meðlimir Bad Manners höfðu verið saman í skóla og höfðu að vísu stundum tekið saman nokkur lög öllum sem á hlýddu til mikillar armæðu. En eftir þetta leigðu þeir sér æfingapláss í kjallara og tóku að klífa upp á við. 14 Vikan 50. tbl.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.