Vikan - 10.12.1981, Side 21
Framhaldssaga
1
j-___________________________________________
að Hótel Loftleiðum. Þegar bíllinn var
tekinn að hægja á sér, ákvað Gaunt að
reyna aftur.
— Má ég bjóða þér upp á drykk?
spurði hann. — Ég vildi gjarna heyra
meira um þetta.
Hún hristi höfuðið. — Það er ekkert
meira að segja. Og því miður, ég er að
fara á stefnumót.
Hún stöðvaði bílinn við hóteldyrnar
og sneri sér brosandi að honum. —
Anna sagði, að þú værir frá Edinborg.
Ég kom þangað einu sinni, þegar ég var
lítil. Ég varð fyrir vonbrigðum, ég hélt,
að allir Skotar gengju í pilsum.
— Ég skildi mitt eftir heima, svaraði
Gauiit þurrlega. — En það var þetta
með drykkinn. Getum við átt hann til
góða?
Hún horfði á hann íhugandi stundar-
korn, svo kinkaði hún kolli. Hann brosti,
steig út úr bílnum, lokaði dyrunum,
horfði síðan á hana , .aka burtu, áður en
hann gekk inn í hlýjuna.
Gaunt fór til herbergis síns og eyddi
næstu klukkustund í það að fara í
gegnum skjölin, sem Leifur Ragnarsson
hafði fengið honum. Að svo búnu gerði
hann sína eigin útreikninga, og þá var
myndin orðin allmiklu skýrari. Arkival
Air skilaði nægum hagnaði til að standa
traustum fótum, en allmikið bankalán
hvíldi á því, og nokkrar afborganir voru
enn ógreiddar af Cessna vélunum
tveimur, sem keyptar höfðu verið
notaðar í stað eldri véla.
Og Leifur hafði haft rétt fyrir sér í
einu — samningurinn við Álfaborg var
einn hinna bestu í bókum fyrirtækisins.
Hann ýtti blöðunum til hliðar, kveikti
sér í sígarettu og var hugsandi. Niður-
stöður athugana hans voru þær, að
Arkival fyrirtækið hefði alla möguleika
til vaxtar og viðgangs, en ekkert benti
til, að það hygðist færa út kviarnar, rétt
eins og eigendurnir kærðu sig ekkert um
það.
Hann glotti með sjálfum sér, þegar
hann minntist getsakanna um smyglið
og hvernig Leifur hafði brugðist við,
þegar hann gaf i skyn, að hann hefði
heyrt um hann sögur. Svo hvarflaði
hugur hans að því, sem Kristín Bennett
hafði sagt um áhyggjur Jamies Douglas,
áður en hann lést.
En hann vildi heldur hugsa um
Kristínu ^álfa, hvernig hún hafði litið
út, þegar hún brosti. Skilnaður var
þungbær reynsla — það vissi hann
sjálfur.
Hann fann enn til sársauka, þegar
hann hugsaði um Patty. Þau höfðu
reynt, en hún hafði gifst fallhlífarmerk-
inu hans fremur en venjulegum manni.
Hún hafði þó ekki gefið í skyn, að neitt
væri að, fyrr en eftir að hann kom heim
af herspítalanum. Og þau höfðu ekki átt
nein börn.
Svo að þau skildu og voru áfram vinir.
Og hún giftist aftur, geðugum manni,
sem reyndi eftir mætti að bera sig
mannalega, þegar þeir hittust.
Og Gaunt var skilinn eftir einn með
martraðardrauma sína, eftirlaunin frá
hernum, verkjatöflurnar og algjöran,
niðurdrepandi skort á tilgangi. Nokkrar
annir i háskóla, þar sem hann hafði lagt
stund á lögfræði og bókhald, áður en
hann gekk í herinn, virtust ekki haldgott
veganesti, þegar hér var komið sögu,
þangað til einhverjum — hann vissi ekki
ennþá hverjum — hafði dottið í hug, að
Remembrancers gætu notað hann, og sá
hinn sami hafði haft rétt fyrir sér.
Allir urðu að byrja nýtt líf, fyrr eða
síðar, enda þó þeir gleymdu aldrei full-
komlega. Vonandi kæmist Kristín
Bennett að raun um það líka.
Skömmu síðar fór hann niður í
veitingasalinn og stautaði sig í gegnum
matseðilinn, meðan hann dreypti á bjór
heimamanna, veikum og bragðlitlum.
Þetta voru fyrstu kynni hans af íslensk-
um mat — í amerísku herstöðinni hafði
ekki verið boðið upp á annað en steikur
— og hann réðst fullur áhuga á blóð-
TRÉ-
STIGAR
• Við sérsmtðum stigana eftir yðar óskum og
ráðleggjum yður við val á hagkvæmari og jafn-
framt ódýrari lausn.
• Allic okkar stigar eru smíðaðir úr efni sem
SÖGIN hf. þurrkar í samræmi við íslenskar aðstssður.
• Viðskiptavinir okkar geta valið um mismunandi
efnistegundir og hvort stiginn skuli vera
lakkaður eða ólakkaður, samsettur eða óupp-
settur. Og stiginn passar þegar við tökum
málin.
• Okkar slagorð er: Islenskir stigar inn á íslensk
heimili.
Getum enn afgreitt nokkrar pantanir fyrir jól.
HÖFÐATÚNI 2 — REYKJAVÍK
Sími: 22184 (3 línur)
Pósthólf 5096
40 ára reynsla tryggir gæðin
50. tbl. Vikan 21