Vikan - 10.12.1981, Síða 31
Stjörnuspá
L0Í \Vj Þýð.: Anna
nákvæmlega tuttugu mínútur
yfir átta með möppuna mína og
allt dótið, svo flýti ég mér í
strætó fer með honum þrjár
stoppistöðvar, hoppa af og geng
aftur heim, en þangað er ég
kominn á mínútunni fimm
mínútur fyrir níu. Þá fer ég í
gamla skrifstofujakkann minn
og endurrita Lögbirtingablaðið,
Fjármálatíðindi og Tímarit
dönsku ölupptakaraverk-
smiðjanna, frá orði til orðs,
mjög nákvæmlega. Ég færi allar
tölur, sem fram koma í þessum
þrem tímaritum vandlega í
færslubók, fer nákvæmlega yfir
þær og færi i dálk á næstu síðu.
Klukkan tólf stend ég upp, fer í
borðstofuna og fæ mér bitann
minn, borða og les dagblöðin
dálitla stund. Á mínútunni eitt
fer ég aftur til vinnu minnar.
Síðdegið fer í að sinna bréfa-
skriftum og ég endurrita öll
lesendabréfin í síðdegis-
blöðunum og Póstinn í Vikunni
á sérstakt bréfsefni fyrirtækisins,
sem ég hef látið prenta sér-
staklega í þessu augnamiði,
síðan dagset ég bréfin og skrái
og merki með tölublaði og
árgangi blaðsins. Stundum hef
ég tíma til að taka mér smákaffi-
hlé seinni partinn, en ef ég
kemst ekki til þess, þá gerir það
svo sem ekkert til. Ég hef áhuga
á vinnu minni, og það kemur
oft fyrir að ég vinn frameftir,
svona hálftima, klukkutíma,
áður en ég sest niður og geng
þrjár stoppistöðvar aftur i
strætisvagninn. Síðan fer ég í
fyrsta vagn sem kemur áleiðis
heim og fer heim til konunnar
minnar. Ágætur vinnudagur á
enda og þreyttur og glaður sekk
ég niður í eftirlætisstólinn minn
og fæ mér blund áður en kvöld-
maturinn kemur á borðið og...
Svendslev forstjóri tók fram i
fyrir gömlu skrifstofublókinni
sinni, sýnilega spenntur.
- Þetta er einstakt! Fjums-
holm, algerlega einstætt!
- Ja, síðan ég endurréð mig
hefur mér ekki leiðst eitt andar-
tak. Hver dagurinn líður öðrum
hraðar, ég hef í nógu að snúast,
herra forstjóri. En ég vona að ég
haldi starfsþreki nokkur ár í
viðbót. Það er að minnsta kosti
ánægjulegt að vita að maður er
ekki alveg koðnaður niður.
Fjumsholm gamli skrifstofu-
blók rýndi glaður með djúp-
settu, kringlóttu augunum sín-
um á fyrrum yfirboðara sinn.
- Heyrðu annars, Svendslev
forstjóri greip undir handlegginn
á honum, eins og hann hefði
skyndilega fengið hugmynd.
Hvað gerir þú við öll þessi bréf,
þegar þú ert búinn að skrifa
þau?
- Ég set þau í umslög og loka
þeim og set allan staflann í
bakka, sem á stendur ÚT, og
þegar ég fer að sofa flyt ég þau í
annan bakka sem á stendur
INNKOMIÐ, og morguninn
eftir opna ég öll umslögin og les
þau . . . ríf þau síðan og set í
pappírskörfuna.
Svendslev forstjóri tölti þolin-
móður með gömlu blókinni
sinni. Þeir voru að koma á
strætisvagnastöðina.
-Veistu hvað, Fjumsholm. Ég
er að hugsa um að fara að dæmi
þínu! Láta sem ég sé enn
forstjóri í gömlu verksmiðjunni
minni. Endurráða mig!
Rödd hans varð skyndilega
mjög valdsmannsleg:
- Áður en þú rífur bréfin,
Fjumsholm, sagði hann stuttur í
spuna, þá skaltu muna hér eftir
að koma alltaf með þau inn til
mín og þá get ég skrifað undir
þau öll í einu!
llruiurinn 2l.mars 20.afiril
Nýtt áhugamál á hug
þinn allan þessa dagana.
Það er gaman að hafa
eitthvað nýtt og
spennandi fyrir stafni en
þú mátt samt sem áður
ekki láta það koma
niður á skyldu-
störfunum.
ki.'iihinn 22. juni 2.V júli
Hver mínúta er þræl-
skipulögð fram að jólum
og þú nýtur þess að
hafa nóg að starfa.
Gættu þess bara að
ofreyna þig ekki svo þú
farir ekki á mis við
jólin sjálf þegar að
þeim kemur.
\oi»in 24.\cp(. 2.Vokl.
Gerðu sem mest þú
getur í vikunni til þess
að létta undir með
öðrum. Gerðu sömuleið-
is út um gamalt deilumál
þannig að þú getir
einbeitt þér að jóla-
undirbúningnum og
haldið jólin með góðri
samvisku.
Undarlegt eirðarleysi og
doði einkennir lífið
þessa dagana. Hristu af
þér slenið. 1 hönd fer
skemmtilegur árstimi og
þú skalt njóta hans i
stað þess að vera með
fýlu.
Viuliá 21. ipril 2l.niai
Þú ert í einhverri
klemmu og veist ekki
þitt rjúkandi ráð. Þú
verður að sætta þig við
að ef til vill finnst engin
endanleg lausn á málinu
og einhvers konar mála-
miðlun verður að duga.
I.jóni<4 24.júli 24. .ii*ú«l
Næstu dagar verða
hagstæðir til
framkvæmda, sér-
staklega á einhverju
sem þú hefur lengi
frestað og jafnvel kviðið
fyrir. Jólin verða
skemmtilegri þegar illu
er af lokiö.
Tiíburarnir 22.mai 2l.júni
Að vandlega íhuguðu
máli tekur þú afdrifa-
ríka ákvörðun og málin
taka nú nýja stefnu. Ef
rétt er aö staðið á allt
eftir að ganga þér í
haginn og þér óhætt að
taka nokkra áhættu.
Með því að taka lífinu
með meiri ró kemur þú
miklu meiru i verk en ef
þú ert að stressa þig á
öllu og flana úr einu í
annað án þess að ljúka
nokkru. Vertu reglulega
góð(ur) við sjálfa(n) þig
næstu daga og reyndu
að hvílast.
Sporúdrckinn 24.okl. *Í.T.no\.
Hoijmiiáurinn 24.nói. 2l.úcs
Þú hefur óskaplegar
fjárhagsáhyggjur og
ekki alveg að ástæðu-
lausu. Haltu jólaút-
gjöldunum í skefjum,
jólin geta veriö alveg
jafnánægjuleg þótt
eitthvað veröi til sparað
í umgjörðinni.
\alnshcrinn 2l.jan. l'Áfchr.
Þér gengur vel að koma
skoðunum þínum á
framfæri og tillögur
þínar fá góðan hljóm-
grunn meðal áhrifa-
manna. Notfærðu þér
meðbyrinn og komdu
nokkru í framkvæmd
sem þig hefur lengi
langað til að gera.
Kiskarnir 20. fchr. 20.mars
Hugsanir þínar eru
ákaflega óraunsæjar og
draumkenndar. Þér er
auðvitað frjálst að eiga
þína dagdrauma en
reyndu ekki að yfirfæra
t>á á raunveruleikann
eða aðlaga hversdags-
leikann að draumum
þínum.
Tilbreyting og nýjungar
er það sem þú þarft
helst með. Leggðu allt
kapp á að gera
mánuðinn skemmtilegan
og eftirminnilegan fyrir
þig og þina nánustu og
mundu að það þarf alls
ekki að kosta nein
ósköp.
50. tbl. Vikan 31