Vikan


Vikan - 10.12.1981, Side 42

Vikan - 10.12.1981, Side 42
Þórey og Hrafnhildur tóku saman, hönnuðu og útfærðu Ljósmyndir tók Ragnar Th. JÓLAHUG- MYNDIR Það hefur margoft sýnt sig að ekkert jafnast á við þá stund er fjölskyldan safnast saman við borð og útbýr jólaskraut og jólagjafir í samein- ingu. VIKAN hefur nú útbúið glæsilegan 16 síðna þátt um allt sem viðkemur jólahaldi: jólaskraut, jólagjafir, jóladagatöl, jólakonfekt, jólakerta- skreytingar, jólaleiki, jólahandavinnu og margt fleira. Allt er þetta heimaunnið svo það ætti ekki að veitast lesendum erfitt að útfæra þær hug- myndir sem hér koma fram. Og þó þið eigið ekki einmitt þá hluti sem hér hafa verið notaðir þá er um að gera að beita hugmyndafluginu, notast við það sem til er og vera ánægður með útkomuna. Sérkennileg jólakort Það er fastur siður hjá mörgum að senda jólakort til vina og ættingja. Því ekki að senda nú heimatilbúin jólakort? Hér að neðan sjáum við tvö jóla- kort sem gerð eru úr þurrkuðum jurtum: rósablöðum, lárviðarlaufum og stráum. Jólakortið lengst til hægri er klippimynd. Hægt er að klippa mynstur úr marglitum pappír og líma á hvit pappaspjöld. Hér hefur pappírinn verið brotinn saman þannig að myndirnar eru spegilmynd hvor af annarri. 41 Vlkan so. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.