Vikan - 10.12.1981, Qupperneq 44
Heima-
tilbúnar
jóla-
gjafir
Oft er leitað langt yfir
skammt þegar jólagjafir eru
valdar. Ef ímyndunaraflinu er
beitt og dálrtilli forsjáini er oft
hægt að útbúa sjálfur miklu
skemmtilegri jólagjafir en
þær sem keyptar eru á
síðustu stundu. Og yfirleitt
eru þær töluvert ódýrari. —
Lrtið í kringum ykkur, inn í
bflskúr og niður í geymslu.
Leynist ekki eitthvað þar
sem þið vilduð ekki henda af
því að það gat komið að
notum einhvern tíma seinna?
Nú er tækifærið að nýta alla
þessa óþarfa hluti, búa til
eitthvað fallegt sem gleður
bæði gefandann og viðtak-
andann. Og það er jú mark-
mið jólanna, ekki satt?
Útsaumaðir pokar oða púðar fylltir með þurrkuðum ilmandi jurtum. Jurtirnar
má kaupa tilbúnar til þess arna í versluninni Jurtinni við Lœkjartorg í Reykja-
vik og ef til vill í einhverjum snyrtivöruvorslunum. Pokinn og púðinn er
saumaður úr fínum jafa. Einnig er tilvalið að sauma stærri poka utan um
ilmsápur eða ilmkerti.
Rugdrekar geta verið til margs brúklegir. Þeir geta hangið á vegg eða jafnvel
niður úr loftinu. Það er hægur vandi að útbúa slíka dreka sjálfur. Fáið ykkur
þykkan pappa (eins og er í skókössum, pappakössum), teiknið á hann vsangi
og búk og málið í glaðlegum litum.
Nú eru ekki lengur nein forróttindi Irtilla stúlkna að eign-
ast dúkkur. Tuskudúkkur, tuskutrúðar og aðrar ímyndir
gerðar úr efnisbútum, plasti og fleiru eru nú í hátísku.
Stórsniðug hugmynd að jólagjöf er að gera eina slíka.
Tuskudúkkan á myndinni er aðallega gerð úr sára-
grisjum, eins og fást í apótekum. Þær fást í nokkrum
stærðum, utan um fingur, utan um handlegg og enn
stærri. Best er að nota minnstu stærðina í handleggi og
fætur en næstminnstustærðina í búk og haus. Bómull
er troðið inn í grisjuna og myndaður haus og búkur.
Þegar gerðir eru handleggir og fætur er bómull fyrst
vafið utan um pípuhreinsara, áður en hún er sett inn í
grisjuna. Þá verða útlimirnir skemmtilegri, hægt að
beygja handleggina og fótleggina.
Að síðustu er saumað andlit á dúkkuna, sett á hana
hár og föt saumuð úr afgangs efnisbútum.
Hnetur eru ákaflega jólalegar. Blikkdós
full af hnetum er bæði jólaleg og hagnýt
gjöf því eftir að hneturnar eru búnar má
alltaf nota dósina undir eitthvað annað.
44 Vllura S«. tbl.