Vikan


Vikan - 10.12.1981, Side 66

Vikan - 10.12.1981, Side 66
Hiln var ofdekruð en vel gefin yfir- stéttarstúlka sem gerðist blaðamaður og •giftist síöan hinum tólf árum eldri John F. Kennedy. Jacqueline Bauvier Kennedy Onassis hefur lifað stormasömu lífi, viðburða- ríku sem einkennst hefur af óvæntum atburðum. Og það stóðust kvikmynda- framleiðendur auðvitað ekki. Því hefur ABC sjónvarpsstöðin nú nýverið gert 3 klukkustunda langa sjónvarpskvikmynd um Jackie Kennedy, líf hennar á sjötta áratugnum, sem eiginkonu stjórnmála- mannsins og seinna forsetans John F. Kennedy. Það skiptust á skin og skúrir í ævi Jackie. Hún fæddist árið 1929 í East Hamton á Long Island, rétt fyrir utan New York. Þar bjuggu foreldrar hennar í mjög fínu hverfi, með þjónustufólk á hverjum fingri. Á veturna bjó fjölskyld- an í lúxusíbúð í Park Avenue á Manhattan. Jackie þótti mjög lík föður sínum i útliti. Hann var kvennaflagari mikill en henni þótti sérstaklega vænt um hann og dýrkaði hann. En Jackie fékk mjög ranga mynd af því hvernig hinn full- komni maður ætti að vera. Því faðir hennar gortaði í sífellu af kvennamálum sínum og leyndi því ekki fyrir hinni aðdáunarfullu dóttur sinni að hann hafði haldið fram hjá konu sinni, jafnvel i sjálfri brúðkaupsferðinni. Þeir þrír menn sem höfðu hvað mest áhrif á lif hennar voru allir annálaðir kvennabósar, en það voru faðir hennar, eiginmaður og tengdafaðir. Foreldrar Jackie skildu árið 1938. Móðir hennar fékk umráðaréttinn yfir börnunum og brátt gneistaði hatrið á milli foreldra hennar. Jackie lærðist fljótt að „loka fyrir” þegar raunveruleik- inn þrengdi sér um of að henni. Hún varð hlédræg og dul, flókinn persónuleiki. Hún var yfirstéttarstúlka, tók próf úr skóla „Miss Porter”, lærði við Sorbonne í Paris og tók fil. kand. próf frá háskólanum i Washington, með sögu sem aðalfag. En hún fylgdi ekki hinu hefðbundna mynstri yfirstéttar- innar heldur fékk sér vinnu sem blaða- maður. Eitt kvöld árið 1952 hitti hún John Kennedy í fyrsta skipti. Jackie var ekki lengi að ákveða sig. Þennan mann ætlaði hún aðeignast. Hún notaði ákveðna aðferð til þess að fá hann til að biðja sín. Hún gaf honum bækur, fór með heitan mat til hans og allt hennar líf snerist um að opna augu hans fyrir góðum kostum hennar. Jackie var þá 23 ára en John tólf árum eldri. Faðir John, Joe, var sá eini af Kennedy-fjölskyldunni sem þótti eitthvað í hana spunnið. Hún var af hefðarfólki komin sem var meira en hægt var að segja um fyrri „leikföng” Johns. Að lokum bað John hennar en nótt- inni eftir trúlofunina eyddi hann í örmum annarrar konu. Kvennafar hans var nokkuð sem Jackie varð að læra að sætta sig við. Álit hans á konum byggðist upp á notagildi... þær áttu að þjóna honum. 1 æsku hafði hann vanist því að frillur föður hans byggju inni á heimilinu og að móðir hans yrði að gera sig ánægða með að stjórna bömunum og þjónustu- fólkinu. Þetta viðhorf hafði Jackie einnig alist upp við. Brúðkaupið var haldið í september árið 1953 og átti að verða „brúðkaup aldarinnar” og þar með auðvelda John leiðina inn í Hvíta húsið. Lif hennar sem eiginkonu stjórnmála- manns byrjaði ekki glæsilega. John varð alvarlega veikur 1954 og á meðan hann var við Miðjarðarhafið að jafna sig eftir þann ósigur að hafa ekki verið útnefnd- ur til varaforsetakjörs fæddist dóttir þeirra andvana fyrir tímann. Þegar Jackie og John Kennedy ásamt Suzanne Wilding sem var starfsmannastjóri Hvíta hússins í forsetatíð Kennedys. 66 ViKan SO. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.