Vikan - 10.12.1981, Side 76
SMÁSJÁR
ásamt fylgihlutum
frá kr. 356,—
MEOPTA
stækkarar
frá kr. 1.540,—
ELMO super 8
kvikmynda sýningarvélar
án hljóðs, frá kr. 2.660,—
gjatir
og
nytsamar
ÁLTÖSKUR
fyrir myndavélar
frá kr. 682,—
ENNA sýningarvélar
fyrir litskyggnur
frá kr. 1.910,—
NIEWLUX sjónaukar
frá kr. 470,—
HANS PETERSEN HF
BANKASTRÆTI GLÆSIBÆR
S:20313 S: 82590
AUSTURVER
S:36161
Umboðsmenn
um allt land
Höfundur: Margit Saj
— N ei, nei, nei, Katja er ekki í nokk-
urri hættu, og hún getur valið úr
störfum, hún hefur einmitt þetta litla
extra, sem þarf til að vera góður teikn-
ari. En án prófsins er hún vitanlega illa
stödd.
— Ég skal sjá til þess, að hún komi til
prófsins annað kvöld, lofaði Jonas. —
Það er ekki henni sjálfri að kenna, að
hún hefur ekki getað mætt upp á síð-
kastið. Þar er við aðra að sakast.
Jonas vissi ekki, hvað hann átti að
halda, þótt hann léti digurbarkalega við
kennarann. Hann ók beinustu leið heim
til Kötju, en þar var allt dimmt. Engin
heima. Hann ók fram og aftur um ná-
grennið, hringdi svo til Hulténs lögreglu-
foringja til þess eins að fá að vita, að
hann væri ekki við. Loks ók hann heim
til sín.
Hann var varla kominn inn úr
dyrunum, þegar síminn hringdi.
Fíflið ég, hugsaði hann, um leið og
hann rauk að símanum. Kannski hefur
hún verið að hringja i allt kvöld. Og ég
sem eyddi tímanum í að horfa á einskis
verða kvikmynd, meðan ég beið þess, að
hún væri búin í skólanum.
— Halló! sagði hann ákafur.
K ATJA heyrði, að Jonas svaraði.
Loksins! Guði sé lof! Ó, Jonas, hvað hún
þráði nærveru hans. Að hún skyldi
nokkurn tíma leyfa sér að kalla hann
górillu! Hún yrði að hætta að dæma fólk
við fyrsta tillit.
— Við höfum stelpuna, hreyttti
Berra út úr sér. — Þú getur fengið hana,
ef þú kemur með lykilinn.
Katja sat svo nálægt, að hún heyrði
llka, hvað Jonas sagði.
— Hvaða lykil? spurði hann eftir
stutta þögn.
— Engin fíflalæti. Þú veist, hvaða
lykil ég er að meina. Lykilinn, sem
Svantesson lét þig hafa.
— Ég lofaði að láta hann ekki af
hendi við neinn annan en hann sjálfan.
— Hafðu það bara eins og þér sýnist!
Ég bendi á hana vinkonu þina með byss-
unni minni, ef þú vilt vita það.
Jonas greip andann á lofti, svo að
jafnvel Katja heyrði það.
— Ixyfðu mér að tala við Kötju.
— Tilhvers?
— Ég læt ekki lykilinn af hendi, fyrr
en ég er þess fullviss að hún sé í ykkar
höndum og að það sé allt í lagi með
hana. Þú hlýtur að skilja það.
Berra hikaði. Svo sagði hann við
Kötju: — Talaðu við hann. En þú færð
76 Vlkan 50. tbl.