Vikan


Vikan - 02.09.1982, Síða 17

Vikan - 02.09.1982, Síða 17
& ■tLíf til vill voru þaö hinir miklu sumarhitar í Bretlandi sem ollu lognmollunni á vinsældalistunum þar í landi um mitt sumar. Víst var að fátt nýtt og spennandi átti upp á pallboröið hjá breskum plötukaupendum. Viku eftir viku voru mismunandi aldin kvik- myndalög í efsta sæti og annað í þeim dúr þar fyrir neðan. Þó var ýmislegt markvert innan um, því er ekki að neita. Það voru því ánægjuleg tíðindi þegar hljóm- sveitin Dexy's Midnight Runners velti Irene Cara (Fame) af stalli. Come On Eileen tók Bretaveldi með trompi. Lagið er einstaklega fjörlegt og skemmtilegt og þar fara saman fiðlu- og harmónikku- hljómar og hefðbundnir rokk- hljómar. Um sama leyti kom einn- ig út breiðskífan Too-Rye-Ay og rauk hún beint í annað sætiö á sölulistanum. Hver veit nema hún hefði farið alveg á toppinn ef hún hefði ekki veriö uppseld víða í verslunum í Bretlandi. Útgáfan var engan veginn viðbúin þessum miklu vinsældum og hafði því ekki látið pressa nægilega stórt upplag. Sömuleiðis var myndbandið við lagið Come On Eileen langsam- lega vinsælasta myndbandið. Dexy's Midnight Runners á sér nokkurra ára sögu og hafa miklar mannabreytingar orðið í hljóm- sveitinni á ferlinum. Höfuðpaur- inn er söngvarinn Kevin Rowland. Hann er 26 ára og var í ýmsum hljómsveitum (sem hann stofnaði yfirleitt og stjórnaði) svo sem Lucy and the Lovers, einlægum aðdáendum Roxy Music. Rowland var þá með háriö sleikt aftur, málaður í framan og í támjóum skóm, víðum buxum og pönklegri regnkápu í ofanálag. Næsta hljómsveit hét The Killjoys. Dexy's Midnight Runners telst hafa oröið til 1978 í Birmingham. Vorið 1980 komst lagið þeirra, Geno, samið til minningar um tónlistarmanninn Geno Washington, á toppinn í Bretlandi og Dexy's voru frægir menn um skeið. Síðastliðin tvö ár hefur hins veg- ar farið fremur lítið fyrir hljóm- sveitinni. Hún hefur þó sent frá sér litlar plötur annað slagið en þær hafa ekki átt upp á pallborðiö. Skjótt skipast veöur í lofti og hin nýja Dexy's sópar að sér fylgi. Af upphaflegu hljómsveitinni eru aöeins eftir þeir Kevin Rowland og Big Jimmy Patterson básúnu- blásari. Fiðluleik á plötunni ann- ast Helen O’Hara og Steve Brenn- an. Rowland fann Helen O’Hara á strætisvagnastöð þar sem hún stóð með fiðlukassann sinn. Hann gekk til hennar og spuröi hana hvort hún hefði áhuga á að spila með hljómsveit. Hún vildi hugsa málið. Rowland sendi henni þá prufur af lögum og hún sló til. Einkennishljómar plötunnar eru frá breskum alþýðuhljóðfær- um —keltneskir hljómar. Uppá- haldsklæðnaður Rowlands og fé- laga er snjáðar vinnusmekkbux- ur og þau líta út eins og harðsnúið lið breskra bænda. Það verður enginn svikinn af Dexy's Midnight Runners og Too-Rye-Ay er ein skemmtilegasta plata sem ég hef heyrt lengi. STEVE MILLER ööngvarinn og gítarleikarinn Steve Miller hefði ef til vill tekið gleði sína ef hann hefði vitað hve Abracadabra var vinsælt á Is- landi. Hann fór nefnilega ekki leynt með hve hann var spældur yfir því að komast ekki í efsta sæti á BBC Top 40 en þar varð hann að láta í minni pokann fyrir Captain Sensible. Abracadabra (erfitt að segja þetta) er gríp- andi smellið lag og landar hans vestanhafs hafa líka tekið því vel. Steve Miller er enginn ný- græðingur í bransanum. Hann hefur starfað sem atvinnumaöur í tónlist í hátt í 26 ár eða síðan hann var 13 ára gamall. Hann hefur á þessum tíma leikið inn á 12 LP plötur og fjölmargar smá- plötur. Þekktustu lögin hans eru sjálfsagt The Joker (1973), Fly Like An Eagle og Book Of Dreams (1976). Hann hefur lengi verið hálfgert vandræðabarn í tónlistinni þvi fólk hefur ekki vit- að hvernig þaö ætti að taka hon- um. Honum þykir takast best upp í fjörlegum eða melódískum lögum, en sjálfur vill hann ekki láta segja sér hvað eða hvernig hann á að semja. Hann semur gjarnan löng og tormelt verk sem falla ekki öllum í geð. Stundum er hann einnig sakaöur um að stæla The Beach Boys en því neitar hann alfarið.” The Beach Boys hafa veriö að stæla mig í mörg ár og ég er orðinn hundleiður á því. Ég byrjaöi á undan þeim.” Á þessum langa ferli sínum hefur Steve Miller heimsótt nærri því hverja borg í Bandaríkjunum og ferðast víðs- vegar um heiminn. Hann segist alveg treysta sér til þess að vera á hljómleikaferðalögum fjóra til fimm mánuöi á ári, aðeins ef hann fær aö hvíla sig í þrjá mánuði á eftir. Næstu 10—12 ár- um ætlar Steve Miller svo að eyða í hljómleikaferðir til hinna ýmsu heimshluta. Hvernig væri að ná honum niður á skerið einhvern tíma þegar hann flýgur yfir? 35* tbl. Vikan 17

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.