Vikan - 02.09.1982, Qupperneq 22
Hvers vegna er
tvöföld láming
betri?
GLER--- ' ’■ -í
LOFTRÚM_
1)
Állisti - breidd hans ræður loftrúmi á
milli glerja og er hann fylltur með raka-
eyðingarefni.
2)
Butyllími er sprautað á hliðar állistans.
Butyllímið er nýjung sem einungis er í
einangrunargleri með tvöfaldri límingu.
Butyl er 100% rakaþétt og heldur eigin
formi - hvað sem á dynur!
3)
Rúðan er samsett. Butylið heldur
glerinu frá állistunum og dregur þannig
úr kuldaleiðni.
4)
Yfirlíming, Thiocol, gefur glerinu í senn
teygjanleika og viðloðun, sem heldur
rúðunum saman.
Við hvetjum þig til þess að kynna þér í hverju yfirburðir tvöfaldrar límingar
eru fólgnir. Þeir leggja grunninn að vandaðra og endingarbetra einangrunargleri,
sem sparar þér vinnu og viðhaldskostnað er á líður - tvöfold líming er betri
Einangnmargler með tvöfaldri límingu
- eini framleiðandinn á Islandi
rb
GLERBORG HF
DALSHRAUNI 5 - HAFNARFIRÐI - SÍMI 53333
i
efast um hann? „Þú skalt aldrei
segja það um mig aftur,” sagði
hann mjúklega og með illsku. „Þú
átt of gott með að gleyma. Hann er
lausaleikskrakkinn þinn.”
Corbett fann til viðbjóðs. Það
var eitthvaö hræðilega öðruvísi en
það átti að vera. Það sást greini-
lega á Russell; hann skildi mann-
inn ekki lengur. Illt hugboö gagn-
tók hann meö undarlegum ótta.
„Þú laugst að mér allan tímann,”
sagöi hann. Báðir mennirnir töl-
uðu lágt. Þeir sátu afsíðis við end-
ann á borðaröð. Corbett var mjög
brugðiö yfir því sem haföi gerst og
hræddur við það sem heföi getað
orðið. Andartak hélt hann að
Russell myndi ráðast á sig.
Russell virtist vera aö fá slag.
Varir hans bærðust, augun voru
æðisgengin, andlitið rautt. Hann
hélt með báöum höndum í stól-
bakið eins og hann héldi aftur af
sér áður en hann stykki fram. En
hann hreyfði sig ekki. Corbett
hafði aftur kallað hann lygara. Og
almáttugur, það skyldi hann
greiða fyrir. En þaö var fyrirlitn-
ingin sem hann horfðist í augu við
sem ýtti honum yfir brúnina.
Hann barðist viö að stynja orð-
unum upp en þegar þau komu
voru þau vel aðgreind og mjög
skýr. „Ég er búinn aö vera þér
góður. Verndaöi þig. Fyrst sann-
leikurinn skiptir þig svona miklu
máli skaltu fá að heyra hann.”
Hann starði reiðilega á Corbett og
glennti upp augun. „Þegar fyrir-
tækið gekk illa notaði ég pen-
ingana sem þú sendir Duncan-
hjónunum. Það var áður en ég
veiktist. Þau hafa ekki fengið neitt
síðan þá. Þegar ég varð fær um að
endurgreiða féð var þaö of seint.
James þinn elskulegur var farinn
að heiman og stundaði innbrot.
Hann fór í fangelsi fyrir það. Er
þetta það sem þig langaði að
heyra? Eða kýstu heldur varnar-
lygi gamals vinar sem vildi hlífa
tilfinningum þínum?”
Corbett var náfölur. Sársaukinn
sem hann fann til var dulinn með
rólegum og óhvikulum svip.
Dapurleikinn innra meö honum
jókst svo mjög að það var hætta á
að hann kæmi í ljós. En hann vildi
ekki gera Russell það til geðs.
Hann sagði hljóðlega en með
erfiðismunum: „Ég er upptekinn í
svipinn. Aðeins um tíma. Og svo
ætla ég að komast til botns í þessu.
Það er ómögulegt aö trúa því eftir
öll þessi ár aö þú skulir vera svona
mikil skepna. Mikið hefuröu
breyst.”
„Ekki setja þig á háan hest. Þú
22 Víkan 3$. tbl.