Vikan


Vikan - 02.09.1982, Blaðsíða 31

Vikan - 02.09.1982, Blaðsíða 31
undarleg á stundum, knattspyrn- an. DINO ZOFF er 40 ára. Hann var elsti leikjnaöur heimsmeistara- keppninnar. Zoff hefur leikið meira en 100 landsieiki í marki ítalska liðsins og á meðan Enzo Bearzot er þjálfari landsliðsins er ólíklegt að hann fari úr markinu. Zoff hélt landsliðsmarkinu hreinu frá 20. september 1972 til 15. júní, í 1143 mínútur. Hann hefur leikið 530 leiki í ítölsku deildarkeppn- inni. Zoff hóf knattspyrnuferil sinn ekki í marki heldur í framlínunni. Það var hjá félaginu Maríano del Friuli. Draumur hans var að verja markið en hann fékk alltaf að vita að hann væri of lítill. Einu sinni neitaði hann að spila meö vegna þess að nann fékk ekki aö vera markmaður, settist á hliðarlínuna og fór að gráta. Hann fékk þó tæki- færi til að vera í marki og sýndi næga hæfileika til þess aö honum var boðiö í æfingabúðir hjá Juventus. Þar var honum sagt að koma síöar, þegar hann væri orð- inn stærri. Zoff stækkaöi og kom síöar. En það var löngu síðar. Eft- ir 13 ára glæsilegan feril sem markmaður keypti Juventus hann fyrir 8 milljónir króna. Þá til- kynnti framkvæmdastjóri Juventus: „Viðhöfum keypt besta markmann í heimi.” Zoff er ekkert að hugsa um að hætta.Hann segir: „Ef 45 ára gamlir menn geta farið til tunglsins hlýt ég að geta spilaððárí viðbót í landsliðinu.” Allt er fertugum fært, þaö sannast á Zoff. Ásamt Zoff er GIANCARLO ANTOGNONI traustasta stoð traustustu varnar í heimi. Antognoni er lýst sem listamanni með boltann, með hreyfingar gas- ellunnar. Hann er skipuleggjarinn í spilinu en Rossi endapunkturinn. Antognoni var langan tíma frá knattspyrnuiökunum svipað og Rossi, en af öðrum ástæöum. I deildarleik í ítölsku knattspyrn- unni meö félaginu Fiorentina rakst hann á markmann andstæðingaliðsins Genúa. Antognoni féll til jaröar og stóð ekki upp aftur. Hjarta hans stöðvaðist í 25 sekúndur. Læknir Fiorentina bjargaði lífi hans með blástursaðferöinni og gaf honum hjartahnoð á leið út af vellinum. Daginn eftir var Antognoni úr lífs- hættu en var frá knattspyrnuiðk- unum í hálft ár. Þetta eru stjörnurnar í liöinu sem gerði ítali aö heimsmeistur- um í þriðja skipti. Þeir eru nú þjóðhetjur í landi sínu og eins og Itala er siöur fögnuðu þeir lengi og mikiö aö loknum sigri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.