Vikan


Vikan - 27.10.1983, Page 7

Vikan - 27.10.1983, Page 7
Texti: Fríða Björnsdóttir Myndir: Ragnar Th. nýja blóði og vandvirknislegri ræktun hefur fengist sá stofn sem hér ernú.” Sýningin t Eden œtlaði aldrei að taka enda Árið 1973 efndi Hundaræktar- félagiö til sinnar fyrstu hundasýn- ingar hér á landi. Þá var félagið ekki enn viðurkennt ræktunar- félag erlendis og Jean Lanning, sem hingað var fengin til að dæma, varö að fá undanþágu því að viðurkenndur dómari má ekki dæma á sýningum nema hjá viðurkenndum ræktunarfélögum. „Já, sýningin var í Eden í Hveragerði og var allra fyrsta sýningin hér. Mig minnir að á henni hafi verið eitthvað innan viö hundrað sýningarhundar. Það var merkilegt þegar tekiö er tillit til þess að þetta er land þar sem ekki er búist við að séu neinir hundar, eða það heldur fólk að minnsta kosti í öðrum löndum. Það var stórkostlegt hvernig fólkið fann alla þessa hunda. Sýndar voru all- margar tegundir og þetta var nokkuð góð sýning. Sýningin núna var auðvitað allt öðruvísi en þessi fyrsta sýning. Þá var allt nýtt fyrir öllum, nema auðvitað mér, og þetta var í raun eins konar samkoma fólks sem hafði áhuga á hundum og kom með hunda sína. Ég var dómari og leit á alla hund- ana og þegar ég horfi til baka finnst mér sýningin hafi verið endalaus. Annars fór mikill tími í að tala við fólkið og svara fyrir- spurnum þeirra sem voru að afla sér aukinnar þekkingar. Nú er þetta breytt. Margir þekkja orðið til hundasýninga og Sigríður Pétursdóttir, formaður sýningarnefndarinnar núna, hefur ferðast víöa og séð margar sýningar auk þess sem hún er orðin dómari í nokkrum hunda- tegundum. Mér fannst sýningin núna mjög fagmannsleg á margan hátt.” Þarfað hafa tilfinningu fyrir dómarastarfinu Abba, vinsamlegur labrador. — Hvernig verða menn viður- kenndir hundadómarar? „I Bretlandi tökum við ekki próf en verðum þó að hljóta viðurkenn- ingu hundaræktarfélagsins breska. Við segjum stundum að til aö verða dómari og hljóta viður- kenningu þurfi það sama og ætli maður sér að flytjast út í sveit. Þar þarf að hafa verið tugi ára áður en menn eru teknir gildir í sveitinni. Þetta er þó ekki alveg svona með dómarastarfið. Flestir byrja með því að rækta og sýna góða hunda sjálfir. Þegar svo er komiö er þetta sama fólk kannski beðið að koma og dæma sitt kyn og svo hleður þetta utan á sig eins og snjóbolti. Næst er dómarinn fenginn til að dæma lík kyn og síðan koll af kolli. Ekki eru margir sem verða dómarar í öllum kynjum eins og ég er, en þetta er líka svolítil heppni. Ég byrjaði mjög ung aö hafa áhuga á og fylgjast með hundum meö móður minni, sem ræktaði hunda. Það varð mér til góðs. Annars þarf fólk aö hafa tilfinningu fyrir þessu og þar gildir sama hvaða dýrategund er verið að dæma, hvort heldur það eru hestar, nautgripir eða hundar. Allar hundategundir hafa sín ákveðnu einkenni sem eru ólík einkennum annarra tegunda og svo er ákveðinn staðall fyrir hverja tegund. Sumir þessir staðlar hafa gilt í aldir og voru settir af upphafsræktendum tegundarinnar. Eftir staðlinum er fariö í stórum dráttum en í honum segir til dæmis hvernig feldurinn skuli vera, eyrun og rófan, svo eitthvaðsé nefnt.” — Ræktar þú hunda sjálf? „Heima hjá mér í Hampshire á ég hundabú, kennel, sem mér finnst nú ekki stórt en er samt stórt á íslenska vísu. Ég er með 28—30 hunda en margir eru með 60—70 hunda á búum sínum. Ég Tveggja hunda fundur: Kaffon, collie og Neró, scheffer að mestu leyti (að því við teljum). Neró og Patton, tilvonandi leitarhundar, schefferar meö nokkra dropa af dobermanblóði. U 43. tbl. VIKan 7

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.