Vikan


Vikan - 27.10.1983, Page 25

Vikan - 27.10.1983, Page 25
og neyddi mig þannig til að líta upp. „Þykir þér vænt um börn, Brigitte?” spurði hann blíðlega. „0, já! ” Ég roðnaði enn meir og yppti öxlum. „Af hverju spyrðu?” Röddin brást mér. Ég þvingaði mig til aö halda áfram. „Víst líst mér vel á Francois en hann hefur bara miklu meiri áhuga á Marie- Claireenmér. . ."Égþagnaði. „Enginn ræður hjartanu,” sagði hann hlæjandi. „Elsku Brigitte mín. Ég er hreykinn af að geta kallað mig ágætan sálfræðing. Ég lét ekki glepjast af þessum litla leik hennar frænku þinnar eitt andartak.” „Hvaöaleik?” „Henni fannst Francois hæfileg bráð. Hún veit aö hann er hátt settur í fyrirtæki mínu, fyrirtæki sem hann erfir einn góðan veður- dag.” Augu hans glömpuðu. „Því það er eitt sem Marie-Claire er mikilvægara en allt annaö: pen- ingar!” Ég ansaöi engu. Alexandre þarfnaðist engra svara. Ég var hissa á því að þessi maður, sem ég hafði skömmu áður dæmt sem glámskyggnan flagara, var í rauninni skarpskyggn með ágæt- um. „Ég legg hausinn að veði fyrir því að frænka þín hefur engan áhuga á bömum.” „Ég vil nú heldur halda mínum haus.” Sjálf hefði ég verið tilbúin að taka tvíburana að mér þá þeg- ar. Alexandre virtist lesa hugsan- ir mínar því að hann sagði með tvíræðu brosi: „Ef við erum á sama máli gætum við kannski ráðið okkar ráðum dulítið.” „Og hvemig þá? Það er ekki hægt að hagræða örlögunum. Lát- um hlutina hafa sinn gang án þess að...” Hér sá hann ástæðu til að taka fram í fyrir mér. „Leyfðu mér að minnsta kosti aö segja þér hvað ég hafði í huga. Þegar við förum út að borða á föstudaginn ætla ég að koma Marie-Claire í skilning um að Francois sé ekkjumaður og * tveggja barna faðir. Það ætti að kæla hana eitthvað. Á hinn bóginn, þegar hún kemst að raun um að ég er auðugur maður, skilur hún ábyggilega hvert best er að beina sjónum sínum.” „Þúheldur að Marie-Claire.. „Frænka þín svífst einskis til aö öðlast verðugan sess. Ekki einu sinni að giftast manni (hann hneigði sig lítillega) sem er fimmtíu og þriggja ára.” „Langar þig til að giftast Marie- Claire? ’ ’ hrópaði ég heimskulega. „Svo sannarlega ekki, Brigitte mín litla! Ég hef þegar gengið í gegnum tvo skilnaöi og ef ég hefði í hyggju að giftast í þriðja sinn, heldur þú ekki að ég hafi öðlast nógu mikla reynslu til að forðast eina ófæruna enn? Því það yrði svo sannarlega ófæra ef ég álp- aðist til að flækja mig í neti frænku þinnar.” „En...” „En ég get þó alltaf haft áhrif á hana og leyft henni að halda að. ..” „Þetta er hvorki drengilegt né heiðarlegt,” greip ég fram í. Augnaráð hans varð harð- neskjulegt. „Gagnvart konum eins og Marie-Claire... Heldurðu virkilega að hún geti sýnt af sér minnstu hjartahlýju, minnsta skilning? Nei... Ég sá í gegnum hana við fyrstu sýn. Smálexía ger- ir henni ekkert til.” Allt þetta gerðist fyrir tveimur árum. Ekki óraði mig fyrir því að kvöldið hjá Katcharoffhjónunum myndi gjörbylta lífi mínu. Fyrir 18 mánuðum giftist ég Francois og varð nýja mamma tvíburanna, sem ég féll marflöt fyrir þegar í stað. I næsta mánuöi á ég von á mínu fyrsta bami. Stelpa eða strákur? Það skiptir mig engu. Það sem skiptir mig máli er að ég hef aldrei elskað eins heitt og þessi síðustu tvö ár. Við Francois tilbiðjum hvort annað. Marie-Claire hefur aldrei skipt neinu máli. Hún hengdi sig á Francois hjá Katcharoff og hann átti í vandræðum með að losna við hana án þess að vera ókurteis. „En sannleikurinn er sá að ég sá enga aðra en þig, ástin mín,” seg- ir hann oft. „Þú varst svo töfr- andi, feimin og yndisleg. Og augu þín sögðu mér allt sem segja þurfti.” Ég hef ekkert frétt af Marie- Claire. Hún varð svo ævareið að hún aftók með öllu að vera við- stödd brúðkaup okkar. Hún komst ekki hjá því að skilja að Alexandre hafðileikiðáhana. Hvernig fór þessi fimmtugi, heillandi kvennamaður eiginlega að þessu? Ég hef ekki hugmynd um þaö. Ég aftur á móti er brjálæðislega hamingjusöm. Og á hverjum morgni, þegar ég vakna við hlið míns heittelskaða Francois, þakka ég hamingjunni fyrir að hafa hitt mann eins og hann. Skreytingar og gjafavörur w , við öll ‘?ki: ^ fœri \ \\ Uf 4 Blómabíiöin vor Austurvrn Sími 84940 43. tbl. Vikan 25

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.