Vikan - 27.10.1983, Blaðsíða 10
TÁNINGAÁRIN
Árin á milli fermingar og tví-
tugs eru oft kölluð gelgjuskeiöið,
unglingsárin eða táningaárin.
Þessi ár ná yfir fjögur til sex ár í
þjóðfélögum eins og okkar, það er
að segja iönþróuöum ríkjum. I
mörgum öðrum þjóöfélögum vara
unglingsárin mun skemur og er
það háð því hve flókin samfélögin
eru hve þessi ár vara lengi. Því
flóknari sem samfélögin eru þeim
mun lengur vara unglingsárin.
Allir muna mjög greinilega eftir
þessum árum í lífi sínu. Þau eru
sérstakt tímabil í ævi hvers og
eins sem aldrei gleymist. Það er
mjög mismunandi hvernig táning-
ar eru á þessum árum. Sumir
breytast ekki ýkja mikið en aðrir
breyta svo að segja um hlutverk.
Fullorðnir eiga til að segja að
unglingurinn hafi orðið algjör um-
skiptingur. Rólegt og meðfærilegt
barn getur breyst í órólegan og
óviðráðanlegan ungling.
Þó svo að miklar breytingar eigi
sér stað á þessum árum skiptir
fyrri þróun barnsins yfirleitt alltaf
máli fyrir hvernig unglingurinn er
á táningaárunum. Það er hins
vegar á þessum árum að persónu-
leiki barnsins þroskast og tekur á
sig endanlega mynd.
Hvernig breytast flestir
unglingar á táningaárun-
um?
1) Langflestir unglingar þurfa að
takast á við að veröa óháðir
foreldrunum. Þeir þurfa ekki
að gera það með því að vera í
stöðugri andstööu en gjarnan
með því að mótmæla skoðun-
um hinna fullorönu og hafa sín-
ar eigin skoðanir og meiningu á
lífinu. Fullorðnir og börn geta
vel verið vinir á þessum aldri,
en táningurinn þarf aö skynja
að hann geti haft sínar skoðan-
ir í friði. Það hjálpar honum
við að öðlast sjálfstæði.
2) Langflestir unglingar verða
mjög háðir öðrum unglingum
og það er nauðsynlegt fyrir þá
að geta verið saman í ýmiss
konar félagslegu tilliti. Með því
að bera sig saman við aðra og
taka tillit til óska annarra tán-
inga verður auðveldara fyrir
unglinginn að fjarlægjast þá
fullorðnu og verða þeim ekki
eins háður.
3) Unglingar verða mjög upp-
teknir af útliti sínu á þessum
árum. Líkaminn er skoðaður í
krók og kring og minnsti hnökri
getur valdið áhyggjum. Föt
skipta miklu máli og hreinlæti
keyrir oft fram úr hófi. Sumir
eyða mörgum klukkutímum á
dag í að snyrta sig og sjá um
hreinlæti líkamans. Unglingur-
inn er smám saman að venjast
því að foreldrarnir eru að
hverfa út úr myndinni þar sem
þeir sáu um alla líkamlega um-
hirðu og hætta brátt að sinna
umönnunarhlutverki sínu.
4) Unglingurinn reynir sig í nýj-
um og nýjum hlutverkum og
fær áhuga á ýmsu í frístundum
sínum sem hann hefur ekki
fengist viö áður. Hann veit að
það eru ekki mörg ár í það að
hann þarf að sjá um sig sjálfur,
ÍO Vikan 43. tbl.