Vikan


Vikan - 27.10.1983, Blaðsíða 27

Vikan - 27.10.1983, Blaðsíða 27
TEXTI: ÞÓREY Fyrir um fimm árum gekk ungur piltur aö nafni Rainer Kritzman aö ungri stúlku, Gabrielle Susanne Kerner, á diskóteki og spuröi hana hvort hún heföi nokkru sinni sungið. Svarið var neitandi. En þremur dög- um síðar var stúlkan Gabrielle Susanne, kölluö Nena, komin með hljóðnema í hendurnar og söng Ramones-lög fyrir Rainer. Hann var alls kostar ánægöur með þaö sem hann heyröi. Hann útvegaði síöan trommuleikarann Rolf Brendel og bassa- leikarann Wolfgang Jáger og til varð hljómsveitin The Stripes. Þetta var í smáborginni Hagen, fæöingar- borg Nenu, og þar starfaði hljómsveitin The Stripes við töluverðar vinsældir. Hún kom fram í klúbbum og á tónleikum og fékk fljót- lega samning við CBS plötufyrirtækið. I kjölfarið kom hljómsveitin fram í sjónvarpi og jók mjög hróöur sinn í Þýskalandi. En hljómsveitin samdi alla tónlist sína með enskum textum og hafði það lengi verið ágreiningsmál innan hennar. Ýmislegt fleira olli sundrungu og svo fór að lokum að hljóm- sveitin The Stripes sprakk árið 1982. Nena og trommuleikarinn Rolf Brendel (en þau höfðu verið „saman” frá því að hljómsveitin tók til starfa) héldu til Berlínar og stofnuöu þar nýja hljómsveit sem nefnd var í höfuðið á Nenu. Aðrir meðlimir voru Uwe Fahrenkrog-Peter- sen á hljómborö, Carlo Kargesl á gítar og Jiirgen Dehmel á bassa. Á daginn vann Nena sem ritari á skrifstofu en á kvöldin var unnið af fullum krafti viö æfingar. Fyrsta plata hljómsveitarinnar, Nur getráumt, var mánuðum saman í hillum hljómplötuverslananna og seldist lítiö sem ekkert. En eftir að hljómsveitin kom fram í músíkþætti í sjónvarpi seldist platan í þrjátíu þúsund eintökum strax á fyrsta degi eftir útsendingu. Síðan geröist nokkuð sem enn jók á persónulegar vinsældir Nenu og öll hljómsveitin naut góðs af. Nena lék aðalhlut- verkið í kvikmynd sem nefndist Gib Gas — Ich will Spass. Myndin er fjörleg ástarsaga af ungu fólki, gleði og sorgum. Fyrsta stóra plata hljómsveitarinnar, Nena, (platan var kölluð Nena) komst í efsta sæti þýska vinsældalistans og af henni sló lagið 99 Luftballons heldur betur í gegn. Ohætt er að segja að Nena, bæði söngkonan sjálf og hljómsveitin, sé nú með allra vinsæl- ustu skemmtikröftum Þýskalands. Söngkonan Gabrielle Susanne Kemer fæddist 24. mars 1960 í Hagen. Foreldrar hennar eru báðir kennarar. Hún er elst þriggja systkina. Þegar hún var þriggja ára fékk hún gælunafnið Nena. Þaö var þannig til komið að hún var með foreldrum sínum í sumarleyfi á Spáni og var þar kölluð „nina” sem þýðir barn. Þegar heim kom festist nafniö síðan við hana enda er það ólíkt þýðara í munni en Gabrielle Susanne. Nena er lærður gullsmiður en hefur ekki starfað mikið við iðn sína eftir að músíkin fangaði hug hennar. Hún býr nú meö Rolf í tveggja herbergja íbúð í Berlín ásamt hundinum Baby. Uppáhalds- hljómsveit hennar er Rolling Stones, en sér í lagi heldur hún upp á Mick Jagger. Hún skokkar og leikur veggtennis (squash) til þess að halda sér í formi og hefur mjög gaman af því að fara á skíði og dansa. Hún er glaðleg og brosmild og lætur ekki velgengnina stíga sér til höfuðs. Hún segist ekki vera nein draumóramanneskja, en tilbúin til þess að leggja hart að sér til þess að ná langt. 43. tbl. Vikan 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.