Vikan - 27.10.1983, Síða 21
>■
sem aöstoöarmaður á einkaleyfa-
skrifstofu í Sviss. Hann notaði frí-
stundir sínar til verksins og eini
kostnaðurinn var þegar hann
sendi skýrsluna um kenninguna til
vísindatímarits. Þannig má segja
aö mesta uppgötvun síðari alda
hafi ekki kostað nema eitt frí-
merki!
Ljósaperan fundin
upp á ný
Ein af frægustu uppgötvunum
allra tíma er ljósapera Edisons.
Nú virðist hún á leið með að verða
úrelt þar sem fyrirtæki í New Jer-
sey í Bandaríkjunum hefur fundið
upp fullkomnari ljósaperu. Duro-
Test í New Jersey segir aö nýja
ljósaperan muni endast 2500
stundir í stað 1000 stunda hjá
venjulegum ljósaperum og að raf-
magnsnotkun nýju peranna sé
50—60% minni en þeirra gömlu.
I venjulegum perum hitar raf-
magnsstraumur upp tungsten-
blöndu og myndast þá ljós og hiti.
Þessi gerð myndar níu sinnum
meiri hita en ljós. Ljósapera
Duro-Test fyrirtækisins er með
lagi úr silfri og títaníum-díoxíði
sem hleypir ljósinu í gegn en
heldur hitanum inni í perunni.
Þetta hitar tungsten-blönduna og
þarf þá minna rafmagn til að hún
lýsi og lengir það líf perunnar.
Fyrirtækið er nú að hef ja fjölda-
framleiöslu. Búist er við að nýja
gerðin verði dýrari en sú gamla en
gæði og langlífi perunnar ætti að
bæta það upp.
Draumar
bjarga lífi
Fyrsta verkfæri mannsins var
ekki steinninn, hnífurinn eða
spjótið. Það var draumurinn. Og
sumir draumar björguðu lífi.
Carl Sagan segir frá draumum
háskólastúdenta í bókinni The
Dragons of Eden. Þrír algengustu
draumarnir voru draumar um að
detta, um að vera eltur og að
reyna að framkvæma verkefni en
mistakast. Af hverju? Hvaðan
komu draumarnir?
Einfalt mál er að útskýra al-
gengasta drauminn, drauminn um
að detta. Aö öllum líkindum á
hann uppruna sinn meðal forfeðra
okkar sem bjuggu í trjám fyrir
langa löngu. Ekki þurfti mikið til
að detta úr trjánum. Ef þig
langaði til að lifa af varðstu að
vita nákvæmlega hvar þú varst.
Þessi vitund, sem var fyrir hendi
allan daginn, framlengdist svo inn
í nóttina og gegndi þar því hlut-
verki að koma í veg fyrir aö frum-
maðurinn sneri sér við eða hreyfði
sig í svefni sem gat auðvitað haft
hræðilegar afleiðingar. „Mundu,”
sagði draumurinn, „þú sefur uppi
í tré en ekki á jörðinni.”
Ánnar algengasti draumur há-
skólastúdentanna — draumurinn
um árás eða að vera eltur — hefur
svipaðan uppruna. Auðvelt er að
ímynda sér hvernig frummönnum
hefur liðiö í nágrenni við sverð-
tennt tígrisdýr. Þeir höfðu stöðug-
ar áhyggjur af því að veröa étnir!
Þriðji algengasti draumurinn,
draumurinn um að mistakast eitt-
hvert verkefni, er líklega sá
merkilegasti því að hann er tákn-
rænn fyrir baráttu mannsins gegn
náttúruöflunum og hvernig hann
notaði gáfur sínar til þeirrar bar-
áttu. Draumurinn er yfirleitt um
verkefni framkvæmt daginn áður,
sem mistókst. Okkur dreymir
þetta aftur og aftur og getum
þannig athugað gerðir okkar og
mistökin sem við gerðum.
Frummanninn gæti hafa
dreymt að hann væri að kasta
steini á eftir veiðidýri og hefði það
boriö lítinn árangur. Hann gæti
hafa dreymt að í einni veiðiferðinni
meiddi hann sig á beittri spýtu á
hlaupum um skóginn. Gæti hann
hafa séð tengslin? Daginn eftir
vaknar hann, sér beitta spýtu og
man allt í einu drauminn. Svona
verkfæri gæti valdið miklum
skaöa, hugsar hann. Og síðan
heldur hann áfram út frá þessu
. . . ogspjótiðerorðiðtil!
Draumar voru sem sagt önnur
leið til að horfa á hlutina. I svefni
voru frummennirnir ekki truflaðir
af ótal smáatriðum, eins og á
daginn, og gátu því þróað hug-
myndir sínar þar.
Grænlandsjökull
virkjaður?
Vísindamenn kanna nú mögu-
leika á því að virkja Grænlands-
jökul. Á hverju sumri bráðnar
hluti hans niður og rennur óvirkj-
aöur til sjávar. Hugmyndir hafa
komiö fram um að byggja risa-
stíflur og safna þar vatni sem
síöan yrði notað til að knýja raf-
hverfla. Þessir sömu vísinda-
menn, sem eru bandarískir,
reikna auðvitað með að rafmagnið
verði flutt úr landi með neðansjáv-
arrafstrengjum til hinna orku-
gráðugu Bandaríkja. Hvað skyldu
Grænlendingar segja um þetta?
13
43. tbl. Víkan 21