Vikan


Vikan - 27.10.1983, Síða 46

Vikan - 27.10.1983, Síða 46
„Æ, jæja. . . ég er að minnsta kostiálífi.” Honum leið andstyggilega er hann kannaði tognaðan úlnliðinn, batt svo um hann með blettóttum vasaklút. „Við skulum koma okkur héðan, Joyce. Það hlýtur einhver að hafa komið auga á okkur.” En þegar hann horföi upp eftir brattri hlíðinni, sem þau höfðu hrapað niöur, varð hann undrandi á að sjá að enginn bíll hafði stað- næmst á veginum uppi yfir þeim, þrátt fyrir gínandi gapið í brotna öryggisgrindina. „Kevin!” Joyce riöaði þegar þau skjögruöu upp hlíöina. „Þessi maöur, heldurðu. . .” „Hann ýtti okkur af ásettu ráði út af veginum,” svaraði hann, munnsvipurinn ljótur. „Þetta var maðurinn í ljósbláu fötunum. En hafðu engar áhyggjur, ég næ hon- um.” Hún stansaði, másaði, leit kvíð- in á hann. „Kevin, ég vil ekki að þú gerir neitt kjánalegt. ’ ’ „Joyce. Hann reyndi að drepa okkur! Auk þess hlýtur hann að vera einhvern veginn í sambandi viðLaurel.” „Þú veist þaðekki.” Brjóst hans gekk upp og niöur af áreynslunni. Hann strauk rakt enniö með skyrtuerminni, álykt- aði. „Hann var með Margo Card- enas.” „En hún var ekki í bílnum. . . ekki þegar hann ók fram á okk- ur.” „N-nei,” gaf hann eftir, ringlað- ur. „Þaövarhún ekki.” Síðan útilokuðu áhyggjur hans af Joyce allar aðrar hugsanir. Á ENDANUM komust þau á veg- inn og biðu eftir að bíll nálgaðist. Joyce hallaði sér upp að grindinni en Kevin steig fram á veginn og veifaði næsta bíl. Hann ók fram- hjá honum án þess að hægja á sér. Hann bölvaði aftur. Joyce minnti hann máttvana á: „Þetta er hraðbraut, Kevin,” sagði Joyce, „fólk vill síður stansa. Ef til vill er það ástæðan fyrir því að enginn hefur tekið eft- ir eldinum þarna niðri.” „Kannski,” urraði hann. Núna hafði reykurinn úr svartri bíl- grindinni aukist. í því að næsti bíll nálgaðist stóð Kevin á miðjum veginum og veifaði báðum hand- leggjum. Ökumaðurinn bremsaði, það ískraði í dekkjum. Hann virt- ist reiður þegar hann steig út, að- eins fáein skref frá Kevin. Svo tók hann af sér sólgleraugun, kom auga á Joyce og sá eftir öllu sam- an. , ,Hvað kom fyrir konuna ? ’ ’ Kevin teygði sig eftir hendi Joyce. „Við —hm, runnum útaf.” Þegar bílstjórinn haföi skoðað rjúkandi flakið fyrir neðan þau hjálpaði hann Joyce umhyggju- samur í aftursæti bílsins, gerði at- hugasemd: „Þið ættuð aðtilkynna vegalögreglunni um þetta óhapp. ” „Ég geri það,” sagði Kevin og settist hjá Joyce. „Ef þú ert á leið- inni til borgarinnar yrðum við feg- infari.” „Auðvitað, en ertu viss um að þú viljir ekki heldur að ég fari með ykkur á sjúkrahús? Mér virðist konan nokkuð lasleg. ” „Ég vil heldur fara heim,” sagði Joyce ákveðin. „Ég hringi í lækninn minn. Hann kemur mér í samtlag.” „Eins og þér þóknast. Ég er hvort eð er að fara til New York.” Þremur stundarfjórðungum síð- ar hleypti maðurinn þeim út fyrir utan húsið sem Joyce bjó í. Hún bauð honum inn. Kevin bauö hon- um borgun. Hann hristi höfuðið tvívegis, sagöi svo: „Það er orðið langt síðan ég hef getað leikið miskunnsama Samverjann. Auk þess hefur verið ánægjulegt að tala við ykkur. Farið nú varlega.” Þau horföu á hann aka burt, fóru svo inn. JOYCE VAR meira brugðið en hún viöurkenndi. Kevin bar hana inn í stofu og lagði hana á sófann. „Jakkinn þinn, Kevin. Þakka þérfyrir.” „Ég tapaði honum að minnsta kosti ekki,” sagði hann feginn. „Ég er alltaf með passann minn á mér þegar ég er ekki heima.” Hann lagði jakkann sinn á stól- bak, eyddi svo næstu tuttugu mín- útum í að stjana við Joyce. „Kevin, elsku leyfðu mér að blanda handa þér í glas,” sagði hún áköf þegar hann hafði lokið við aö setja tognuöu höndina í fatla. „Þaö eina sem þú ætlar að gera núna er að koma sjálfri þér í lag,” þrætti hann, krafðist þess að hún færi í rúmið. „Þú getur þá að minnsta kosti fengið þér sjálfur,” bað hún. „Þú viröist alveg uppgefinn! ” „Mér líöur prýðilega, Joyce. Ég skrámaðist ekki einu sinni þegar bíllinn valt.” Hún leyfði honum ófús að hjálpa sér í rúmið eftir að hún hafði farið í snögga sturtu. „Mér finnst ég svo andstyggileg að láta þig sjá um þig sjálfan, Kevin.” Hann brosti, skoðaði glóöaraug- að og plásturinn á enninu. „Þú lítur út fyrir að hafa verið í hnefaleikakeppni og barist í röng- um þyngdarflokki! ” „Mér líður,” hún kæfði geispa, „eins og vörubíll hefði ekið á mig.” „Soföu þá. Á morgun líöur þér betur, Joyce.” Hann sat á rúmstokknum og hún teygði sig eftir hendi hans. „Kevin. Hvað ætlarðu að gera núna?” „Þú veist þaö. Þú sagöir mér að ég gæti fengið mér í glas.” Fingur hennar hertu takið. „Eftir það, Kevin. Ég er hrædd um að þú leggir af stað til að gera eitthvað ógætilegt.” Hann lagöi hönd sína ofan á hönd hennar, fannst hann standa henni ákaflega nærri. Hann tók eftir ferðatöskunni sem hafði stað- ið í anddyrinu þegar hann kom þangað fyrst en var nú komin upp að fataskápnum. Hún fann á sér hvað hann var að hugsa. „Ég hafði ekki tíma til að taka uppúr henni.” „Þú hefðir átt að fara með flug- vélinni, Joyce. Þetta hafa veriö eintómir erfiðleikar fyrir þig eftir að ég kom til New York. ’ ’ „Við,” sagði hún með áherslu, „höfum átt í erfiðleikum. Auk þess er ég ekki alveg frábitin fé- lagsskap þínum, Kevin Driscoll.” Hann brosti, strauk hönd hennar, svo mundi hún nokkuð. „Viö ættum að tilkynna lögregl- unni um slysið, Kevin.” „Getur það ekki beðið? Til morguns?” „Allt í lagi. Strax í fyrramálið fer ég á fund McBain. Ég þekki hann allvel. Hann veit áreiðanlega hvernig á aö fara með ökumenn sem aka á og flýja svo.” „Joyce, ég vildi heldur að við nefndum það ekki. Ef þaö skyldi setja Laurel í meiri hættu.” „Fyrirgefðu, Kevin. Ég hugsaði ekki rökrétt.” Hún þagnaði. „Heldurðu að þessi maður standi í sambandi við vandamál Laurel? ” „Hvað annað get ég haldið? Hann var með Margo. Hún virðist vera miðdepill alls.” „En af hverju skyldi hann vilja drepa okkur, Kevin?” „Ég er alltaf að spyrja sjálfan mig að því. Ég ætla að vita hvort ég get fengiö nafnið á honum gefið upp á mánudagsmorguninn. Ég held að ég viti hvar hann keypti ljósbláu fötin. Eitt er víst. Margo Cardenas er í vafasömum félags- skap.” „Heldurðu að hún hafi vitað um slysið, Kevin? Hún var ekki í grænu límúsínunni þegar hún ók á okkur. Hvar var hún? ” Hann hristi höfuöið. Hann varö æ ráðvilltari og ákvaö að heim- sækja Vincent Cabarelli. „Ég vildi óska að ég mætti koma með þér, Kevin.” „Þú átt að hvíla þig núna, Joyce. Þú hefur orðið fyrir slæmu áfalli.” „Þaðhefur þú líka.” Hann rumdi. „Ég hef lent í verra en þessu í amerískum fót- bolta á laugardögum. Núna ætla ég að fá mér í glas ef þér er sama. ’ ’ Hann skenkti sér drjúgt af viskíi sem var í skápnum hennar, drakk það með áfergju, snyrti sig svo í baðherberginu. ÞAÐ VAR allt annað andrúms- loft í þessari íbúð, fannst honum, minntist heimsóknarinnar í íbúð Margo. Hann fór aftur inn í svefn- herbergi Joyce, rétti bindið og sagði: „Veistu, ég hefði ekki trúað aöþaðværihægten.. Hann gleymdi hvað hann hafði veriö í þann veginn að segja. Joyce var steinsofandi, hár hennar breitt yfir koddann, meiddi handleggurinn ofan á ábreiðunni. I svefni virtist hún kyrrlát og falleg, þrátt fyrir eld- raunina sem hún hafði þolað. Kevin laut hljóðlega niöur að henni og kyssti hana laust á vang- ann. Honum var illa við að skilja hana eftir eina. Þetta var meira en það að hann vildi vemda hana, sagði hann við sjálfan sig um leiö og hann fór út um útidyrnar og hó- aði í leigubíl sem átti leið framhjá. Laurel fyllti aftur huga hans. Þaö var enginn fyrir utan verts- hús Cabarellis, en veitingasalur- inn var fullur af fólki og dansgólfið Týnd i stórborg 46 Vikan 43. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.