Vikan - 27.10.1983, Qupperneq 51
Sjálfsmorð
móður
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi fyrir stuttu
furðulegan draum sem ég
vona að þú getir ráðið.
Hann varáþessa leið:
Eg, mamma og dökk-
hærður maður, X, (sem
átti víst að vera maðurinn
hennar) vorum á hótelher-
bergi á Spáni. Þegar ég og
maðurinn komum inn í
herbergið gaus sterk gaslykt
á móti okkur. Við gengum
inn og sáum þá mömmu
dggja á eldhúsgólfinu.
Hún bað okkur að láta sig í
friðiþvíað hún vildifremja
sjálfsmorð. Við hlýddum
henni, stóðum frammi og
hlustuðum á hana biðja
um hjálp og engjast af
kvölum. Stðan fannst mér
mamma liggja í baðinu og
þar dró hún andann í
síðasta sinn. Hún rann
niður í baðið og blóð lak
meðfram hægra kanti. Hún
fór öll í kaf nema andlitið.
Síðan fannst mér að
krakkar sem voru að fara að
keppa í hokkí ættu leið
fram hjá. Dökkhærður
strákur missti boltann inn
um gluggann hjá okkur og
út á svalir. Eg bauð
krökkunum inn á meðan
ég náði í boltann. Þegar ég
var á leiðinni til baka sá ég
mömmu þar sem hún lá
liggjandi inni í köflóttu
teppi (hún var dáin) og
mér fannst hún aldrei hafa
verið fallegri. Eg ákvað að
sýna krökkunum hvað ég
var hrygg en ég gat ekki
grátið.
Þrjá af krökkunum
kannaðist ég við, A, B og
C. Eg spurði C hvenær
keppnin ætti að byrja og A
svaraði 20:08, eftir 20
mínútur. Síðan leit ég út á
svalir og þá sá ég að það var
búið að breyta garðinum í
stóran tennisvöll og þar
voru nokkrir menn í
hvítum búningum að æfa
hokkt.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna,
ZXZ
Þessi draumur bendir til
þess að upp komi erfið-
leikar á heimili þínu og
móðir þín muni verða fyrir
miklu álagi, jafnvel svo að
hún muni eiga við einhver
andleg veikindi að stríða og
leiti lækninga við þeim. I
kjölfar þessa mun reyna
mjög á þig og þú þarft á
öllum þeim viljastyrk og
sálarró að halda sem þú
býrð yfir.
Það er hætt við að
freistingar og óstöðuglyndi
sæki á þig og þér hætti til
að halla þér um of að þeim
sem sýna þér áhuga án þess
að hugsa út í hvað það get-
ur haft í för með sér eða
hvernig fólk á í hlut.
Draumurinn er fyrst og
fremst aðvörun til þín um
að vera viðbúin ef zitthvað
af þessu hendir þig á næst-
unni. Draumurinn á líka
að brýna þig til að takast á
við vandann og sigrast á
honum og gera þér grein
fyrir að þegar eitthvað bját-
ar á er best að reyna að
t>ygg)a sig upp eins og
hægt er og vera eins já-
kvæður og frekast er unnt.
Breytt systir
Kæri draumráðandi.
Eg skrifa þér vegna skrýt-
ins draums sem mig langar
að vita ráðningu á.
Draumurinn varþannig:
Eg og systir mín vorum í
íþróttasal og ég sat í jóga-
stellingu og var að toga í
eitthvað. Systir mín var að
tala við einhvern í dyrun-
um, ég veit ekki við hvern
en henni var illa við hann.
Hún var með permanent
og dökk í framan og mjó
(en í raunveruleikanum er
hún með sítt, slétt hár,
dökk í framan og feit).
Hún hœtti að tala við þann
sem var í dyrunum og kom
til mtn. Eg spurði hana
hver þetta hefði verið og
hún svaraði: ,, Þetta
var. . .” en hún komst
ekki lengra því að ég
vaknaði.
Ég
Þessi draumur er fyrir
heppni ykkar systranna og
hann er einkum þér fyrir
heldur lánsömum kynnum
við hitt kynið. Eitthvað
kann að fara öðruvísi en
ætlað er en það verður þá
frekar á betri veg en verri.
Landafræðipróf
Kæri draumráðandi.
Mig langar að biðja þig
um að ráða fyrir mig draum
sem mig dreymdi fyrir
nokkru. Mér fannst ég vera
í skóla. Eg átti að fara að
taka próf í landafræði en
var ekki búin að lesa fyrir
það. Svo lét maður mig fá
það, ég held að það hafi
verið pabbi vinar míns. Eg
gat engu svarað á prófinu.
Svo þegar voreinkunnirnar
voru afhentar var ég hæst í
landafræðinni og fékk
mikla viðurkenningu fyrtr
það. Eg spurði kennarann
hvernig á þessu stæði en
hann sagði að allt hefði
verið rétt á blaðinu. Þá bað
ég hann að sýna mér próf-
blaðið en hann neitaði því
og sagði bara: Til hamingju
með prófið. Svo man ég
ekki meira.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna,
0130-8286
Þessi draumur bendir til
þess að þú náir miklum og
að eigin mati nokkuð
óverðskulduðum árangri í
einhverju sem skiptir þig
miklu máli, sennilega
tengt ástarmálum eða sam-
skiptum við einhverja sem
þér eru mjög kærir. Svo er
bara að vita hvernig þér
reiðir af þegar árangrinum
er náð. Ef þú leggur þig
fram áttu auðvitað ágæta
möguleika á að fylgja
þessum árangri eftir en því
miður segir draumurinn
ekkert um það. Þú verður
bara að treysta á sjálfa þig
þar.
43. tbl. Vikan 51