Vikan


Vikan - 16.08.1984, Síða 41

Vikan - 16.08.1984, Síða 41
hvort hálsbindið væri rétt á hon- um. — Já, sagði hún, það er svo sem nógu rétt, en þú færð þetta starf ekki þrátt fyrir þaö. Þaö er farið eftir allt öðru nú orðiö en útliti fólks og klæðaburði. —Vogun vinnur, vogun tapar, sagði Antonsen æörulaust og lagði af staö í heimsókn til starfs- mannastjóra stórverslunarinnar. — Það er út að þessu starfi hér, sagði hann og veifaði auglýsing- unni fyrir framan nefið á starfs- mannastjóranum. — Hefurðu gegnt svipuðu starfi áöur? spurði starfsmannastjór- inn. — Nei. — Ertu alveg reynslulaus á þessu sviði? Antonsen kinkaði kolli. Hann var það. Starfsmannastjórinn sat andartak íhugull og horfði stíft á Antonsen. Antonsen sýndi engin svipbrigði. Hann sat bara þarna friðsæll og óáreitinn á svip. Allt í einu rauk starfsmannastjórinn upp í bræðis- og/eða æðiskasti: — Hvað í fjáranum heldurðu eiginlega að þú sért, maður minn? urraði hann. Þú hefur aldrei gegnt svipuðu starfi og samt kemurðu hingað og kjaftar þig inn á mig og sóar tíma mínum til einskis. Svona lítið skítseiði. — Nú, já... . . hva? tautaði Antonsen án þess svo mikið sem að blikna. — Heldurðu kannski að ég hafi ekkert annað að gera? hélt starfs- mannastjórinn áfram. Þú hlýtur að vera alvarlega heilaskaddaður, maðurminn! — Þegar starfið er auglýst laust til umsóknar þá hefur maður nú líklegast leyfi til að sækja um það, sagði Antonsen með óhagganlegri ró og án þess að haggast í sæti sínu. Starfsmannastjórinn benti á dyrnar. — Farðu! hvæsti hann, litli hringormur! Antonsen sat áfram eins og ekk- ert hefði í skorist. Starfsmanna- stjórinn hristi höfuðið með upp- gjafarsvip. Það lék blendið bros um þunnar varir hans. — Það er þér auðvitað andlega ofviða að koma því inn í þinn þykka grautarhaus, litla skítseiði, að þú ert að sóa bæöi þínum tíma og mínum til einskis. — Skítseiði, endurtók Antonsen stillilega, það er ærumeiðing. Starfsmannastjórinn þaut upp. — Og hvað með það? spurði hann hraðmæltur. Þýöandi: Anna — O, svo sem ekki neitt, sagöi Antonsen. — Starfsmannastjórinn greip í hnakkadrambið á honum. — Pissumaur, hrópaði hann öskuillur, ég skal koma þér héöan. Ég fer beint til forstjórans og þá verður þér hent út umsvifalaust! — Ég er nú ekki ráðinn enn, leyföi Antonsen sér aö upplýsa starfsmannastjórann. — Ég gleymi aldrei andliti, öskraði hann, og síst af öllu svona bjánafési eins og þínu. Þú, þetta litla, skitna, klamberaða bómull- arandlit! — Taktu þaö bara rólega, sagöi Antonsen stillilega, sjáðu hvað ég er rólegur. Nú rauk starfsmannastjórinn í hann og greip í bindið á honum. — Og ertu svo ósvífinn líka? hrópaði hann og var orðinn rjóður í framan af æsingi, svona nefapi, andalúsíski geitahirðir! Þú getur bölvað þér upp á að ég klaga þig fyrir yfirmönnunum þínum! Bíddu bara, litli lúsablesi! — Ég hef nú enga yfirmenn, takk fyrir, sagöi Antonsen og píröi litlu kringlóttu augun sín góðlát- lega að starfsmannastjóranum óöa. En ég get útvegað mér þá ef þú ræöur mig í starfið! Starfsmannastjórinn lét sig síga niður í stólinn sinn. Hann kveikti sér í sígarettu og blés reyknum yfir Antonsen. Svo hallaði hann sér fram yfir boröið og spuröi með ýktuminnileik: — Hvað myndir þú gera ef ég kallaði þig hér og nú mesta kraftídjót sem til er? — Ekkert, sagði Antonsen. — Myndirðu ekki rjúka upp, missa stjórn á þér, grípa mig kverkataki og fleygja mér út af skrifstofunni? — 0, nei, nei, nei! — Kraftídjót! orgaði starfs- mannastjórinn svo hátt að Antonsen féll næstum því úr sæti sínu. Hann hagræddi bindinu aðeins lítið eitt. Síðan leit hann djarflega beint framan í starfs- mannastjórann og hagræddi sér í sætinu. Annað gerðist nú ekki. Starfsmannastjórinn stóð upp og klappaði honum duglega á öxlina. — Þú færð starfið, ekki spurning! sagði hann. Þú ert ein- mitt sá sem við erum að leita að. Þú byrjar á morgun. Daginn eftir sat Antonsen í litlu afdrepi í fjarlægasta horni stór- markaðarins. Á skilti ofan við borðið hans var letraö stutt og lag- gott: KVARTANIR: \S Stjörnuspá Hrúturinn 21. mars-20. apríl Þú hefur verið í graut- fúlu skapi að undan- förnu og gert fólki í kringum þig lífið leitt. Þú mátt til með að læra aö hemja þig svolítið og muna að annað fólk á alveg nóg með aö hugsa um sig! NautiAM. apríl - 21. mai Þú ert ekki alveg viss um að lífið hafi tekið þá stefnu sem þú óskar nú upp á síð- kastið. Þú hefur til- hneigingu til aö halda aö grasiö sé alltaf grænna hinum megin, slíkt erímyndunein. Krabbinn 22. júni - 23. júli Það hefur verið margt fólk í kringum þig að undanförnu og þú hefur haft nóg að gera. Það veröa því viðbrigði þegar allt fer að ganga hægar. Njóttu þess þó meðan þaö varir. Vrgin 24. sept. - 23. okt. Það þýðir ekkert fyrir þig að reyna að forðast ákveðinn fjöl- skyldumeðlim sem óskar eftir hjálp þinni. I staðinn færö þú tækifæri til að sýna hvað í þér býr, en það mun reynast þér ómetanlegt seinna meir. Steingeitin 22. des. - 20. jan. Yfirleitt líöur þér best þegar hlutirnir ganga sinn vanagang. En þú skilar líka mjög góðum árangri undir miklum þrýstingi og meö þeim hætti munt þú taka örlagaríkt skref á frama- brautinni á næstunni. Ljónið 24. júli - 24. ágúst Þér hættir til að velja vini þína eftir nota- gildi sem er ekki góð leið til að eignast virkilega góða, sanna vini. Ef þú gerir þér grein fyrir þessu þá ættir þú auðveldlega að geta kippt því í lið- inn. Sporðdrekinn 24. okt. - 23. nóv. Þú hefur átt í ein- hverjum peninga- örðugleikum og þú vonast helst til þess að eitthvert kraftaverk hjálpi þér úr þeim vandræðum. Nú er kominn tími til að þú treystir á sjálfan þig, annars stefnir þú í voða. Vatnsberinn 21. jan. - 19. febr. Einhver ber undir þig mjög spennandi hug- mynd sem þú þarft að taka ákvörðun um hvort veröi fram- kvæmd. Leitaðu ráða hjá reyndara fólki og skoðaðu allar hliðar á málinu áður en þú tekur ákvörðun. Tvíburarnir 22. mai-21. júní Þú varst búin að hlakka mikið til þess að ákveðinn við- buröur geröist sem síðan fór hálfpartinn út um þúfur. En þú þarft ekki að örvænta því að á næstu vikum munt þú upplifa skemmtilegustu at- burði lífs þíns. Meyjan 24. ágúst - 23. sept. Þú munt upplifa mjög sérstakan hlut á næstu dögum og þú munt muna það alla þína ævi. Láttu þér ekki bregða þótt gamlir vinir skjóti óvænt upp kollinum og flytji þér ein- hverjar óvæntar fréttir. Bogmaðurinn 24. nóv. - 21. des. Margir eru ginn- keyptir fyrir smjaöri og þú átt erfitt meö aö standast slíkt. Gættu þín samt vel á ákveð- inni persónu sem gerir allt til að nálgast þig. Það er breytingar framundan hjá þér. Fiskarnir 20. febr. — 20. mars Þér leiðist mjög eitt- hvað sem þú heyrir og þú átt bágt meö að trúa því. Leggðu þaö ekki í vana þinn aö bera út sögur án þess aö fullreyna fyrst hvort þær séu í raun sannar. 33. tbl. Vikan 41

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.