Vikan - 16.08.1984, Blaðsíða 61
Bowie er alveg að verða búinn
Ekki í þessum skilningi, asninn
þinn! Hann er bara aö veröa búinn
meö nýju plötuna. Sér til aðstoðar
hefur hann aö þessu sinni fengið
ungan Lundúnabúa, Derek
Bramble, en sá hefur getið sér
gott orð fyrir vinnu sína með
fönkurum á borð við Linx og
Junior (Mama Used To Say).
Útgáfudagurinn hefur ekki enn
veriö ákveðinn en áætlað er aö
platan komi í búðir seinni part
þessa árs. Það getur þýtt ágúst
eða desember. Nafn hefur ekki
fengist á gripinn en það skiptir
ekki máli enn sem komið er, þaö
verður auglýst síðar. Svona til að
minna fólk á hvernig vinstra eyr-
að á Boiwie lítur út látum við
þessa snúddy mynd fylgja.
David Bowie reynir að bræða járnbút með hugarorkunni einni saman.
Smámynd
Duran numero duo — John Taylor
Og þá vindum við okkur í næsta
Durangæja. Sá heitir John Taylor
og er bassaleikari hljómsveitar-
innar.
Nigel John Taylor fæddist þann
20. júní árið 1960. Hann bjó alla
bernsku sína í Hollywood sem er
hverfi í Birmingham. Faðir hans,
hvítflibbi í bílaverksmiðju, gaf
honum fyrsta hljóðfærið þegar
hann var 15 ára gamall, það var
gítar en hans biðu þau leiðinlegu
örlög aö liggja og safna ryki í tvö
ár þar til John dustaði það af hon-
um. 19 ára gamall heyrði hann í
Chic og ákvaö að leggja bassann
fyrir sig. Hann sér sennilega
ekkert eftir þvý
John stofnaði hljómsveitina
með Nick og öðrum og í upphafi
kom þeim Simon ekkert of vel
saman því að þeir töldu sig báða
ráða, John því að hann var stofn-
andi og Simon af því að hann var
söngvarinn. Þetta leiddi til ógur-
legra rifrilda en að hans sögn er
allt slíkt úr sögunni núna.
John er sá meölimur Duran
Duran sem hefur mest gaman af
því að hitta fólk, fara út á kvöldin
og sýna sig og sjá aðra. Hinir í
hljómsveitinni segja hann vera á
næturvaktinni í almennings-
•tengsladeildinni. Hann er einn af
þessum gaurum sem eru ekkert á
því að gifta sig en hefur verið á
föstu í langan tíma. Sú heppna
heitir Janine Andrews, smástirni
sem lék í Octopussy. Það er svolít-
ið furðulegt en uppáhald Johns er
einmitt James Bond myndir. Þeg-
ar aðrir slappa af spila þeir plötu
en John dregur þess í stað fram
Bondspólu, þá helst Dr. No eða
Goldfinger. Enn ein tilviljunin í
sambandi við Bond delluna í hon-
um er sú að hann á eldgamlan
Aston-Martin, bíl eins og dobbeló-
sevenn skaut óvinum sínum úr
■ með framsætinu. Börn eru engin,
að minnsta kosti ekki hjá þeim.
Framtíðardraumar hans eru
eitthvað á þá leið að þegar hann er
hættur í Duran Duran ætlar hann
að fara út í kvikmyndir eða video-
list og vera um leið svona gæi eins
og Peter Holm, elskhugi Joan
Collins, náunginn sem þarf ekki að
leika en brosir bara með. Og að
lokum: Hann hefur litaö oftar á
sér hárið en hann getur talið.
Myndin er af honum með uppruna-
legan háralit, náttúrlega fyrir ut-
an þessar rauðu í toppnum á hon-
um. Núna eru þær hvítar en þær
gætu allt eins verið sægrænar á
morgun. Eruð þið nú ánægð?