Vikan


Vikan - 01.11.1984, Page 15

Vikan - 01.11.1984, Page 15
SAGAN AF MANNINUM SEM ÞURFTIAD FARA UM Einu sinni var maður á leið á ráðstefnu útí heimi. Átti hann að kaupa Pex-fargjald? Átti hann að fara í pakkaferð eða á sérstöku „Weekend-Pex" fargjaldi? Gat hann notað rautt apex eða grænt? Eða átti hann ef til vill bara að fara á „normal"- fargjaldi? Átti hann að fljúga í gegnum London eða Kaupmannahöfn — Amsterdam eða Dusseldorf? Með Arnarflugi eða Flugleiðum? Hann vissi það ekki. Enda engin furða. En þá fór maðurinn inn á Samvinnuferðir-Landsýn. Þar fékk hann á einum stað hlutlausar upplýsingar um þann ferðamáta sem kom honum best,— aðstoð við að finna hagkvæmustu leiðina í gegnum fargjaldafrumskóginn. Á skrifstofu Samvinnuferða-Landsýnar eru þær hlið við hlið, og jafn réttháar, bókunartölvurnar frá Arnarflugi og Flugleiðum og þar er sérþjálfað starfsfólk — þjálfað til að finna bestu leiðina hjá báðum flugfélögunum. Og þessa þjónustu, sem e.t.v. getur sparað þér þúsundir, færðu án nokkurs aukagjalds. Góð sambönd okkar við útlenskar ferðaskrifstofur og flugfélög gera okkur einnig kleyft að bjóða margskonar sérferðir og pakkaferðir sem annars stæðu þér ekki til boða. Að auki bókum við svo fyrir þig hótelgistingu erlendis, bílaleigubíla, jafnvel aðgöngumiða í leikhús og fleira — allt á augabragði. Við finnum bestu leiðina fyrir þig. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727 38. tbl. Vikan 15

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.