Vikan - 01.11.1984, Page 31
„Mér finnst skrykkur alveg „vemmilega" Ijótt orð,"
sagði Stefán Baxter þegar blaðamaður settist niður
með honum einn daginn og sagðist vilja ræða við
hann um skrykkdansinn sem sumir hafa viljað kalla
breikdansinn og upp á síðkastið hefur verið einn
vinsælasti dans unglinga víða um heim.
Þessi dans, sem upphaflega var einkaeign stráka á
götum úti í Ameríku, er orðinn viðurkennd listgrein í
dansinum. Atvinnudansarar æfa þennan dans nú á
fullu og þeir sem fylgdust með ólympíuleikunum nú í
sumar ættu að muna að þeim lauk með sýningu 100
breikdansara.
íslenskir unglingar hafa tekið breikæðinu opnum
örmum og breikkvikmyndirnar hafa ekki látið á sér
standa: Footloose, Breakdance, Beat Street og þegar
blaðamaður laumaði sér á sýningu á kvikmyndinni
Breakdance á dögunum iðuðu unglingarnir í sætum
sínum og hafa vafalaust tekið nokkur létt spor á heim-
leiðinni. Sumir byrjuðu strax fyrir utan kvikmynda-
húsið.
Framleiðandi myndarinnar Breakdance, Allan
DeBevoise, telur breikdansinn eða götudansinn mjög
jákvæðan fyrir unglinga, þeir séu í leit að sjálfsmynd
og þarna fái orka þeirra útrás á jákvæðan hátt.
Framleiðendurnir viðurkenna að þetta sé æði sem eigi
eftir að ganga yfir en breikdansinn sem slíkur muni
halda áfram sem hluti af dansmenningunni.
11. ágúst síðastliðinn hófst stærsta unglingadans-
keppni sem haldin hefur verið á íslandi til þessa. Þarna
var ekki troðið upp með valsa eða ræla heldur voru
allar hugsanlegar hreyfingar leyfilegar, hvort heldur
þær flokkuðust undir breik, diskó eða aðrar útgáfur af
sambærilegum dönsum.
Stefán Baxter, sem sagði að skrykkur væri vemmi-
lega Ijótt orð, er annar tveggja þekktustu breikara
okkar hér á Fróni. Hinn er Rúrik Vignir Vatnarsson.
Þessir hressu strákar, sem eru 15 og 18 ára, tóku líka
nokkur létt breikspor hér á ritstjórn Vikunnar á dögun-
um.
Ahorfendur fylgjast með Rúrik í „freestyledanskeppninni" á unglingaskemmtistaðnum
Traffic í síðasta mánuði. Stefán, sem hlaut íslandsmeistaratitilinn í diskódansi síðastliðinn
vetur, tók ekki þátt í keppni að þessu sinni en átti sæti í dómnefndinni.
Er langt síðan þið byrjuðuð að
dansa?
Stefán: Ég er nú ekki nema 16
ára svo ég hef ekki verið mikið að
dansa á böllum. En strax og ég
komst inn á barna- og unglinga-
böll byrjaöi ég að dansa á fullu,
það má eiginlega segja að síðan
Villti tryllti Villi var opnaður hafi
ég verið dansandi. Ég byrjaði þar
á barnaböllunum á sunnudögum,
fékk síðan vinnu í fatahenginu og
komst loksins inn á sunnudags-
kvöldum. Núna er ég í dansskóla
Kolbrúnar Aðalsteinsdóttur,
Dansnýjung, en annars hef ég
ekkert verið í dansskólum, hef
bara reynt að læra þetta upp á
eigin spýtur.
Rúrik: Ég er eiginlega búinn að
vera dansandi síðan ég man eftir
mér. Ég byrjaði 4 til 5 ára að læra
dans hjá Heiöari Ástvaldssyni
undir stjórn Kolbrúnar Aöal-
steinsdóttur og hef eiginlega verið
dansandi síðan.
Hvað um breikið?
Stefán: Breikdans hef ég bara
-------------Brei/edr&r -
lært hér og þar. Ég fæ mér video-
spólur og reyni síðan sjálfur. Ég
fór á dansnámskeið þegar Grease-
æðið gekk yfir og tók upp nokkur
spor þar. Á eftir því komu svo vél-
mennadansarnir og dúkku-
dansarnir þannig að þetta hefur
einhvem veginn þróast svona
áfram hjá mér. Ég fer svo
auövitað á allar dansmyndirnar
sem koma til landsins og læri heil-
mikið á þeim.
Rúrik: Breikið hef ég lika
„pikkaö upp” hér og þar, fór að
vísu á námskeið sem var haldið
hér fyrir rúmu ári. Það voru tveir
útlendingar sem voru með þetta
námskeið. Ég læröi töluvert á
þessu námskeiöi en svo hef ég líka
lært af videospólum.
Er erfitt að læra að breika?
Stefán: Nei, alls ekki, það er
frekar auðvelt. Það eru líka til
heilu bækurnar núna sem hægt er
aö nota en annars er bara um að
gera að taka ný spor þegar manni
dettur eitthvaö í hug.
38. tbl. Vikan 31